Víkurfréttir - 07.02.2013, Page 3
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 7. febrúar 2013 3
Það voru stoltir starfsmenn Fríhafnarinnar sem tóku við starfsmenntaverðlaunum Samtaka
aðila í ferðaþjónustu (SAF) 2013.
Markviss stefna er innan Fríhafnarinnnar í mannauðs-, jafnréttis- og fræðslumálum starfs-
manna og mikill metnaður er lagður í fræðslustarfið, m.a. í gegnum Fríhafnarskólann. Það er
ein af forsendum þess að Fríhöfnin var valin eitt af fyrirmyndarfyrirtækjum ársins 2012. Í
umsögn dómnefndar SAF kemur fram að ,,stjórnendur leggi mikinn metnað í allt fræðslustarf
starfsmanna. Hugað er að vellíðan starfsfólks á vinnustað bæði með námskeiðum af ýmsu
tagi auk þess sem nám og þjálfun starfsmanna er metið til launahækkana”.
Starfsfólk Fríhafnarinnar þakkar viðurkenninguna.
Fríhöfnin hlaut
Starfsmenntaverðlaun SAF 2013
.