Víkurfréttir - 07.02.2013, Side 4
fimmtudagurinn 7. febrúar 2013 • VÍKURFRÉTTIR4
Hilmar Bragi Bárðarsonvf.is
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Krossmóa 4, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000
Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is
Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is
Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is
Jón Júlíus Karlsson, jjk@vf.is, GSM 849 0154
Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is
Víkurfréttir ehf.
Þórgunnur Sigurjónsdóttir, sími 421 0006, thorgunnur@vf.is
Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006
Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0000, rut@vf.is
og Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is
Landsprent
9000 eintök.
Íslandspóstur
www.vf.is, m.vf.is og kylfingur.is
Útgefandi:
afgreiðsla og ritstjórn:
ritstjóri og ábm.:
fréttastjóri:
blaðamenn:
auglýsingadeild:
umbrot og hönnun:
auglýsingagerð:
afgreiðsla:
Prentvinnsla:
uPPlag:
dreifing:
dagleg stafræn Útgáfa:
RITSTJÓRNARBRÉF
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir
kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka
smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á
þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá
færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring.
Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á
vef Víkur-frétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prent-
aðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það
birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
sjónvarp af suðurnesjum
Sjónvarpið er áhugaverður
miðill. Lifandi myndir, tal
og tónar. Ör tækniþróun á
síðustu árum og jafnvel bara
misserum bendir til þess að
sjónvarpið ætli ekki að víkja
fyrir tölvum og netinu. Netið
er hreinlega komið í sjónvarps-
tækið og nú er flatskjárinn
í stofunni að verða marg-
miðlunarstöð heimilisins. Efnið sem
sjónvarpsstöðvarnar sjálfar senda ekki
út sækir fólk bara sjálft á myndveitur
eins og YouTube eða Vimeo, svo eitt-
hvað sé nefnt. Myndbandaleigurnar
í sinni gömlu mynd eru að hverfa en
þess í stað er leigan komin í mynd-
lykilinn eða á netið eins og Suður-
nesjafyrirtækið Filma.is býður.
Fólk sækist í íslenskt efni að horfa
á. Í flóru sjónvarpsstöðvanna sem
má nálgast í gegnum myndlykilinn
eru tvær alíslenskar, þ.e. stöðvar sem
framleiða bara sitt eigið íslenska sjón-
varpsefni. Þetta eru norðanstöðin N4
sem einbeitir sér að sjónvarpsefni frá
Norður- og Austurlandi. Hin stöðin
er ÍNN, spjallþáttastöð sem er
krydduð með matreiðslu- og
garðyrkjuþáttum í bland við
fræðslu um golf og tækni.
Þegar sá sem þetta skrifar fær
valdið yfir fjarstýringunni
á heimilinu er alltaf skipt
á N4 eða ÍNN, því þar er
íslensk dagskrá allan sólar-
hringinn. N4 endursýnir
sína dagskrá á klukkustundar fresti
og ÍNN á tveggja tíma fresti. Þarna
má alltaf finna eitthvað áhugavert
að horfa á. Þrátt fyrir að dagskráin
á N4 sé staðbundin fyrir Norður- og
Austurland, þá er þar oft að finna
áhugavert efni. Undirritaður horfir á
dagskránna með þeim augum að finna
hliðstæðu í efnisvali á Suðurnesjum.
Nú er einmitt komið að því að fram-
leiða sjónvarpsefni af Suðurnesjum og
koma því í landsdreifingu. Víkurfréttir
hafa byrjað samstarf við sjónvarps-
stöðina ÍNN um að senda út tæplega
hálftíma langan sjónvarpsþátt um
Suðurnes. Þættirnir verða vikulega
á dagskrá og sendir út á mánudags-
kvöldum kl. 21:30. Mánudagar eru
taldir gott sjónvarpskvöld og erum
við sem vinnum að þáttagerðinni hjá
Víkurfréttum full tilhlökkunar en
fyrsti þátturinn fer í loftið mánudaginn
18. febrúar eða eftir rúma viku.
Framleiðsla sjónvarpsefnis er dýr, þar
sem margar vinnustundir fara í raun
í framleiðslu á fáum mínútum í sjón-
varpi. Við hjá Víkurfréttum ætlum
að byrja með vikulega þætti og leyfa
svo verkefninu að þróast áfram.
Eins og sagði að framan er tækni-
þróunin hröð og hún býður upp á
fjölbreytta möguleika. Í nánustu
framtíð verður kannski sjónvarps-
stöð sem sýnir bara efni frá Suður-
nesjum. Kannski verður þróunin sú
að Suðurnes verða með sína „rás“ á
efnisveitum eins og YouTube eða bara
vf.is og þangað fari fólk í sjónvarpinu
sínu til að sækja sjónvarpsdagskrá frá
Suðurnesjum. Við ætlum a.m.k. að
leggja okkar af mörkum í framleiðslu
á áhugaverðu efni frá Suðurnesjum.
Haustið 2011 var farið af stað með þróunar-verkefnið FS-Skemmtilegri skóli og stendur
það til vorsins 2013. Styrkur fékkst úr Sprotasjóði
til að fjármagna verkefnið að hluta og var Ingvar
Sigurgeirsson, prófessor við Menntavísindasvið
Háskóla Íslands, fenginn til ráðgjafar við verk-
efnið. Ráðinn var verkefnisstjóri og sér hann
ásamt stýrihópi kennara um verkefnið.
Meginmarkmið verkefnisins er að auka faglega
umræðu, stuðla að fjölbreyttum kennsluaðferðum
innan skólans og síðast en ekki síst að veita fólki
ákveðna umgjörð til að vinna að sínum þróunar-
verkefnum.
Haldin hafa verið erindi um ýmis málefni sem
tengjast skólastarfi með það fyrir augum að kynna
fyrir kennurum ýmis sóknarfæri í kennslu. Sem
dæmi má nefna:
Gerð kennsluáætlana – Hvað skiptir máli?
Notkun hugarkorta í námi og kennslu
Að meta á marga vegu – Námsmat
Notkun Facebook í kennslu
Munnleg tjáning nemenda
Kallað var eftir áhugasömum kennurum til að taka
þátt í skólaþróunarverkefnum og hittist sá hópur
með reglulegu millibili til skrafs og ráðagerða.
Kennarar höfðu frjálst val um hvaða viðfangsefni
þeir tækju fyrir. Haldið var opið málþing síðast-
liðið vor þar sem þróunarverkefnin voru kynnt og
ætlunin er að endurtaka leikinn nú í vor. Hér eru
nokkur dæmi um verkefni sem unnið hefur verið
að eða eru í vinnslu:
Sjálfs- og jafningjamat í hárgreiðslu
Vendikennsla (Flipped learning)
Umræður í tímum
Tilfærsluáætlun – (Grunnskóli – Starfsbraut FS)
Notkun á Facebook í kennslu
Notkun einkunnaramma í námsmati (Rubric)
Sjónvarpsþátturinn Landinn kom í heimsókn síð-
astliðið haust og fjallaði um vélherma sem Ívar
Valbergsson vélstjórnarkennari notar í sinni vél-
stjórnarkennslu sem og kennsluaðferðina Vendi-
kennslu (flipped learning). Vendikennsla byggir
á því að stuttir fyrirlestar eru teknir upp og settir
á netið. Nemendur horfa svo á fyrirlestrana fyrir
tíma og vinna verkefni upp úr þeim í kennslu-
stundum. Var umfjöllun Landans góð kynning á
því sem Ívar er að gera með sínum nemendum og
því þróunarstarfi sem er unnið hér í skólanum. Við
höfum hug á því að þróa kennsluaðferðina Vendi-
kennslu enn frekar í samstarfi við framhaldsskóla í
Svíþjóð næsta vetur og vonandi með fleiri skólum
hér á svæðinu.
Það er okkar mat að vel hafi tekist til í þróunar-
verkefninu. Mun meiri fagleg umræða hefur verið
meðal kennara en áður. Við teljum nauðsynlegt
fyrir kennara að hafa þá umgjörð sem svona
skólaþróunarverkefni veitir. Í slíkum verkefnum fá
kennarar tækifæri til að tvinna nýjustu stefnur og
strauma í kennslufræðum og menntarannsóknum
saman við vettvanginn. Þeir fá tíma til að hittast,
bera saman bækur sínar og ræða verkefni sín.
Hugmyndir fæðast á slíkum fundum og einhverjir
ákveða að láta slag standa og prófa að framkvæma
hluti í kennslunni. Kennarar, sér í lagi sérhæfðir
faggreinakennarar, vinna mikið einir og því skapar
verkefni sem þetta gott tækifæri til að rjúfa þá
einangrun. Það er okkar trú að svona verkefni geri
okkar störf faglegri og gefi möguleika á að sækja
fram í kennslu og skólastarfi.
Við viljum að sjálfsögðu deila með ykkur reynslu
okkar úr verkefninu. Á síðunni http://www.fss.is/
skolinn/trounarverkefni/ er að finna ýmis gögn
sem tengjast þróunarverkefninu sem ef til vill geta
nýst einhverjum.
Guðmundur Grétar Karlsson,
verkefnisstjóri
FS-Skemmtilegri skóli – Þróunarverkefni 2011-2013
Hefja stórsókn fyrir Suðurnes
Eftir erfiðan varnarleik að undanförnu hafa Suðurnesjamenn snúið vörn í sókn.
Margt jákvætt, skemmtilegt og uppbyggilegt
er í gangi hér suður með sjó, gróska á ýmsum
sviðum og nýsköpun.
Víkurfréttir ehf., sem nýlega fögnuðu 30 ára
afmæli útgáfufyrirtækisins, leggjast nú á
árarnar með samfélaginu á Suðurnesjum og
ætla að vekja athygli á Suðurnesjum á lands-
vísu. Víkurfréttir ætla að hefja stórsókn fyrir
hönd svæðisins með fjölbreyttri umfjöllun
um mannlíf og menningu Suðurnesja, auk
þess að taka púlsinn á atvinnulífinu og heyra í
skemmtilegu fólki. Afraksturinn af öllu þessu
verður svo sýndur í um hálftíma löngum sjón-
varpsþáttum á hinni alíslensku sjóvarpsstöð
ÍNN, þar sem þriðjungur þjóðarinnar er að
fylgjast með dagskránni í hverri viku.
Þættirnir heita Suðurnesja-magasín og verða
vikulega á dagskrá á mánudagskvöldum kl.
21:30 og svo endursýndir á tveggja tíma fresti
fram til kl. 20:00 á þriðjudagskvöldi. Þættirnir
verða einnig sýndir á kapalrás Kapalvæðingar
í Reykjanesbæ. Þá verður efni þáttanna einnig
aðgengilegt á vef Víkurfrétta. Þar verður hægt
að horfa á þáttinn í heild sinni og einnig stök
innslög.
Sjónvarpsþátturinn Suðurnesja-magasín
verður byggður upp á stuttum innslögum, allt
frá einni mínútu og upp í lengri viðtöl. Með
þáttunum verður reynt að varpa ljósi á menn-
ingu og mannlíf svæðisins, greina frá tíðindum
úr atvinnulífinu en umfram allt að segja frá
öllu því skemmtilega og uppbyggilega sem er í
gangi á Suðurnesjum og sýna þá grósku sem er
á svæðinu, m.a. í nýsköpun ýmiskonar.
Það eru fréttamenn Víkurfrétta sem matreiða
þáttinn í hverri viku samhliða því að skrifa
Víkurfréttir. Nú þegar er langur listi af áhuga-
verðu efni fyrir þáttinn sem unnið verður úr á
næstu vikum. Fréttamenn Víkurfrétta vilja hins
vegar vera í góðu sambandi við íbúa svæðisins
og fá ábendingar um áhugavert sjónvarpsefni
frá Suðurnesjum. Besta leiðin er að senda tölvu-
póst á póstfangið vf@vf.is en sá póstur berst til
allra fréttamanna VF. Einnig má hringja inn
ábendingar í síma 421 0002.
Fyrsti þáttur af Suðurnesja-magasíni fer í loftið
mánudagskvöldið 18. febrúar nk. eða eftir rúma
viku. Þegar þetta er skrifað er fátt hægt að segja
um efni fyrsta þáttarins en áhugasamir geta
fylgst með framvindu þáttanna á Fésbókarsíðu
Víkurfrétta. Þar munu m.a. birtast glefsur úr
því efni sem unnið er að hverju sinni.
- margt jákvætt, skemmtilegt og uppbyggilegt í gangi hér suður með sjó, gróska og nýsköpun.
2 Fimmtudagurinn 14. apríl 2011VÍKURFRÉTTIR
PARKETÞJÓNUSTA
Parketslípun,
lagnir, viðgerð-
ir og almennt
viðhald húsnæðis.
Látið fagmenn
vinna verkin!
Parketþjónusta Árna Gunnars,
s. 698 1559,
arnigunnars@simnet.is
Þjónustumiðstöðin
Nesvöllum
Vikan 7. - 13. feb. nk.
• Bingó • Gler-, keramik- og leir-
námskeið • Handavinna
• Leikfimi - dans- boltaleikfimi.
• Línudans • Félagsvist • Bridge
• Hádegismatur • Síðdegiskaffi
Föstudaginn 8. febrúar nk.
kl. 14:00 á vegum FEBS,
Þorvaldur Árnason, lyfsali.
Allir hjartanlega velkomnir
Nánari upplýsingar
í síma 420 3400
SMÁAUGLÝSINGAR
421 0000
NÚ GETUR ÞÚ SENT VÍKURFRÉTTUM
SMÁAUGLÝSINGAR Á VEFNUM VF.IS
ÞJÓNUSTA
Heimasíðugerð. Besta verðið
Ég get sett upp heimasíðu fyrir þig
á innan við viku fyrir 50 þús. kr.
Hýsing & aðgangur að stjórnkerfi
er ca: 1500 kr. á mán. S: 774-5188
heimasidugerd12@gmail.com
Árétting
Leiðarahöfundur fór ekki alveg rétt
með í síðasta pistli varðandi kom-
andi kosningar. Þar var sagt að Silja
Dögg Gunnarsdóttir sem endaði í 2.
sæti hjá Framsókn væri í baráttusæti
hjá flokknum í Suðurkjördæmi en
það er ekki alls kostar rétt. Í síðustu
kosningum voru framsóknarmenn
með tvo fulltrúa á Alþingi og miðað
við síðustu skoðanakannanir er Silja
komin með sæti á þeim bæ. Í pistl-
inum var fjallað um gott gengi Suður-
nesjamanna í prófkjörum og upp-
stillingum og vægi þeirra á Alþingi
eftir næstu kosningar. Þessi staðreynd
með Silju sýnir enn meiri styrk fyrir
svæðið. Sem er gott.