Víkurfréttir - 01.03.2012, Side 7
7VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUdagUrInn 1. Mars 2012
Vertu í góðu sambandi við Víkurfréttir!
n Auglýsingadeild í síma 421 0001
n Fréttadeild í síma 421 0002
n Afgreiðsla í síma 421 0000
Við erum ÞAKKLÁT
fyrir að eiga ánægðustu viðskiptavini orkuveitna árið 2011
í 9. skipti á síðustu 10 árum
Hver er þinn raforkusali?
HS Orka hf
hsorka.is hs@hs.is 2011
Rauði kross Íslands
Suðurnesjadeild
Aðalfundur
Aðalfundur Rauða kross Íslands
Suðurnesjadeildar verður haldinn
fimmtudaginn 8. mars 2012 kl. 20:00 að
Smiðjuvöllum 8, Reykjanesbæ.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf
Kaffiveitingar
Önnur mál
Hvetjum alla Rauða kross félaga til að mæta
og taka þátt í starfi deildarinnar
Rauði kross Íslands
Suðurnesjadeild
Flóamarkaður
Föstudaginn 2. mars nk., verður haldinn
flóamarkaður að Smiðjuvöllum 8,
Reykjanesbæ, frá kl. 13:00 – 16:30.
›› Reykjanesbær:
Lögreglan á Suðurnesjum stað-festi í samtali við Víkurfréttir
að þessa dagana væri töluvert um
innbrot í Reykjanesbæ. Bæði væri
verið að brjótast inn í heimahús
víða í bænum og eins er talsvert
um það að farið sé inn í bíla. Vildi
lögreglan af því tilefni brýna fyrir
fólki að huga vel að heimilum
sínum og tryggja það að skilja
ekki eftir opna glugga og læsa
hurðum.
Svo virðist sem að þjófarnir, en ekki
liggur fyrir hve margir þjófar eru á
ferð, eða hverjir séu að verki, brjót-
ist inn á öllum tímum sólarhrings-
ins og eru dæmi um að þeir komi
inn um hábjartan daginn jafnt sem
á nóttunni.
Guðmundur Sigurðsson hjá rann-
sóknarlögreglunni segir að ekki
séu bein tengsl milli innbrota í
bíla og inn á heimili fólks. Hann
sagði að það væri meira um inn-
brot í heimahús og augljóslega eitt-
hvað sem er að freista innbrots-
þjófa þessa stundina. Hann hvetur
fólk því til að huga vel að öllum
forvörnum og í hvert skipti sem
heimilið sé yfirgefið þá eigi helst að
læsa öllum gluggum og hurðum.
Verðmæti í bílum skal helst geyma
í farangursgeymslu eða færa hluti
úr augsýn.
Fyrir skömmu var m.a. brotist inn
á heimili í Reykjanesbæ þar sem
stolið var fartölvu, Playstation-
tölvu, karlmannsarmbandsúri og
farsíma. Það mál er enn óupplýst.
Þann sama dag var brotist inn á
bílaleigu hér á svæðinu en sá þjófur
náðist í Reykjavík skömmu síðar.
Svo í síðustu viku voru þrír aðilar
Mikið um innbrot
handteknir í Innri-Njarðvík eftir
að þeir höfðu látið greipar sópa í
heimahúsi. Höfðu þjófarnir á brott
með sér hvorki meira né minna en
þvottavél og þurrkara sem þeir báru
einfaldlega á milli húsa. Til þeirra
sást í flutningunum og í framhaldi
voru þeir handteknir. Einnig var
brotist inn í einbýlishús bæði í
Njarðvík og Keflavík sama daginn
og m.a. stolið þaðan fartölvum.
Lögreglumaður á frívakt kom að
tveimur innbrotsþjófum í síðustu
viku sem voru að skríða inn um
glugga í Innri-Njarðvíkurhverfi og
honum tókst að hafa hendur í hári
þeirra. Þjófarnir höfðu þar m.a. far-
tölvu og úr upp úr krafsinu en þeir
munir hafa verið endurheimtir.
Einn af þeim þjófum var viðloðinn
annað innbrot sem taldist upplýst.
En þó eru ekki öll málin sem hafa
verið að koma upp að undanförnu
upplýst og lögregla vinnur hörðum
höndum að því að leysa málin.
Lögreglan hafði fyrir skömmu af-
skipti af ökumanni seint að kvöldi
til en háttalag mannsins þótti lög-
reglunni grunsamlegt. Fékkst leyfi
til leitar í bíl mannsins og þar fannst
verkfæri sem notað hafði verið við
innbrot í FS fyrir einhverju síðan.
Það leiddi lögregluna á slóð sem
varð til þess að við húsleit hjá við-
komandi aðila fundust munir úr
fleiri innbrotum. Það mál er enn í
rannsókn.
Auk þess ber að taka það fram
að tölva, sem stolið var í innbroti
í Fjölskylduhjálp Suðurnesja um
síðastliðin jól, er nú komin í leit-
irnar en lögregla fékk ábendingu
um mann sem hafði tölvuna í sinni
vörslu. Maðurinn sagðist ekki vita
hver hefði látið honum hana í té en
sagðist hafa keypt hana.