Víkurfréttir - 07.02.2013, Page 18
fimmtudagurinn 7. febrúar 2013 • VÍKURFRÉTTIR18
FS-ingur vikunnar a ð þ e s s u s i n n i
er Njarðvíkingurinn
Eyg l ó A l ex an d er s -
dóttir. Hún stundar
nám á félagsfræðibraut
en hana langar til að
fást við sálfræði í fram-
tíðinni. Eygló er 17 ára
gömul og hennar helsta
áhugamál er körfu-
bolti.
Af hverju valdir þú FS?
Ég nennti ekki að vera alltaf að keyra á milli og
svo voru líka flestir vinir mínir ad fara í FS.
Hvernig finnst þér félagslífið í skólanum?
Það er bara fínt.
Áhugamál?
Körfubolti.
Hvert er stefnan tekin í framtíðinni?
Mig langar til að verða sálfræðingur.
Ertu að vinna með skóla?
Ég er að þjálfa körfubolta.
Hver er best klæddur í FS?
Halldóra Jóna Guðmundsdóttir.
Hvað er skemmtilegast við skólann?
Félagsskapurinn.
Hvar hangirðu í eyðum og frímínútum?
Fer eiginlega alltaf heim en
stundum niður í matsal.
Stundarðu íþróttir eða ert í
öðrum tómstundum?
Ég spila körfubolta með Njarðvík.
Hvað borðar þú í morgunmat?
Fæ mér oftast hafragraut
Hvaða FS-ingur er líklegur
til þess að verða frægur?
Guðlaug Björt á eftir að verða fræg fyrir
að spila körfubolta í útlöndum.
Hvað fær þig til að hlæja?
Sigurbjörg Halldórsdóttir er klárlega
sú sem fær mig alltaf til að hlæja.
Hvað er heitasta parið í skólanum?
Guðlaug Björt Júlíusdóttir og Jón Axel Guð-
mundsson eru algjörir gullmolar.
Hverju myndirðu breyta
ef þú værir skólameistari FS?
Held bara ég mundi ekki breyta neinu
þetta er bara fínt eins og þetta er.
:
Sjónvarpsþættir:
Pretty little liars og Lying game.
Vefsíður:
facebook.
Flík:
Úlpan mín.
Skyndibiti:
Subway.
Kennari:
Jórunn Tómasdóttir og Anna Taylor.
Fag:
Stærðfræði.
Tónlistin:
Flest öll tónlist bara.
Hvaða tónlist fílarðu í laumi
(guilty pleasure)?
Elska að hlusta á rólega
tónlist þegar ég er ein.
FS-INGUR VIKUNNAR
EFTIRLÆTIS...
Elskar að hlusta
á rólega tónlist
Rafn Edgar Sigmarsson er nemandi í 8. AB í Njarð-
víkurskóla. Körfubolti og
fótbolti eru hans áhugamál
og hann heldur með Liver-
pool í Ensku deildinni. Hann
hefur hitt Torres og væri til í
að vera með Superman ofur-
krafta.
Hvað gerirðu eftir skóla?
Fer á æfingar og hitti vini.
Hver eru áhugamál þín?
Fótbolti og körfubolti eru mín
helstu áhugamál.
Uppáhalds fag í skól-
anum?
Íþróttir er mitt uppáhalds fag.
En leiðinlegasta?
Íslenska.
Ef þú gætir hitt einhvern
frægan, hver væri það?
Það yrði klárlega Messi.
Ef þú gætir fengið einn
ofurkraft hver væri hann?
Að vera með Superman ofur-
krafta.
Hvað er draumastarfið í
framtíðinni?
Ég er ekki alveg klár hvað
draumastarfið er í framtíðinni.
Hver er frægastur í sím-
anum þínum?
Arnór Breki.
Hver er merkilegastur
sem þú hefur hitt?
Fernando Torres, leikmaður
Chelsea.
Hvað myndirðu gera ef þú
mættir vera ósýnilegur í
einn dag?
Ég myndi gera allt sem maður
má ekki.
Hvernig myndirðu lýsa
fatastílnum þínum?
Ekki sá flottasti.
Hvernig myndirðu lýsa
þér í einni setningu?
Ég er skemmtilegur strákur.
Hvað er skemmtilegast
við Njarðvíkurskóla?
Skemmtilegir krakkar.
Hvaða sjónvarpsþáttur
myndi lýsa þér best?
Ég er ekki alveg viss.
Besta:
Bíómynd?
21 jump street.
Sjónvarpsþáttur?
The Big Bang Theory er besti
þátturinn.
Tónlistarmaður/Hljóm-
sveit?
Jason Derulo.
Matur?
Pizzan hjá afa mínum er minn
uppáhalds matur.
Drykkur?
Vatn er best.
Leikari/Leikkona?
Jim Carrey.
Lið í Ensku deildinni?
Liverpool er mitt lið í Ensku.
Lið í NBA?
Oklahoma City Thunder.
Vefsíða?
Facebook.
Íþróttir er mitt fag
n RAFN EDGAR SIGMARSSON // UNG UMSjóN: PÁLL oRRI PÁLSSoN • PoP@VF.IS
Instagram: #vikurfrettir
Það er mikið líf meðal yngri kynslóðarinnar í Fjörheimum í Reykjanesbæ en það er félagsmiðstöð krakka á ung-
lingastigi í Reykjanesbæ. Starfsmaður Fjörheima, Davíð Örn
Óskarsson, setti nýverið upp stórskemmtilegan Gólftennisvöll
sem hefur notið mikilla vinsælda.
Starfsmenn Víkurfrétta fengu að prufukeyra völlinn sem hefur
verið formlega opnaður. Óhætt er að mæla með vellinum sem er
hin besta skemmtun. Leikið er með borðtennisbolta og spaða.
Gólftennis krefst bæði hraða og útsjónarsemi. Það er aldrei
að vita nema að þessi skemmtilega íþrótt muni njóta vinsælda
næstu misseri. Þeir Davíð Örn Óskarsson og Þorsteinn Krist-
insson, starfsmaður Víkurfrétta, vígðu völlinn í síðustu viku
með spennandi leik þar sem Davíð hafði sigur.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðs-þjálfari kvennaliðsins í knattspyrnu,
miðlaði úr viskubrunni sínum fyrir gesti
Andrews menningarhússins sl. föstudag.
Gerður hefur verið mjög góður rómur að
fyrirlestrum Sigurðar og er hann eftir-
sóttur fyrirlesari.
Í fyrirlestri sínum talaði Sigurður Ragnar um
það sem þarf til að ná árangri en fyrirlestur-
inn var opinn og nýttu tugir sér þetta tækifæri
til að ná sér í visku hjá landsliðsþjálfaranum
sem í dag þjálfar eitt besta kvennalandslið
heims, en íslenska liðið skipar 15. sæti á
heimslistanum.
Sigurður hefur náð einstökum árangri með
kvennalandsliðið okkar, m.a. komið því í
úrslit Evrópumótsins í knattspyrnu. Það er
einstakur árangur og er þáttur þjálfarans í
þessum glæsilega árangri verulegur. Sigurður
er sálfræðingur að mennt. Hann hefur haldið
fyrirlestra fyrir almenning og starfsfólk fyrir-
tækja um það að ná árangri, ekki einungis í
íþróttum heldur í lífinu almennt, hvort sem
er í starfi eða einkalífi.
Það voru Keilir, KADECO og Samtök at-
vinnurekenda á Reykjanesi í samstarfi við
fyrirtæki á Suðurnesjum sem stóðu að fyrir-
lestrinum.
GólfteNNisvöllUr Í fjörheimUm
Miðlaði úr viskubrunni í Andrews