Fagnaðarboði - 01.02.1989, Side 3
FAGNAÐARBOÐI
1
samkomumar voru haldnar hafi þyrst eftir Sannleikanum.
Einu gilti hvort áheyrendurnir voru börn eða fullorðnir,
henni var fullkomlega ljóst að leiðsla Orðsins væri í hendi
Drottins. Hjá Honum var lykil boðskaparins að fá í
Heilögum Anda. Það var barátta upp á líf og dauða að
fá kröftugan boðskap í Anda Sannleikans og þess vegna
varði hún miklum tíma í föstu og bæn.Þeir sem heyra
Sallý flytja Fagnaðarerindið, finna að boðskapurinn er
lifandi og kröftugt Orð frá Guði sem
swjgur ///// / ms/u /j'/jsM sá/ar oj aur/a ///JaMo/a oj
Merg/ar. (Hebr.j:iaJ
I dag er Sarons Rose falleg stofnun með fimm húsum
sem hafa rúm fyrir meira en 60 börn, auk skólabygging-
ar og skrifstofu fyrir kristniboðið, eldhúss, matsalar,
þvottahúss og síðast en ekki síst stað fyrir neyðarhjálp.
Þegar Sallý Olsen er spurð hvaða leyndardómur liggi
að baki öllu þessu starfí, svarar hún alltaf brosandi:
„Mikil bæn og þrotlaus vinna - og ekki hvað síst, allir
hinir mörgu vinir í Skandinavíu sem biðja fyrir þessu
starfi”.
Nú hefur yngra fólk úr hópi þeirra sem Sallý Olsen
annaðist fyrrum tekið við því verki sem hún byggði
upp á sínum tíma.
Eftir að Sallý fór að eldast, stóð hún fyrir því að
koma upp húsi til að taka á móti utangarðsmönnum,
sem að manna dómi áttu sér ekki viðreisnar von. Nú
eiga yfir sextíu manns þar athvarf og njóta mikillar bless-
unar á þessu nýja heimili sínu. Hver einasti þeirra hefur
gengið Kristi á hönd og sérhver eignast sína eigin Bibl-
íu til að byggjast upp í þekkingunni á Orði Guðs.
Árum saman höfum við Guðrún Jónsdóttir, sem um
50 ára skeið hefur þjónað að boðun Fagnaðarerindis
Jesú Krists og staðið að útgáfu Fagnaðarboða, haft
bréfasamband við Sallý Olsen,
Það hefur verið okkur, ásamt mörgum öðrum systkin-
um í Drottni mikil gleði, að fylgjast með starfi hennar
og mega taka þátt í að koma kærleiksgjöfum til hinna
þurfandi, sem hún ber fyrir brjósti.
Við birtum hér hluta úr bréfi sem við fengum nýlega
og hljóðar eitthvað á þessa leið.
Kæru samverkamenn.
Ég vildi óska að það væri ekki svona langt á milli
okkar, svo ég gæti þrýst hendur ykkar til að þakka
fómargjafirnar og bréfin. Með sendingunum frá ykkur
hefur Herrann aftur og aftur staðfest sitt fyrirheit sem
Hann gaf mér fyrir mörgum árum:
AÍ/ö/sÆ/ó/au sÆa/ eÆÆJ /o'm rereJa og o/mia / Æn/s/m:
eÆÆ//ryó/a. (i.Kon./y.rj)
Og Hans heilaga Orð stendur stöðugt um eilífð. Hjart-
ans þakkir fyrir allt. Vissulega er það náð, já einungis
af náð, að við megum vera Hans samverkamenn.
Þr/ aó Guós saMrerÆaMeuu er/uu re'r; Guós aÆur/eui//,
Guós /u/s eruó /e'r. (i.Kor.j.y)
Páll postuli skrifar um samverkamenn sína í Kristi
Jesú, þá sem elska Sannleikann og þjóna Honum. í
Biblíunni er fjöldi tilvitnana um samverkamenn Krists,
sem okkur er einnig boðið að vera. Herrann Jesús mun
af náð sinni birta og kunngjöra börnum sínum það
verk sem Honum þóknast að úthluta hverju þeirra.
Svo langar mig að bera bestu kveðju til samstarfs-
manna ykkar. Ég þakka enn og aftur fyrir sendingarnar
sem urðu til þess að við gátum keypt Biblíur, þær eru
í stöðugri notkun og Guð gefur visku og vöxt í Orði
sínu.
Að þessu sinni langar mig að segja lítillega frá óham-
ingjusömum manni sem var illa á sig kominn af eitur-
lyfjaneyslu.
Aðframkominn barði hann að dyrum á tveimur endur-
hæfingarstöðvum fyrir eiturlyfjaneytendur, en var sagt
að því miður væri hvert rúm skipað og dyrum síðan
lokað. Honum fannst hann ekki geta lifað lengur, en
ráfaði örþreyttur eftir veginum, niðurbrotinn og veikari
en nokkru sinni fyrr. Þá stöðvast allt í einu bifreið og
ökumaðurinn ávarpar hann hlýlega: „Ég er kristinn,
mig langar að aka þér heim til þín”. Maðurinn muldr-
aði að hann ætti hvergi heima. „Aðeins að ég gæti feng-
ið einhvers staðar skjól, það er sama hvar er”, tautaði
hann og steig svo upp í bílinn. Bifreiðarstjórinn fór
með hann á nýja heimilið til Sallýjar þar sem hann fékk
kærleiksríkar móttökur. Um kvöldið var hann á sam-
komu sem haldin var á heimilinu. Þar tók hann við
boðun Orðsins í trú og frelsaðist til nýrrar sköpunar,
fyrir fórnarverk Drottins Jesú Krists.
Öllum til gleði starfar hann nú á heimili okkar og
komið hefur í ljós að þar er mikill hæfileikamaður.
Hann er lærður útvarpsvirki og kemur það sér einkar
vel í þeim þætti boðunar Fagnaðarerindisins, sem sent
er út á öldum ljósvakans.
En þar er komið að enn einum starfsvettvangi Sallýj-
ar. Effirfarandi frásögn er eitt dæmi þess.
Don Rogelio var alinn upp í sárri fátækt. Þrettán ára
að aldri varð hann ásamt fjórum bræðrum sínum að
yfirgefa heimilið, fara til borgarinnar og sjá um sig sjálf-
ur. Hundruðir barna leita sér þar fæðu í sorptunnum
og mörg þeirra leiðast út í að stela sér til matar.