Víkurfréttir - 07.02.2013, Qupperneq 6
fimmtudagurinn 7. febrúar 2013 • VÍKURFRÉTTIR6
n Marmeti tekur brátt til starfa í Sandgerði:
N1 AÐALSTÖÐIN REYKJANESBÆ
SÍMI: 421 4800
FRÁBÆR OG FREISTANDI
VEITINGATILBOÐ
OSTBORGARI
franskar kartöflur og ½ l. Pepsi
eða Pepsi Max í plasti
1.095 kr.
AÐALPYLSA
með osti og frönskum kartöflum á milli
og ½ l. Pepsi eða Pepsi Max í plasti
749 kr.
Hátæknifiskvinnslufyrir-tækið Marmeti hefur starf-
semi í Sandgerði á næstu vikum
en nýverið var undirritaður fjár-
festingarsamningur um skattaí-
vilnanir við Marmeti vegna bygg-
ingar fiskvinnslunnar. Heildar-
fjárfesting verkefnisins er áætluð
609 milljónir, framleiðslugeta
verksmiðjunnar verður um 5.000
tonn og gert er ráð fyrir 41 starfs-
manni við rekstur vinnslunnar.
Samningar Marmetis við Sand-
gerðisbæ annars vegar og ríkis-
valdið hins vegar voru undirritaðir
í húsakynnum Sandgerðisbæjar.
Ívilnanirnar eru í formi afsláttar
á tryggingagjaldi og tekjuskatti
og af fasteignagjöldum hjá Sand-
gerðisbæ.
Steingrímur J. Sigfússon, atvinnu-
vega- og nýsköpunarráðherra
skrifaði undir samninginn fyrir
hönd ráðuneytisins og sagði hann
mjög ánægjulegan.
„Ég fagna mjög stórhug forsvars-
manna Marmetis og það segir sig
sjálft að tilkoma hátæknifiskvinnslu
sem veitir 40 manns atvinnu hefur
gríðarmikla þýðingu fyrir Sand-
gerðisbæ og reyndar öll Suðurnesin.
Þá fagna ég því sérstaklega að hér er
vf@vf.isfréttir úr sandgerði
nýtt hátæknifisk-
vinnslufyrirtæki
skapar 40 störf
á ferðinni fjárfestingarsamningur
um ívilnanir við íslenskt fyrirtæki
en þess misskilnings hefur gætt að
lögin um ívilnanir vegna nýfjár-
festinga og samningar sem gerðir
eru á þeim grundvelli standi aðeins
erlendum fjárfestum til boða, en svo
er að sjálfsögðu ekki eins og undir-
ritunin hér í dag sýnir. Ég treysti því
að fleiri slíkir ívilnanasamningar
komi í kjölfarið enda eru þeir öflugt
verkfæri til að liðka fyrir nýfjár-
festingum og uppbyggingu.“ sagði
Steingrímur.
Sigrún Árnadóttir, bæjarstjóri
í Sandgerði sagði samninginn
hafa jákvæð áhrif til nýsköpunar
og uppbyggingar. „Það er mikið
fagnaðarefni að fá hingað til Sand-
gerðis fleiri öflug fiskvinnslufyrir-
tæki. Fiskvinnslufyrirtækið Mar-
meti mun hleypa auknum krafti í
atvinnuuppbyggingu hér á svæðinu
og bæjaryfirvöld lýsa ánægju með
að fyrirtækinu hafi verið valinn
staður í Sandgerði.“ sagði Sigrún
Árnadóttir, bæjarstjóri Sandgerðis-
bæjar.
Verksmiðja Marmetis verður búin
fullkomnasta hátæknibúnaði til
fiskvinnslu sem völ er á og kemur
hann allur frá íslenskum fram-
leiðendum eins og Marel og Frost
og fleirum. Staðsetning fiskvinnsl-
unnar þykir einkar hentug en hún
er í 150 metra fjarlægð frá þeim
stað sem Örn KE landar afla sínum
og innan við 70 metra fjarlægð frá
Fiskmarkaði Suðurnesja. Þá eru
einungis 4 kílómetrar í Flugstöð
Leifs Eiríkssonar.
Undanfarna níu mánuði hefur Bragi
Guðmundsson, verktaki í Garði
unnið við uppsetningu og smíði
fiskvinnsluhússins en á hans vegum
eru nú tíu manns við störf. Þá var
húsið hannað af verkfræðistofunni
Verkviti sem einnig er með aðsetur
í Garðinum en þangað á eigandi
Marmetis, Örn Erlingsson, ættir
sínar að rekja. „Það er ánægjulegt
að geta sagt frá því að nær eingöngu
Suðurnesjamenn hafa unnið við
að koma fyrirtækinu upp,“ sagði
Örn en hann hefur verið viðloðinn
útgerð og fiskvinnslu í áratugi.
Það sem mun skipta hvað mestu
máli í vinnslunni hjá Marmeti
er kæling fisksins eftir flökun og
snyrtingu, áður en hann fer í kassa
til útflutnings. Það mun lengja líf-
tíma vörunnar fyrir afhendingu.
Þannig mun vinnast meiri tími og
svigrúm sem gefur möguleika á að
nýta útflutning með skipum sem er
mun ódýrari kostur en flugið.
Frá undirritun samninga í húsakynnum Sandgerðisbæjar. F.v. Ólafur Þ.
Ólafsson, forseti bæjarstjórnar Sandgerðis, Sigrún Árnadóttir, bæjarstjóri,
Steingrímur J. Sigfússon, ráðherra, Örn Erlingsson eigandi Marmetis og
Rúnar Guðfinnsson, framkvæmdastjóri.
Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra skoðaði aðstæður í Marmeti í Sandgerði með
eigendum fyrirtækisins og forráðamönnum Sandgerðisbæjar. VF-myndir/pket.
Séð inn í 2500 fermetra byggingu Marmetis. Hér eru iðnaðarmenn
frá Braga Guðmundssyni að störfum í vinnslusal.
Holtsgata 56, Reykjanesbæ, sími 421 2000
ATVINNA
Starfskraftur óskast í almennar ræstingar í FLE
Starfskröfur:
Viðkomandi þarf að hafa reynslu af ræstingum,
þarf að vera 30 ára eða eldri og þarf að geta setið
námskeið í flugvernd sem er á íslensku og
þarf því að tala og skilja íslensku.
Vinnutími er frá kl. 08:00 til 12:00 (50% starf)
Áhugasamir sem uppfylla þessi skilyrði
vinsamlega farið á allthreint.is og sendið
umsókn undir liðnum atvinna í boði.