Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.02.2013, Qupperneq 10

Víkurfréttir - 07.02.2013, Qupperneq 10
fimmtudagurinn 7. febrúar 2013 • VÍKURFRÉTTIR10 Grindvíkingurinn Páll Valur Björnsson leiðir lista Bjartrar framtíðar í Suðurkjördæmi. Páll Valur, sem eru fimmtugur að aldri og tveggja barna faðir, er menntaður kennari. Hann út- skrifaðist sem grunnskólakenn- ari frá menntavísindasviði Há- skóla Íslands vorið 2011 og hefur starfað sem kennari síðan. Nú starfar hann í Fisktækniskóla Ís- lands í Grindavík. Páll Valur var kosinn í bæjarstjórn Grindavíkur fyrir Samfylkinguna vorið 2010. Hann hætti í bæjarstjórn í haust eftir að hafa ákveðið að ganga til liðs við Bjarta framtíð. Páll á ættir sínar að rekja frá Vopnafirði en hefur búið í Grindavík um árabil. Víkurfréttir ræddi við Pál Val nú þegar styttist í kosningar og leggur hann m.a. áherslu á að Grindvíkingar eignist alþingis- mann. „Það leggst mjög vel í mig að leiða lista Bjartrar framtíðar í Suður- kjördæmi. Þetta er mikil áskorun fyrir mig enda um að ræða stórt og mikið kjördæmi. Grindvíkingar hafa ekki átt marga þingmenn í gegnum tíðina. Síðasti þingmaður Grindvíkinga var Petrína Baldurs- dóttir árið 1994. Það er löngu kom- inn tími á að Grindvíkingar eignist þingmann og svo gæti hreinlega farið að þeir verði fleiri en einn. Það er einnig ánægjulegt að það stefni í að Suðurnesin eignist öfluga þingmannasveit sem okkur hefur tilfinnanlega skort á kjörtímabilinu sem er að líða,“ segir Páll Valur. Hvers vegna ákvaðst þú að hella þér út í stjórnmál? Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á pólitík en fór ekki að taka þátt í henni með beinum hætti fyrr en fyrir nokkrum árum – í kjölfar hrunsins. Ég fylltist mikilli reiði með hvernig fyrir þjóðinni var komið og var raunar alveg brjál- vf@vf.isgrinda-víkurfréttir Nánar í Sjón- varpi Víkurfrétta ÚTBOÐ MELHÓLSNÁMA Grindavíkurbær óskar eftir tilboðum í efnistöku í Melhólsnámu. Um er að ræða bólstrabergsnámu og er efnistökumagnið allt að 45.000 m3. Tilboð skal gert í árgjald fyrir allt hið leigða vinnslusvæði námunnar. Í árgjaldinu er innifalin 4500 rúmmetra efnistaka á ári. Leigutaka er heimilt að taka meira efni en sem þessu nemur á ári og skal þá greitt fast rúmmetraverð sem er 80 kr/m3. Verðbætur skulu miðast við gildandi byggingavísitölu á opnunardegi. Leiguréttur á námunni nær til 10 ára og skuldbindur leigutaki sig til að klára vinnslu í námunni og ganga frá námusvæðinu á þeim tíma í samræmi við vinnslu- og frágangsáætlun fyrir Melhólsnámu. Leigutaki skuldbindur sig að skila námunni frágenginni að leigutíma loknum og standa straum af kostnaði við frágang hennar. Áætlaður kostnaður við frágang samkvæmt meðfylgjandi frágangsáætlun er að lágmarki kr. 1,5 milljón. Grindavíkurbær áskilur sér rétt til að innheimta allt að 10% af þeirri upphæð árlega (150.000 kr.) og verður sú upphæð lögð inn á reikning í vörslu bæjarins. Þessi upphæð kemur í viðbót við árgjaldið. Upphæðin verður endurgreidd að loknum endanlegum frágangi á námunni. Leigutaki ber kostnað af heildarmælingu efnistökusvæðis tvisvar á leigutíma, þ.e. eftir 5 og 10 ár í samráði við Grindavíkurbæ. Tilboðið verður metið út frá þeim verðum sem gefin verða og Grindavíkurbær áskilur sér rétt til að taka hagstæðasta tilboðinu sem berst eða hafna öllum. Grindavíkurbær mun veita viðkomandi leigutaka framkvæmdaleyfi byggt á vinnslu- og frágangsáætluninni en vinnsluaðili skal útvega sér starfsleyfi (samkv. reglugerð nr. 785 frá 1999) frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja. Fyrirspurnir um útboðið og námusvæðið skal senda í síðasta lagi þremur sólarhringum fyrir opnunardag. Verður fyrirspurninni svarað og öðrum bjóðendum send fyrirspurnin og svarið við henni. Slíkar fyrir- spurnir teljast þá hluti útboðsgagna. Fyrirspurnir skal senda á netfangið ingvar@grindavik.is, upplýsingar verða ekki gefnar í síma. Skila skal inn tilboði merkt ÚTBOÐ-MELHÓLSNÁMA, til skrifstofu Grindavíkurbæjar, Víkurbraut 62, 240 Grindavík fyrir kl. 10:00 miðvikudaginn 27. febrúar 2013 og tilboð verða opnuð samdægurs, á sama stað, kl. 11:00. Útboðsgögn og vinnsluáætlun má sjá á heimasíðu Grindavíkurbæjar (undir Tilkynningar á forsíðunni). -af einhverjum ástæðum virðist fólk ekki geta unnið saman Grindvíkingurinn Páll Valur Björnsson leiðir lista Bjartrar framtíðar í Suðurkjördæmi. Segir tíma kominn á grindvíska þingmenn: í grindavík hefur verið allsráðandi mikil valda- og átakapólitík aður. Í kjölfarið á því þá bauð ég fram krafta mína fyrir Samfylk- inguna og taldi að sá flokkur ætti best við mig. Ég fór í prófkjör fyrir alþingiskosningarnar 2009 en fékk ekki brautargengi. Ég var kosinn í bæjarstjórn Grindavíkur fyrir Sam- fylkinguna 2010 og starfaði þar í tvö og hálft ár. Þú hættir í Samfylkingunni í vetur og gekkst til liðs við Bjarta fram- tíð. Hvers vegna? Það var enginn sérstakur ágrein- ingur sem olli því að ég yfirgaf Samfylkinguna. Smátt og smátt þá fannst mér ég ekki lengur eiga sam- leið með flokknum og ákvað því að ganga úr honum. Þegar ég hætti í Samfylkingunni þá kom aldrei neitt annað til greina en að víkja úr bæjarstjórn. Ég hefði vissulega getað haldið áfram líkt og aðrir hafa gert. Ég hafði hins vegar engan áhuga á því. Fólkið kaus Samfylk- inguna og á skilið að hafa sinn full- trúa í sinni bæjarstjórn. Róbert Marshall, sem er góður vinur minn, viðraði þessa hug- mynd við mig fyrir nokkru að ganga til liðs við Bjarta framtíð. Það var ekki auðveld ákvörðun fyrir mig að hætta í Samfylkingunni. Ég mun standa eða falla með þeirri ákvörðun. Hugmyndafræðin á bak við Bjarta framtíð heillaði mig og ég finn að fólk vill fá eitthvað nýtt inn á Alþingi. Hver er skýringin á þessari miklu ólgu sem verið hefur í sveitar- stjórnarmálum í Grindav ík undanfarin ár með tíðum meiri- hlutaskiptum? Í Grindavík hefur verið alls- r á ð a n d i m i k i l v a l d a - o g átakapólitík. Íslenska þjóðin er mjög samhent að mörgu leyti og við stöndum saman þegar eitthvað bjátar á. Þegar það kemur hins vegar að pólitík þá virðist fjandinn hreinlega vera laus. Hér í Grindavík er gott fólk að vinna í bæjarstjórn og allir vilja gera sitt besta en af einhverjum ástæðum virðist fólk ekki geta unnið saman. Það var ævintýralegt að fylgjast með um- ræðunni hér í Grindavík á síðasta kjörtímabili. Samstarfið hefur hins vegar verið frábært á þessu kjör- tímabili. Ég held að ég hafi aldrei lært jafn mikið á ævinni og á þeim tíma sem ég hef verið í bæjarstjórn. Þó ég hafi verið í minnihluta þá voru það mikil vonbrigði fyrir mig þegar Sjálfstæðisflokkurinn sleit meirihlutasamstarfinu við Fram- sóknarflokkinn. Ég vonaði svo sannarlega að okkur tækist að fara í gegnum kjörtímabil án þess að lenda í svona áföllum. Það reyndist hins vegar mjög auðvelt að mynda nýjan meirihluta. Hvaða málefni brenna helst á þér? Það eru skuldamál heimilanna – það er gríðarlega mikilvægt verk- efni. Það er hins vegar mjög erfitt að koma með eina heildræna lausn til að leysa það vandamál. Björt fram- tíð er stofnuð til að reyna að breyta stjórnmálamenningunni í landinu. Núverandi stjórnmálamenning er ónýt. Það er lykilatriði að breyta þessari menningu í rétt horf. Það er algjör skortur á virðingu á milli kjörinna fulltrúa. Við þurfum að breyta Alþingi í samstarfsvettvang. Finnur þú fyrir stuðningi? Hvert sem ég hef farið þá hef ég fundið fyrir miklum áhuga. Ég finn fyrir miklum meðbyr. Fólk hvetur mig áfram. Ég hef sýnt það í verkum mínum í Grindavík að ég er sam- kvæmur sjálfum mér. Fyrir mér er líka í lagi að skipta um skoðun. Það er stór sigur fyrir hvern einasta einstakling að geta viðurkennt fyrir sjálfum sér að hann geti gert mis- tök. Ég hef gert mörg mistök en ég hef lært af þeim og það eru skila- boð sem ég vil senda inn í stjórn- málaumræðuna. Hafa Suðurnesin orðið útundan á síðustu árum? Já, það segir sig alveg sjálft. Við erum alls staðar langt á eftir í öllum þeim skýrslum sem ég hef lesið undanfarin ár. Það er lykilatriði að eiga sterkan flokk þingmanna frá Suðurnesjum. Það eru gríðarleg sóknarfæri á þessu svæði og þá sérstaklega í ferðaþjónustunni. Á síðasta ári komu 600 þúsund ferða- menn í Bláa lónið. Við erum and- dyri landsins og þurfum að nýta okkur betur þá stöðu. Ertu bjartsýnn á að komast á þing? Ég er þokkalega bjartsýnn. Ég lærði það nú úr fótboltanum að maður fagnar ekki sigri fyrr en það er búið að flauta leikinn af. Ég vil láta gott af mér leiða í þessari kosningabaráttu og hef trú á því að fólkið í landinu vilji sjá ný andlit á Alþingi.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.