Fagnaðarboði - 01.03.1961, Síða 5
FAGNAÐARBOÐI
5
Eldsdíkið, það er meira öllum dauða og skelfingum.
En Jesú Krists sigur er öllum dauða og eldsdíkinu
yfirsterkari. Hallelúja. — Sá er sigrar, mun erfa þetta,
og ég mun vera hans Guð og hann mun vera minn
sonur. (Opb. 21, 7.) En í 8. versinu í sama kapítula, eru
þeir taldir, sem hafa hlut sinn í díkinu.
En fyrir hugdeiga og vantrúaða og viðurstyggilega,
og manndrápara og frUlulífismenn og töframenn, og
sJcurðgoðadýrfcendur og álla lygara — þeirra hlutur
mun vera í díkinu, sem logar af eldi og brennisteini,
sem er hinn annar dauði.
I þessum syndaverkum heldur Satan þeirri mannveru,
sem fer eilíflega illa. Höfum við því ekki öll ástæðu, til
þess að prófa o'kkur, hvort við höfum flúið frá þessum
myrkraverkum, flúið inn i sigurdýrð Krists og náð
tigninni, að verða Guðs synir í þjónustu og hlýðni við
Fagnaðarerindi Hans.
En syndaverkin eru talin upp og með því sett okkur
fyrir sjónir, til þess að við fáum sigrast á þeim fyrir
Guðs kærleika og okkaf hlutskipti verði fyrri upprisan.
Réttlæti Jesú afklæðir manninn synd og dauða og
klæðir hann skrúða réttlætisins til eilífs lífs.
Spádómsbók Jesaja endar á þessum orðum: Þvi að
ormur þeirra mun ekki deyja og eldur þeirra ekki
slokkna, — og þeir munu viðurstyggð vera öllu lioldi.
1 Júdasarbréfi segir í 12. versi: Fölnuð tré, ávaxta-
laus, tvisvar dauð, rifin upp með rótum.
Guðs dómar eru allir réttlátir. Hver og einn verður
dæmdur eftir sínum verkum.
Það er óskiljanlegt, að mennirnir, sem Guð hefir skap-
að og búið líf og dýrð í Jesú Kristi, menn, sem hlotið
hafa allar aðstæður, til þess að öðlast þekkingu á Hon-
um, að þeir skuli svo gersamlega láta tælast af höfð-
ingja myrkursins og þannig verða eilíflega fjarri algóð-
um Guði og friðarheimkynnum Hans, — tældir frá Guði
til kvalastaðar fordæmdra.
Forhertir í illum vefkum myrkursins, hafa- þeir dauf-
heyrzt við kallandi náð Guðs og elsku, hugsunarlaust
stefnt að dómi hins annars dauða, sem er allri skelfing
meiri.
Himnaríkið er VERULEIKI, og er okkur opnað með
syndlausu lífi fyrir frelsisverk Guðs Sonarins.
Helvítið er einnig veruleiki, en það er eilíflega sigr-
að. Með pínu sinni og dauða hefir Jesús Kristur sigrað
það. Hans sigur er öllum mönnum til handa, sem til
Hans koma og Hans boðum hlýðnast. Dýrð sé Guði,
þakkir og heiður.
En Guð, sem í fullkominni elsku sinni hefur gefið
okkur möguleika, til þess að erfa allt í sigurdýrð Jesú,
hlaut í réttlátum kærleika að vara okkur börn sín við
öllu óvinarins verki. Svo við metum það eitt, að ganga
friðarsporin með Frelsara okkar. Guð er ekki að hræða
eða ógna með kvölum Helvítis. Guð veit vel, hvað ríki
Satans hefir að bjóða. Þess vegna talar Guð í sínum
kærleika um dýrð sína og sigra til allra jafnt, vondra
sem góðra. Til hinna vondu, svo þeir láti af forherðing
sinni. Til sinna eigin manna, svo þeir elski Hans verk
og virði það eitt, að ganga veg lífsins.
Heilög Ritning varar margsinnis við glötunarvegin-
um, þeim vegi, sem höggormurinn tældi Evu inn á, svo
maðurinn snúi sér að Guðs ráði og þiggi lausnina frá
synd og dauða.
Menn hafa sín vegamerki bæði á sjó og landi og veg-
farendur fara eftir þeim. Geri þeir það ekki, liggur við
refsing eða sekt. En nú hefir Guð sett okkur vega-
merki, er varða okkar sálarvelferð. Svo er okkur í sjálfs-
vald sett, hvernig við bregðumst við, hvort við fótum
troðum þau eða förum eftir þeim í hlýðni.
Synd leiðir til dauða. Þegar syndin er fullþroskuð fæð-
ir hún af sér dauða. Þegar dauðadómur hefir verið upp-
kveðinn, maðurinn hefir daufheyrzt við kalli Guðs Son-
arins, öllu Guðs ráði hefir verið hafnað, það forsmáð
og fyrirlitið, þá verður dómurinn óhjákvæmilega hinn
annar dauði.
Lækningin við syndinni er iðrun og fyrirgefning. Og
fyrir þá, sem halda sér við Guðs ráð, halda sér við
sigurinn yfir synd og dauða, er hinn annar dauði sigr-
aður.
Þú telur þig í söfnuði Krists, í söfnuði trúaðra. Þá
er þitt, að keppa að markinu, er Kristur hefir þér búið
í himinköllun sinni, — þitt að keppa að markinu í synd-
lausu og lýtalausu lífi fyrir Guði, í heilagleika og rétt-
læti.
Kærleikur Guðs knýr okkur, Guðs böm, til þakk-
lætis, þegar við hugsum um þá möguleika, er Guð hefir
okkur búið í endurlausnarverki Jesú, til þess að fá flúið
ógnir synda og dóms og mega hvíla í Guðs náð, fjarri
kvölum dauðans, — og það um alla eilífð, þegar Hann
— Guð kærleikans gaf sinn Eingetinn Son í dauðánn
með BLÖÐI SÁTTMÁLANS, til fyrirgefningar synd-
anna.
Kærleikur Guðs er fullkominn og sannur. Jesús vísar
veginn, Hann er vegurinn heim til Föðurhúsanna. Hann
er dómarinn. Hann útbýtir laununum. Réttlætið er Hans
og sigurinn tilheyrir Honum. Þeir, sem Drottni Jesú
hlýðnast öðlast sigur. í Hans sigri.
Drottinn, lát okkur elska sannleikann.
Jesús segir, hver sem er sannleikans megin, heyrir
mina raust.
Friður Drottins Jesú sé með öllum, er Hann elska.
Guðrún Jónsdóttir.