Víkurfréttir


Víkurfréttir - 20.12.2012, Qupperneq 4

Víkurfréttir - 20.12.2012, Qupperneq 4
fimmtudagurinn 20. desember 2012 • VÍKURFRÉTTIR4 Jólablað II PÁLL KETILSSONvf.is Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 Krossmóa 4, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is Jón Júlíus Karlsson, jjk@vf.is, GSM 849 0154 Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is Víkurfréttir ehf. Þórgunnur Sigurjónsdóttir, sími 421 0006, thorgunnur@vf.is Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006 Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0000, rut@vf.is og Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is Landsprent 9000 eintök. Íslandspóstur www.vf.is, m.vf.is og kylfingur.is Útgefandi: afgreiðsla og ritstjórn: ritstjóri og ábm.: fréttastjóri: blaðamenn: auglýsingadeild: umbrot og hönnun: auglýsingagerð: afgreiðsla: Prentvinnsla: uPPlag: dreifing: dagleg stafræn Útgáfa: RITSTJÓRNARBRÉF Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. aðsendar greinar birtast á vef Víkur-frétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prent- aðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta. Ljós og sKUggI á jóLUm Jólin eru ekki bara fæðing- arhátíð frelsarans og trúar- legs eðlis þegar mörg okkar fara í jólamessu. Jólin eru líka tími til að verja með fjölskyldunni. Hátíð ljóss og friðar og ljúfra stunda. Við ræðum um gjafirnar, matinn, smákökurnar og jólafríið og allt sem tilheyrir þessum yndislega tíma. Allir vilja eiga gleðileg jól. Vissulega er þetta ekki veruleikinn hjá öllum. Fréttir um að það séu margfalt fleiri sem leiti til hjálparstofnana og hvers kyns aðila sem hjálpa þeim sem minna mega sín, eru sláandi. Velferðarsjóður Suðurnesja sem stofnaður var eftir bankahrun hefur síðan þá sinnt þessu hlutverki mjög vel og látið skjólstæð- inga sína fá gjafakort sem gilt hafa í verslunum á Suðurnesjum. Gert þeim þannig lífið léttara á erfiðum tímum. Fjölmargir aðilar, fyrirtæki, félaga- samtök, stofnanir og einstaklingar hafa komið Velferðarsjóði til aðstoðar með ýmiskonar framlögum og er það vel. Það er mikilvægt að þeir sem standa styrkari fótum í samfélaginu hugi að þeim sem minna mega sín. Það er alltaf mikil- vægt en aldrei eins mikil- vægt og á jólum. Það skal einnig þakkað að fjölmargir einstaklingar leggja fram vinnufúsar hendur í sjálf- boðaliðastörf á þessum vettvangi. Þrátt fyrir slæmar fréttir af atvinnu- ástandinu hér á Suðurnesjum þá er margt skemmtilegt í gangi. Vaxtasp- rotar hér og þar. Ekki bara svartnætti, langt frá því. Ekki má heldur gleyma því að yfir 90% Suðurnesjamanna hafa atvinnu. Atvinnuleysi á Spáni og víðar er um 25%. Það er þó ekk- ert launungarmál að við viljum sjá tölu um fjölda atvinnulausra lækka. Atvinnuleysi er böl. Leiðarahöf- undur ræddi við sextugan atvinnu- lausan einstakling hér á svæðinu sem hafði haft vinnu alla sína tíð. Þessi maður sagði að það sem væri erfiðast við atvinnuleysið væri einsemdin. „Maður verður einhvern veginn svo afskiptur, svo einn,“ sagði hann. Atvinnuleysið verður því ekki bara peningalegt vandamál heldur félagslegt. Þess vegna hlýtur það að vera forgangsverkefni stjórnvalda að taka á þessari meinsemd. Gera umhverfinu og samfélaginu kleift að vaxa á nýjan leik. Koma þannig hjólum atvinnulífsins í fullan gang án þess þó að allt fari á annan endann í einhverri vitleysu eins og gerðist í góðærinu. Ekki er ólíklegt að þetta verði stærsta málið þegar gengið verði til kosninga til Alþingis í vor. Jólaljósin í Reykjanesbæ eru ótrúlega mörg og hús Suðurnesjamanna eru fallega skreytt. Lýsa upp skamm- degið sem frá og með morgundeg- inum gefur eftir þegar daginn fer að lengja. Við skulum vona að ljósið fari að verða skammdeginu sterkara í samfélaginu okkar á nýju ári. Starfsmenn Víkurfrétta senda les- endum og Suðurnesjamönnum öllum bestu óskir um gleðilega jólahátíð. Klapp, Klapp út! Skólinn er ein af grunnstoðum samfélagsins og grunnþáttur velferðar þess. Mikilvægi þeirra í undirbúningi framtíðarþegna þjóðfélagsins er gífurlegt. Skóla- starf á að miða að framförum og vellíðan nemenda sinna. Metn- aður, áhugi og vilji til góðra verka þarf að endurspegla skólastarfið allt. Þegar ég tala um skólastarf á ég vissulega við það starf sem fer fram innan alls skólasam- félagsins þ.e. skólans, heimilisins og allra þeirra sem bera ábyrgð á menntun þeirra einstaklinga sem koma til með að erfa landið og lifa í íslensku framtíðarsamfélagi. Velferð barna skal höfð að leiðar- ljósi í öllu því starfi sem fram fer innan sem utan skólanna. Menntun felur í sér samstíga skólasamfélag sem rær í sömu átt. Grunneiningin, fjölskyldan, ræður samkvæmt rannsóknum um 70-80% af árangri og líðan barnanna. Þar með gefur að skilja að tengsl heimilisins við skólann, vilji þeirra til árangurs og metn- aður gagnvart menntun skiptir sköpum. Úttekt á starfi grunn- skólans í sandgerði Nú nýverið gaf Mennta- og menn- ingarmálaráðuneytið út skýrslu um starf Grunnskólans í Sandgerði eftir úttekt sem gerð var á skólanum. Rauði þráðurinn í skýrslunni er að efla þurfi tengsl aðila skóla- samfélagsins og skilning á mikil- vægi menntunar. Með þessum skrifum óska ég enn og aftur eftir frekari þátttöku foreldra í skóla- starfinu. Grunnskólinn í Sandgerði er Heilsueflandi skóli sem leggur metnað sinn í að ala af sér ham- ingjusama, heilbrigða og hrausta einstaklinga, bæði líkamlega og andlega. Skólastarf sem miðar að heilsueflingu stuðlar að góðri heilsu og líðan nemenda og starfsfólks. Áhersla á bættan námsárangur nemenda er greinileg sem og örvun til þátttöku og ábyrgðar með virð- ingu fyrir lýðræðislegum vinnu- brögðum. Einnig er mikil áhersla á að efla nemendur í félagslífi og virkri þátttöku í samfélaginu. Með þessum áherslum erum við Sand- gerðingar að tengja saman heilsu- og menntamál og efla heilsu og vellíðan nemenda og starfsfólks skólans í samvinnu við foreldra og bæjarstjórn. Heilsueflingin fléttar heilsumálin saman við daglegt skólalíf, námskrá og árangursmat. Þegar öllu er á botninn hvolft er það sjálfsvirðing, þrautseigja, vilji og hamingja sem kemur okkur áfram í lífinu. Við viljum vinna að því að einstaklingar sem útskrif- ast úr Grunnskólanum í Sandgerði standi jafnfætis jafnöldrum sínum, trúi á sjálfa sig og viti hvernig þeir eigi að geta verið besta útgáfan af sjálfum sér með hraustan líkama og heilbrigða sál. Þetta getum við gert saman. Viltu með í leikinn þramma? Þetta gerir skólinn ekki einn. Fjöl- miðlar, foreldrar, samborgarar og yfirvöld þurfa að huga að því að efla unga fólkið til dáða. Horfa á það sem gengið hefur vel og gefa börnum okkar von um að það sé einhvers virði að huga að árangri sínum í námi og styrkja sjálfsmynd þeirra svo þeir geti staðið með sjálfum sér í síbreytilegu samfélagi. Hættum neikvæðri umræðu um Suðurnesin. Hefjum okkur upp yfir umræðuna og horfum á það sem vel gengur. Mikil framþróun hefur orðið í rannsóknum á högum og líðan skólabarna sem byggir á gögnum Rannsóknar og Grein- ingar. Upplýsingarnar komnar frá börnunum sjálfum. Gögnin hafa aðstoðað þá sem vinna með börnum að finna leiðir til að bæta árangur, auka vellíðan og skoða hvernig megi koma til móts við þarfir komandi kynslóða. Við Ís- lendingar getum verið stolt af því barnvæna umhverfi sem við búum í. Rannsóknir sýna að ung- lingar byrja seinna að drekka nú en fyrir 15 - 20 árum, reykingar hafa minnkað og börnum líður betur auk þess sem þau eyða fleiri stundum með foreldrum sínum í frítíma sínum nú en áður fyrr. Þessi þróun er einstaklega jákvæð og eitt- hvað sem við þurfum að horfa til. Við eflum börnin okkar með sam- ræðum, stuðningi og áhuga á lífi þeirra og störfum. Stöndum saman um hag barnanna, vinnum saman að velferð þeirra. Áhrifavaldar í lífi barna og ungmenna eru fjöl- skyldan, skólinn og nærumhverfið. Eflum tengslin, minnkum tímann fyrir framan skjái, hreyfum okkur, verum kröfuhörð á næringarríkar máltíðir, hugleiðum og njótum augnabliksins. Með von um samstíga samfélag! Fanney Dóróthe Halldórsdóttir, skólastjóri Grunn- skólans í Sandgerði Stu tta r Tveir ungir piltar teknir við innbrot Lögreglan á Suðurnesjum handtók í síðustu viku tvo unga pilta, sem staðnir höfðu verið að því að brjótast inn í bíla og stela úr þeim. Piltarnir, sem eru þrettán og fjórtán ára, höfðu í þetta skiptið komið að ólæstri bifreið og voru að fjarlægja muni úr henni þegar lögreglan kom á vettvang. Við yfirheyrslur játuðu þeir að hafa brotist inn í bíla og selt þýfi það sem þeir höfðu haft upp úr krafsinu. Barnaverndarnefnd var tilkynnt um málið. Neytti fíkniefna- kokteils Lögreglan á Suðurnesjum handtók ökumann á fertugsaldri sem reyndist hafa neytt fjögurra tegunda af fíkniefnum. Sýnatökur stað- festu neyslu á amfetamíni, metamfetamíni, kókaíni og kannabis. Hann hafði áður verið sviptur ökuréttindum. Þá stöðvaði lögreglan för tvítugs ökumanns sem var réttindalaus. Fjórir ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur í vikunni og númer klippt af tveimur bifreiðum þar sem þær voru ótryggðar. Kannabisræktun í Reykjanesbæ Í húsleit sem lögreglan á Suðurnesjum gerði í húsnæði í Reykjanesbæ í vikunni, að fenginni leitar- heimild, var lagt hald á tugi kannabisplantna og búnað. Mikla kannabislykt lagði út úr húsinu, þegar lögreglumenn fóru þar inn. Kannabisplönt- urnar voru ræktaðar í tveimur herbergjum húsnæðisins. Tveir einstaklingar, karlmenn á þrítugs- og fimmtugsaldri voru handteknir vegna málsins og þeir færðir á lögreglustöð. Þeim var sleppt að loknum skýrslu- tökum. Málið telst upplýst.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.