Víkurfréttir - 07.02.2013, Page 10
fimmtudagurinn 7. febrúar 2013 • VÍKURFRÉTTIR10
Grindvíkingurinn Páll Valur Björnsson leiðir lista Bjartrar
framtíðar í Suðurkjördæmi.
Páll Valur, sem eru fimmtugur
að aldri og tveggja barna faðir,
er menntaður kennari. Hann út-
skrifaðist sem grunnskólakenn-
ari frá menntavísindasviði Há-
skóla Íslands vorið 2011 og hefur
starfað sem kennari síðan. Nú
starfar hann í Fisktækniskóla Ís-
lands í Grindavík. Páll Valur var
kosinn í bæjarstjórn Grindavíkur
fyrir Samfylkinguna vorið 2010.
Hann hætti í bæjarstjórn í haust
eftir að hafa ákveðið að ganga
til liðs við Bjarta framtíð. Páll á
ættir sínar að rekja frá Vopnafirði
en hefur búið í Grindavík um
árabil. Víkurfréttir ræddi við Pál
Val nú þegar styttist í kosningar
og leggur hann m.a. áherslu á að
Grindvíkingar eignist alþingis-
mann.
„Það leggst mjög vel í mig að leiða
lista Bjartrar framtíðar í Suður-
kjördæmi. Þetta er mikil áskorun
fyrir mig enda um að ræða stórt
og mikið kjördæmi. Grindvíkingar
hafa ekki átt marga þingmenn í
gegnum tíðina. Síðasti þingmaður
Grindvíkinga var Petrína Baldurs-
dóttir árið 1994. Það er löngu kom-
inn tími á að Grindvíkingar eignist
þingmann og svo gæti hreinlega
farið að þeir verði fleiri en einn.
Það er einnig ánægjulegt að það
stefni í að Suðurnesin eignist öfluga
þingmannasveit sem okkur hefur
tilfinnanlega skort á kjörtímabilinu
sem er að líða,“ segir Páll Valur.
Hvers vegna ákvaðst þú að hella
þér út í stjórnmál?
Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á
pólitík en fór ekki að taka þátt í
henni með beinum hætti fyrr en
fyrir nokkrum árum – í kjölfar
hrunsins. Ég fylltist mikilli reiði
með hvernig fyrir þjóðinni var
komið og var raunar alveg brjál-
vf@vf.isgrinda-víkurfréttir
Nánar í Sjón-
varpi Víkurfrétta
ÚTBOÐ
MELHÓLSNÁMA
Grindavíkurbær óskar eftir tilboðum í efnistöku í Melhólsnámu. Um er að ræða bólstrabergsnámu
og er efnistökumagnið allt að 45.000 m3.
Tilboð skal gert í árgjald fyrir allt hið leigða vinnslusvæði námunnar. Í árgjaldinu er innifalin 4500
rúmmetra efnistaka á ári. Leigutaka er heimilt að taka meira efni en sem þessu nemur á ári og skal þá
greitt fast rúmmetraverð sem er 80 kr/m3. Verðbætur skulu miðast við gildandi byggingavísitölu á
opnunardegi.
Leiguréttur á námunni nær til 10 ára og skuldbindur leigutaki sig til að klára vinnslu í námunni og ganga
frá námusvæðinu á þeim tíma í samræmi við vinnslu- og frágangsáætlun fyrir Melhólsnámu.
Leigutaki skuldbindur sig að skila námunni frágenginni að leigutíma loknum og standa straum af
kostnaði við frágang hennar. Áætlaður kostnaður við frágang samkvæmt meðfylgjandi frágangsáætlun
er að lágmarki kr. 1,5 milljón. Grindavíkurbær áskilur sér rétt til að innheimta allt að 10% af þeirri upphæð
árlega (150.000 kr.) og verður sú upphæð lögð inn á reikning í vörslu bæjarins. Þessi upphæð kemur í
viðbót við árgjaldið. Upphæðin verður endurgreidd að loknum endanlegum frágangi á námunni.
Leigutaki ber kostnað af heildarmælingu efnistökusvæðis tvisvar á leigutíma, þ.e. eftir 5 og 10 ár í
samráði við Grindavíkurbæ.
Tilboðið verður metið út frá þeim verðum sem gefin verða og Grindavíkurbær áskilur sér rétt til að taka
hagstæðasta tilboðinu sem berst eða hafna öllum.
Grindavíkurbær mun veita viðkomandi leigutaka framkvæmdaleyfi byggt á vinnslu- og
frágangsáætluninni en vinnsluaðili skal útvega sér starfsleyfi (samkv. reglugerð nr. 785 frá 1999) frá
Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja.
Fyrirspurnir um útboðið og námusvæðið skal senda í síðasta lagi þremur sólarhringum fyrir opnunardag.
Verður fyrirspurninni svarað og öðrum bjóðendum send fyrirspurnin og svarið við henni. Slíkar fyrir-
spurnir teljast þá hluti útboðsgagna. Fyrirspurnir skal senda á netfangið ingvar@grindavik.is, upplýsingar
verða ekki gefnar í síma.
Skila skal inn tilboði merkt ÚTBOÐ-MELHÓLSNÁMA, til skrifstofu Grindavíkurbæjar, Víkurbraut 62,
240 Grindavík fyrir kl. 10:00 miðvikudaginn 27. febrúar 2013 og tilboð verða opnuð samdægurs,
á sama stað, kl. 11:00.
Útboðsgögn og vinnsluáætlun má sjá á heimasíðu Grindavíkurbæjar
(undir Tilkynningar á forsíðunni).
-af einhverjum ástæðum virðist fólk ekki geta unnið saman
Grindvíkingurinn Páll Valur Björnsson leiðir lista Bjartrar framtíðar
í Suðurkjördæmi. Segir tíma kominn á grindvíska þingmenn:
í grindavík hefur verið
allsráðandi mikil valda-
og átakapólitík
aður. Í kjölfarið á því þá bauð ég
fram krafta mína fyrir Samfylk-
inguna og taldi að sá flokkur ætti
best við mig. Ég fór í prófkjör fyrir
alþingiskosningarnar 2009 en fékk
ekki brautargengi. Ég var kosinn í
bæjarstjórn Grindavíkur fyrir Sam-
fylkinguna 2010 og starfaði þar í
tvö og hálft ár.
Þú hættir í Samfylkingunni í vetur
og gekkst til liðs við Bjarta fram-
tíð. Hvers vegna?
Það var enginn sérstakur ágrein-
ingur sem olli því að ég yfirgaf
Samfylkinguna. Smátt og smátt þá
fannst mér ég ekki lengur eiga sam-
leið með flokknum og ákvað því
að ganga úr honum. Þegar ég hætti
í Samfylkingunni þá kom aldrei
neitt annað til greina en að víkja
úr bæjarstjórn. Ég hefði vissulega
getað haldið áfram líkt og aðrir
hafa gert. Ég hafði hins vegar engan
áhuga á því. Fólkið kaus Samfylk-
inguna og á skilið að hafa sinn full-
trúa í sinni bæjarstjórn.
Róbert Marshall, sem er góður
vinur minn, viðraði þessa hug-
mynd við mig fyrir nokkru að
ganga til liðs við Bjarta framtíð. Það
var ekki auðveld ákvörðun fyrir
mig að hætta í Samfylkingunni. Ég
mun standa eða falla með þeirri
ákvörðun. Hugmyndafræðin á bak
við Bjarta framtíð heillaði mig og
ég finn að fólk vill fá eitthvað nýtt
inn á Alþingi.
Hver er skýringin á þessari miklu
ólgu sem verið hefur í sveitar-
stjórnarmálum í Grindav ík
undanfarin ár með tíðum meiri-
hlutaskiptum?
Í Grindavík hefur verið alls-
r á ð a n d i m i k i l v a l d a - o g
átakapólitík. Íslenska þjóðin er
mjög samhent að mörgu leyti og
við stöndum saman þegar eitthvað
bjátar á. Þegar það kemur hins
vegar að pólitík þá virðist fjandinn
hreinlega vera laus. Hér í Grindavík
er gott fólk að vinna í bæjarstjórn
og allir vilja gera sitt besta en af
einhverjum ástæðum virðist fólk
ekki geta unnið saman. Það var
ævintýralegt að fylgjast með um-
ræðunni hér í Grindavík á síðasta
kjörtímabili. Samstarfið hefur hins
vegar verið frábært á þessu kjör-
tímabili. Ég held að ég hafi aldrei
lært jafn mikið á ævinni og á þeim
tíma sem ég hef verið í bæjarstjórn.
Þó ég hafi verið í minnihluta þá
voru það mikil vonbrigði fyrir mig
þegar Sjálfstæðisflokkurinn sleit
meirihlutasamstarfinu við Fram-
sóknarflokkinn. Ég vonaði svo
sannarlega að okkur tækist að fara
í gegnum kjörtímabil án þess að
lenda í svona áföllum. Það reyndist
hins vegar mjög auðvelt að mynda
nýjan meirihluta.
Hvaða málefni brenna helst á þér?
Það eru skuldamál heimilanna –
það er gríðarlega mikilvægt verk-
efni. Það er hins vegar mjög erfitt að
koma með eina heildræna lausn til
að leysa það vandamál. Björt fram-
tíð er stofnuð til að reyna að breyta
stjórnmálamenningunni í landinu.
Núverandi stjórnmálamenning er
ónýt. Það er lykilatriði að breyta
þessari menningu í rétt horf. Það
er algjör skortur á virðingu á milli
kjörinna fulltrúa. Við þurfum að
breyta Alþingi í samstarfsvettvang.
Finnur þú fyrir stuðningi?
Hvert sem ég hef farið þá hef ég
fundið fyrir miklum áhuga. Ég finn
fyrir miklum meðbyr. Fólk hvetur
mig áfram. Ég hef sýnt það í verkum
mínum í Grindavík að ég er sam-
kvæmur sjálfum mér. Fyrir mér
er líka í lagi að skipta um skoðun.
Það er stór sigur fyrir hvern einasta
einstakling að geta viðurkennt fyrir
sjálfum sér að hann geti gert mis-
tök. Ég hef gert mörg mistök en ég
hef lært af þeim og það eru skila-
boð sem ég vil senda inn í stjórn-
málaumræðuna.
Hafa Suðurnesin orðið útundan á
síðustu árum?
Já, það segir sig alveg sjálft. Við
erum alls staðar langt á eftir í öllum
þeim skýrslum sem ég hef lesið
undanfarin ár. Það er lykilatriði að
eiga sterkan flokk þingmanna frá
Suðurnesjum. Það eru gríðarleg
sóknarfæri á þessu svæði og þá
sérstaklega í ferðaþjónustunni. Á
síðasta ári komu 600 þúsund ferða-
menn í Bláa lónið. Við erum and-
dyri landsins og þurfum að nýta
okkur betur þá stöðu.
Ertu bjartsýnn á að komast á
þing?
Ég er þokkalega bjartsýnn. Ég lærði
það nú úr fótboltanum að maður
fagnar ekki sigri fyrr en það er búið
að flauta leikinn af. Ég vil láta gott af
mér leiða í þessari kosningabaráttu
og hef trú á því að fólkið í landinu
vilji sjá ný andlit á Alþingi.