Víkurfréttir - 20.12.2012, Side 22
fimmtudagurinn 20. desember 2012 • VÍKURFRÉTTIR22
Jólablað II
Skrifstofustarf
Airport Associates leitar eftir starfsmanni í fullt starf á skrifstofu fyrirtækisins
á Keflavíkurflugvelli. Við leitum af jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingi
sem hefur opinn hug til að takast á við fjölbreytt verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun kostur
• Góð enskukunnátta, bæði rituð og töluð, skilyrði
• Bókhaldsþekking
• Haldgóð almenn tölvukunnátta s.s. Excel, Word og Powerpoint
• Sjálfstæð, skipulögð og vönduð vinnubrögð
• Frumkvæði og metnaður í starfi
Starfssvið:
• Bókhaldsstörf
• Innkaup
• Uppgjörsvinna
• Önur tilfallandi skrifstofustörf
Starfsemi Airport Associates tekur til allrar þjónustu við farþega og fraktflugvélar svo sem hleðslu flugvéla sem og
annarar þjónustu á flughlaði, farþegainnritunar, hleðslueftirlits og alls þess er lítur að flugvélaafgreiðslu. Meðal
viðskiptavina okkar eru: British Airways, Cargolux, Delta Airlines, UPS, Air Berlin, Germanwings, Bluebird Cargo, Fly
Niki, First Choice Airways, WOW air, Primera Air, easyJet, Norwegian, Baseops Europe, Avcon, Transavia, Corendon,
MNG Airlines, Volga Dnepr, Airbridge, ABX air og fleiri félög.
Áhugasamir sæki um starfið á heimasíðu fyrirtækisins,
www.airportassociates.com. Nánari upplýsingar gefur
Telma Dögg Guðlaugsdóttir, telma@airportassociates.com.
Umsóknarfrestur er til 7. janúar 2013.
SKATA Í STAPA
21. DESEMBER
ásamt öðrum frábærum réttum
kr. 3.700,-
Lionsklúbbur Keavíkur og Örn Garðars hafa tekið sig
saman að sjá um skötuhlaðborð. Hluti af matarverði
gengur til góðgerðarmála.
Húsið opnar kl. 11:30 – 14:30, borðapantanir
í síma 421-7646, 692-0200 eða á www.soho.is
GJAFAKORTIN ERU
FRÁBÆR JÓLAGJÖF
GILDA Í VERSLANIR Í REYKJANESBÆ
Hið sögufræga hús „Stóra milljón“ við Hrannargötu í Keflavík mun
brátt hverfa sjónum bæjarbúa en þessa
stundina er verið að jafna húsið við jörðu.
Samkvæmt upplýsingum Víkurfrétta þá
var síðasti eigandi hússins Lífeyrissjóður
starfsmanna sveitarfélaga. Lengst af var
Hraðfrystihús Keflavíkur hf. starfrækt í
húsinu sem var lengi vel með afar farsælan
rekstur og stór hluti af bæjarlífinu.
Eins og meðfylgjandi myndir bera með sér
er lítið eftir af þessu stóra húsi og fer hver að
verða síðastur að bera það augum en Viðar
Ellertsson verktaki sér um verkið.
VF-mynd: Eyþór Sæmundsson
Sögufrægt hús jafnað við jörðu
Gleðilegajólahátíð!
Staða Fjölbrautaskóla Suðurnesja hefur verið
tryggð eftir að menntamála-
ráðherra samþykkti í fyrra-
dag að veita skólanum fjár-
veitingu sem er sambærileg
því sem að aðrir framhalds-
skólar landsins fá.
Fyrir lá að skólinn gæti ekki
haldið rekstri í sama horfi
miðað við fjárveitingu úr
fjarlögum án þess að fækka
nemendum um 200 og einnig
starfsfólki um 12-14. Kristján
Ásmundsson, skólameistari FS,
sagði í samtali við Víkurfréttir í
október að skólinn þyrfti að fá
um 70 milljóna aukafjárveit-
ingu til að geta rekið skólann
líkt og undanfarin ár.
Ragnheiður Elín Árnadóttir,
þingmaður Sjálfstæðisflokks-
ins í Suðurkjördæmi, vakti
athygli á þessum málalokum í
ræðu á Alþingi í gærmorgun.
Ragnheiður hrósaði Katrínu
Jakobsdóttur, menntamála-
ráðherra, fyrir að hafa tryggt
stöðu FS.
„Ég vil þakka hæstvirtum
ráðherra sérstaklega fyrir að
höggva á hnút í þessu máli og
vona svo sannarlega að þetta
verði til að efla skólastarfið í
Fjölbrautaskóla Suðurnesja
og tryggja þeim nemendum
sem þarna um ræðir farsælan
skólaferil á komandi mán-
uðum,“ sagði Ragnheiður.
FS Fær aukna Fjárveitingu
- Staða SkólanS tryggð