Víkurfréttir


Víkurfréttir - 20.12.2012, Page 45

Víkurfréttir - 20.12.2012, Page 45
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 20. desember 2012 45 Jólablað II OPNUNARTÍMAR YFIR JÓL OG ÁRAMÓT BÆJAR- SKRIFSTOFUR Bæjarskrifstofur verða lokaðar aðfangadag, jóladag og annan dag jóla. Opnað verður kl. 10:00 fimmtudaginn 27. desember. Lokað verður 2. janúar en skrifstofurnar opna aftur 3. janúar kl. 09:15. Þjónustuborð Þjónustumiðstöðvar er opið allan sólarhringinn, sími 420 3200. 112 – þegar áhyggjur eru af líðan og umönnun barna. Barnavernd Reykjanesbæjar vill minna á að hægt er að tilkynna til barnaverndarnefndar í gegnum 112 ef áhyggjur eru af því að barn búi við óviðunandi uppeld- isaðstæður, að það verði fyrir áreitni eða ofbeldi eða að heilsu þess og þroska sé stefnt í alvarlega hættu. Bókasafn Reykjanesbæjar Lokað á Þorláksmessu, aðfangadag, jóladag, annan dag jóla, gamlársdag og nýársdag. Annars gildir hefðbundinn opnunartími. Opnað miðvikudaginn 2. janúar kl. 10:00. Vatnaveröld – Sundmiðstöð Opið Þorláksmessu frá kl. 08:00 – 16:00 Lokað aðfangadag, jóladag og annan dag jóla. Opið gamlársdag frá kl. 06:45 – 10:30. Lokað nýársdag. Að öðru leyti venjulegur opnunartími. Innileikjagarðurinn Lokað frá 15. desember til 5. janúar. Á nýju ári verður opið um helgar frá kl. 14:30 – 16:30. Tekið við bókunum fyrir afmælisveislur frá 4. janúar 2013 í síma 898 1394. Íþróttamiðstöð við Heiðarskóla, Myllubakkaskóla og Akurskóla. Reykjaneshöll, íþróttahús Sunnu- braut og Njarðvík. Lokað Þorláksmessu, aðfangadag, jóladag, annan í jólum, gamlársdag og nýársdag. Skessan í hellinum Lokað Þorláksmessu, aðfangadag, jóladag, annan dag jóla, gamlársdag og nýársdag. Annars opið frá kl. 10:00 – 17:00. Duushús og Víkingaheimar Lokað verður frá og með 23. desember til 2. janúar 2013. NÝTT OG BETRA STRÆTÓKERFI 2013 Kynnið ykkur nýtt leiðakerfi á vefsíðu Reykjanesbæjar www.reykjanesbaer.is og www.sbk.is Hafnargötu 21 - Sími: 421 1011 - www.skart.is JÓLAGJÖFIN ER... Svindlarar enn á ferð Enn eru brögð að því að hringt sé í fólk og reynt að plata út úr því fjármuni. Lög- reglunni á Suður- nesjum barst til- kynning af þessum to g a , þ a r s e m hringt var í konu í umdæminu frá „tækniþjónustu tölvufyrirtækis.“ Hringjandi bað hana um að prófa ýmislegt á netinu, gefa upp ýmsar stillingar og fleira í þeim dúr. Þegar samtalið hafði staðið í um það bil klukkustund, vildi hringj- andinn að konan færi að borga sér. Hún bað hann þá vel að lifa og lagði á. Fleiri svipuð mál hafa verið tilkynnt til lögreglunnar á Suðurnesjum að undanförnu. Full ástæða er til að vara við at- vikum af þessu tagi og hefur emb- ætti Ríkislögreglustjóra margsinnis sent út viðvaranir af slíkum til- efnum. Föstudaginn 21. desember verður Skötuhlaðborð ung- lingaráðs Víðis haldið í Sam- komuhúsinu í Garði. Skötuhlað- borðið er árlegur viðburður sem mörgum þykir ómissandi hluti af jólahátíðinni. Í fyrra mættu hátt í 300 gestir sem skemmtu sér vel og nutu vel kæstrar skötunnar og úr- vals sjávarfangs úr Garðsjónum. Á boðstólum er meðal annars að finna saltfisk, plokkfisk, siginn fisk að ógleymdri skötunni ásamt til- heyrandi meðlæti. Verðinu er stillt í hóf og kostar aðeins 2500 kr. á manninn. Hádegishlaðborðið er opið milli 11:00 og 13:30 og kvöldborðið milli 17:30 og 21:00. Skötuhlaðborð í Garði

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.