Víkurfréttir - 07.02.2013, Síða 12
fimmtudagurinn 7. febrúar 2013 • VÍKURFRÉTTIR12
Eins og nafnið gefur til kynna er
skólinn í New Mexico fylki en Jóna
segist ekki hafa vitað mikið um
fylkið, nema að þar væri mjög þurrt
loft og heitt í veðri. Það reyndist svo
vera satt, enda hitinn gríðarlegur
þegar hún kom þangað í ágúst í
fyrra. Hún hafði verið í viðræðum
við nokkra skóla en leist best á New
Mexico state þar sem hann leit
vel út. Sundlið skólans er gott og
með afbragðs aðstöðu. „Þegar Erla
Dögg (Haraldsdóttir) og Árni Már
(Árnason) fóru í skóla í Bandaríkj-
unum varð þetta enn meira spenn-
andi fyrir mig, og svo fór besti vinur
minn og liðsfélagi til margra ára,
Davíð Hildiberg í skóla í Banda-
ríkjunum. Þau töluðu öll um hvað
þetta var skemmtileg lífsreynsla og
Hugsar
og syndir
á ensku
Jóna Helena stundar nám í New Mexico
skólanum. Búðarferðir og bíó með
vinunum eru líka á dagskránni en
Jóna hefur eignast góða félaga á
meðan á dvöl hennar hefur staðið.
Í skólanum eru um 19.000 nem-
endur. Í háskólasundi snýst allt
saman mjög mikið um liðsheild
að sögn Jónu og gerir liðið margt
skemmtilegt saman.
Sjálfboðavinna
á byssusýningu
Allir íþróttamenn í skólanum
þurfa að skila 15 klukkutímum í
sjálfboðavinnu á hverju ári. „Einn
sunnudag aðstoðuðum við sund-
stelpurnar í hjólakeppni, þar sem
við sátum í eyðimörkinni í 5
klukkutíma, til að hvetja fólk áfram
þegar þau hjóluðu framhjá okkur.
Skemmtilegasta sjálfboðaverkefnið
hingað til var þegar við vorum að
selja happadrættismiða á byssusýn-
ingu. Þar fékk ég að halda á alvöru
byssu, frekar spennandi fannst
mér,“ segir Jóna.
Skólinn gengur vel hjá Jónu en hún
stundar nám á tölvunarfræðibraut
og líkar það vel. Það vefst ekki fyrir
henni að læra á ensku en hún segist
hafa vanist því fljótlega að hugsa
á ensku. Hún viðurkennir þó að
fyrstu vikurnar hafi hún verið frekar
feimin við að tala en nú sé hún mun
öruggari með enskukunnáttu sína.
Margir velta því fyrir sér hvort það
sé ekki erfitt að vera svona langt
frá fjölskyldu og vinum. „Svarið er
auðvitað jú, það getur verið mjög
erfitt stundum. En þökk sé góðum
samskiptamiðlum eins og skype
og facebook, þá verður fjarlægðin
styttri.“
Hitinn niður í 5 gráður!
Í liðinu eru 22 sundstelpur sem æfa
JóNa HeleNa er 21 árs gömul gömul Keflavíkurmær
sem hefur dvalið meira og minna í sundlauginni
frá sex ára aldri. Með ÍRB liðinu hefur Jóna Helena
orðið margfaldur Íslands- og aldursflokkameist-
ari og hefur hún lengi verið í fremstu röð íslenskra
sundmanna. einnig hefur Jóna verið liðsmaður í
landsliði og unglingalandsliði Íslands og var hún
m.a. kjörin Sundmaður ÍRB árið 2010. Síðastliðið
haust tók Jóna þá ákvörðun að flytja búferlum og
hefja nám við New Mexico state hákólann í Banda-
ríkjunum.
Sundliðið saman komið. Eins og sjá má er aðstaðan glæsileg.
alveg frábært tækifæri fyrir mann.
Og þá var ég alveg staðráðin í því að
þetta væri eitthvað sem mig langaði
að upplifa og ákvað að láta draum
minn rætast,“ sagði Jóna í samtali
við Víkurfréttir.
Að sögn Jónu er bærinn Las Cruces
sem hún býr í frekar rólegur en
íbúafjöldinn er þó 97.000 manns.
„Fólkið hér er mjög vinalegt og
finnst alltaf jafn áhugavert þegar ég
segi að ég sé frá Íslandi,“ segir Jóna.
Það kemst fátt annað að hjá Jónu
en sund og lærdómur. Þegar hún
er ekki í lauginni er hún yfirleitt að
sinna heimalærdómi. Hún gefur
sér þó tíma til þess að kíkja á aðra
íþróttaviðburði sem eru vinsælir í
Jóna vígaleg með þennan líka svakalega hólk.
Undanfarin ár hefur Landsbankinn verið helsti styrktaraðili Sundráðs ÍRB. Nýlega skrifuðu Einar Hannesson f.h.
Landsbankans og Sigurbjörg Róbertsdóttir f.h. Sundráðs undir samstarfssamning til tveggja ára. Meðfylgjandi
mynd var tekin við það tækifæri í Sundmiðstöð Keflavíkur.