Fagnaðarboði - 01.01.1990, Blaðsíða 8

Fagnaðarboði - 01.01.1990, Blaðsíða 8
8 FAGNAÐARBOÐI hellti Anda sínum yfir mig. Með fyllingu Hans öðlaðist ég nýjan og dýpri skilning í andlegum efnum og nán- ara samfélag við Drottin minn og Frelsara, Jesúm Krist. Þótt segja mætti um hjónaband okkar að það héngi á bláþræði, þá vonaði ég í lengstu lög að því yrði bjarg- að. Síðustu böndin brustu svo í mars árið 1974. Þá fannst mér, að ég hefði misst allt sem mér var kærast og ég stæði aleinn uppi í heiminum. En samt sem áður átti ég það dýrmætasta sem til er í lífinu - Hjálpræði Guðs í Jesú Kristi - og það gat enginn tekið frá mér. Guð hélt áfram að auðga mig af náð og elsku sinni. Tveimur árum síðar kvæntist ég aftur, að þessu sinni endurfæddri konu sem þráir af hjarta að starfa Guði sínum til dýrðar. Við leggjum okkur bæði fram í þjón- ustunni við Hann og notum þau tækifæri sem gefast til að vitna um elsku Guðs í Kristi. Heilsa mín er betri í dag en fyrir 20 árum. Dýrð sé Drottni mínum og Frelsara! Að Hans vilja hætti ég störf- um við blikksmíðar, en hef snúið mér að fornsölu, sem Hann blessar ríkulega, eins og allt sem við tökum okk- ur fyrir hendur. A sínum tíma þegar Guð lét jarðskjálfta koma, til að opna fangelsisdyrnar í Filippí fyrir Páli og Silasi, þá sló miklum ótta yfir fangavörðinn. Flann hélt að band- ingjarnir sem hann átti að gæta væru flúnir og hugðist taka af sér lífið. En Páll og Silas komu í veg fyrir það og sýndu honum fram á, að máttur Drottins stóð að frelsun þeirra. Fangaverðinum fannst mikið til um svo voldugan Guð. Og /aw/ i>að ///// //o's og s/öÆÆ ///// ogfeZ/ of/as/efo// f/Zfó/a Pá/Z og SZ/as/ 00 /e/áá/ pá á/ og saf/: Herrar, /rað á eg að g/öra, /áþess að eg rerð/ /jö/páz//? E// þe/r sögðz/: Tráþá á Droffz// Jesá///, ogþá ///////f rerða /jö/p- ///// og /jez///á/ þzf/. (Pos/. /ö/ap-jz) Eg hef tengið að þreifa á hve Guð er trúfastur og stendur við fyrirheiti sín hvað okkur mennina varðar. Almennar samkomur Boðun Fagnaðarerindisins Hörgshlíð 12, Reykjavík Sunnudaga kl. 8 e.h Miðvikudaga kl. 8 e.h. í dag eru nær öll börn okkar, makar þeirra og barna- börn frelsuð. I kærleika sínum knýr Drottinn mig til þjónustu sinnar, Hann minnir stöðugt á hve brýn sálarheill allra manna er - hið eina nauðsynlega. Þess vegna legg ég mig fram í trú og leitast við að ávinna Honum sálir til eilífa lífs- ins. Vissulega vinnur Guð enn sem fyrr, með kærleiks- krafti sínum. Hann hefur auðsýnt langlundargeð elsku sinnar, mér sem var svo seinn að meðtaka fórnarverk Jesú Krists og tregur að trúa því mér til sáluhjálpar, að það kostaði mig næstum lífið. Lauslega þýtt og endursagt úr tímaritinu Voice Vitnisburður Jesús kom frá himni og vann fullkomið hjálpræðis- verk öllum mönnum til handa. . Jesús Kristur er Frelsari okkar frá synd og dauða, Hann er læknirinn sanni, eins og segir í Biblíunni. Og Jesás fðr r/ðsregar ///// aáa Ga/áez/ og Æe/zá/ z' sa/z/- h///á/áj//s/////þe/rra ogpréá/Æað/Fag//aðar/zoðsÆapz///i ///// R/'Æ/ð, og ZaÆ/zað/ Z/rers Æo/zar fáÆáo'/// og /zrers Æo/zar ÆrazzÆ/e/Æa ///eða/ /Jðsz/zs. (Maffg:2j) Jesús er kærleiknrinn, langlmdaður, góðviljaðnr og Jer ekki í manngreinarálit. Hann reisir okkur npp þótt við séum lítil í trúnni, en hvetur alla til trúar. A reynslustundu missti ég vonina, þjáð á líka?na og sál. Eg var vanþakklát við ástvini mína sem ónnuðust mig af nœrfœrni og þolinmceði í veikindum mínum. En Drottinn lét mig ekki afskiptalausa. Hann gaf dóttur minni skilning og kraft til að uppön/a mig og vakti mig þannig upp að njju, gaf mér von sem varð að vissu um, að Hann mundi lœkna mig. Eg iðraðist framkomu minnar við Guð og menn og bað Hann að fyrirgefa mér. Einnig bað ég Hann að gefa mér að lifa með Honum, órugg í von og trú, samferðarfólki mínu til gleði og styrktar. Nú er ég lceknuð, fyrir náð Drottins Jesú Krists sen/ huggar yfir sérhverja þrengingu og gefur okkur fógnuð í sér. Fyrir það vil ég þakka og flytja Honum lof og dýrð. Sigríður Sigurgeirsdóttir. Gefið út at Sjálfseignarstofnun Hafnarfirði. Af- greiðsla Fagnaðarboða er að Hverfisgötu 6B Hafnar- firði, sími 50077. - Ársgjald blaðsins 120 kr., en ein- takið 40 kr. 3 blöð koma út á ári. 1. tbl. 1990 43. árg.

x

Fagnaðarboði

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fagnaðarboði
https://timarit.is/publication/1103

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.