Víkurfréttir - 07.02.2013, Síða 22
fimmtudagurinn 7. febrúar 2013 • VÍKURFRÉTTIR22
HS Orka hf Brekkustíg 36 260 Reykjanesbæ
Sími 4225200 www.hs.is hs@hs.is
HS Orka hf óskar estir að ráða í estirtalin störf
Skjalastjóri og aðstoðarmaður forstjóra/framkv.stjórnar á skrifstofu fyrirtækisins í Reykjanesbæ
Helstu þættir starfsins:
• Innleiðing, rekstur og þróun skjalastjórnunarkerfis
• Þjálfun starfsmanna í skjalastjórnun og estirfylgni
• Umsjón með bókasafni fyrirtækisins, þ.e. skráningu og útláni á
gögnum
• Undirbúningur og frágangur funda forstjóra og framkvæmda-
stjórnar
• Umsjón með flug-, hótel og bílabókanir fyrir framkvæmdastjórn
og aðra starfsmenn
Verkefnisstjóri gæðamála á skrifstofu fyrirtækisins í Reykjanesbæ
Helstu þættir starfsins:
• Innleiðing, rekstur og þróun gæðastjórnarkerfa fyrirtækisins í
samráði við gæðastjóra
• Skipuleggur vinnu gæðahópa, fylgir estir starfi þeirra og tekur þátt
estir atvikum
• Tekur þátt í þróun og viðhaldi Rekstrarhandbókar
• Skjalfesta verkferla innan fyrirtækisins í samráði við stjórnendur
• Skipuleggur og framkvæmir innri úttektir
• Þjónusta við HS Veitur hf
Starfsmaður á stjórnbúnaðarsvið í orkuverum
Helstu verkefni:
• Rekstur á stjórn-, varnaliðabúnaðar og upplýsingakerfi Orkuvera
• Þjónusta við notendur kerfisins
• Ber ábyrgð á viðhalds- og bilanaskráningu
• Ber ábyrgð á að teikningar og önnur gögn sviðsins séu aðgengileg
og rétt
• Kemur með tillögur um úrbætur- og endurnýjun sem tengist
rekstri og þróun kerfisins
HS Orka hf rekur 2 orkuver, í Svartengi og á Reykjanesi.
Fyrirtækið hóf innleiðingu á skjalastjórnun 2010 og vinnur nú að innleiðingu á ISO 9001 staðlinum. Í framhaldi er
áætlað að innleiða ISO 14001 og OHSAS 18001.
Hægt er að sækja um á heimasíðu fyrirtækisins og einnig fást umsóknareyðublöð á skrifstofu.
Frekari upplýsingar veitir starfsmannastjóri.
Umsóknarfrestur er til og með 14. febrúar 2013.
Helstu kröfur:
• Háskólapróf í bókasafns- og upplýsingafræðum eða önnur
menntun og reynsla sem nýtist í starfi
• Þekking og reynsla í skjalastjórnun skilyrði
• Tölvufærni og haldgóð þekking á skjalastjórnunarkerfum
• Gott vald á íslensku og ensku, bæði í rituðu og töluðu máli
• Hæfni í mannlegum samskiptum og öguð vinnubrögð
• Geta hast frumkvæði og starfað sjálfstætt
Helstu kröfur:
• Menntun og reynsla sem nýtist í starfi
• Þekking og reynsla af gæðamálum skilyrði
• Þekking á orkuiðnaði kostur
• Hæfni í mannlegum samskiptum og öguð vinnubrögð
• Geta hast frumkvæði og starfað sjálfstætt
Helstu kröfur:
• Rafmagnstæknifræði, rafiðnfræði, kerfisfræði eða önnur
menntun og reynsla sem nýtist í starfi
• Góð þekking á PLC iðntölvum, PC tölvum og hugbúnaði
ásamt samskiptanetsbúnaði, s.s. ljósleiðarneti og öðru er
tilheyrir
• Haldgóð þekking í reglunarfræðum æskileg
• Hæfni í mannlegum samskiptum og öguð vinnubrögð
• Geta hast frumkvæði og starfað sjálfstætt
Veitingarekstur
í golfskálanum í Leiru
Golfklúbbur Suðurnesja óskar eftir umsóknum
í veitingarekstur í golfskála félagsins.
Um er að ræða gott viðskiptatækifæri.
Frekari upplýsingar veitir Gunnar Jóhannsson framkvæmdastjóri GS
í síma 846-0666 eða á gtj@gs.is
Umsóknarfrestur er til 22. febrúar 2013.
Sigursælir
Njarðvíkingar
Júdodeild Njarðvíkur gerði það gott um síðastliðna helgi
á afmælismóti JSÍ. Njarðvíkingar
voru á palli í 10 þyngdarflokkum
af 13, en keppt var í flokki 13 ára
til 21 árs. Njarðvíkingar hlutu
tvenn gullverðlaun, 6 silfur og 4
brons á mótinu. Í flokki 11-14 ára
voru 18 keppendur frá UMFN sem
allir voru bæjarfélaginu til mikils
sóma innan vallar sem utan. Ing-
ólfur Rögnvaldsson og Birna Þóra
Stefánsdóttir sigruðu m.a. sína
þyngdarflokka. Í Unglingaflokki
15-19 ára voru þrír keppendur
og komu tvö silfur og eitt brons
í hús.
Framherjinn Grétar Ólafur Hjartarson sem leikur með
Reyni Sandgerði íhugar þessa
dagana hvort hann ætli að halda
knattspyrnuiðkun áfram. Hann
sagði í samtali við VF að hann
lægi undir feldi og væri ekkert
farinn að æfa. Undirbúnings-
tímabilið á Íslandi er með lengra
móti og Grétar segir að eftir því
sem árin færist yfir þá verði fríið
yfirleitt lengra hjá honum.
Atli Eðvaldsson tók við þjálfun hjá
Reyni í haust og Grétar viðurkennir
að það sé freistandi að taka eitt
tímabil til viðbótar í boltanum.
„Eins og staðan er núna þá nenni
ég þessu ekki. En þegar grasið fer
að grænka þá breytist það kannski.“
Grétar segist vera í góðu ástandi en
í gegnum tíðina hefur hann verið
nokkuð óheppinn með meiðsli.
Þannig að spurningin er einfald-
lega hvort löngunin sé til staðar hjá
kappanum.
Grétar lék vel með Reynismönnum
í fyrra og hann segir gaman að vera
kominn á heimaslóðir. Hinn 35 ára
gamli framherji, sem er uppalinn
í Sandgerði lék síðast með Reyni
sumarið 1997, en hefur síðan verið
á mála hjá Stirling í Skotlandi,
Grindavík, KR og síðast Keflavík.
Grétar lék 23 leiki með Reyni í
fyrra og skoraði í þeim 12 mörk.
Alls á Grétar að baki 200 leiki á
Íslandi þar sem hann hefur skorað
85 mörk. Einnig á Grétar tvo lands-
leiki með undir 21 árs liði Íslands
og einn æfingaleik með A-lands-
liðinu árið 2002 gegn Brasilíu.
Grétar íhugar
að hætta
Arnór Ingvi,
Gunnar og Árni
Freyr með 21 árs
liði Íslands
Keflvíkingarnir Arnór Ingvi Traustason og Árni Freyr Ás-
geirsson eru báðir í landsliðshópi
U-21 árs liði Íslands sem lék gegn
Wales í gær. Úrslit leiksins lágu
ekki fyrir þegar Víkurfréttir fóru
í prentun.
Miðjumaðurinn Arnór Ingvi hefur
þegar leikið einn leik með U-21 árs
liðinu og hefur einnig leikið með
yngri landsliðum eins og Árni Freyr
sem gegnir stöðu markvarðar.
Einnig er Grindvíkingurinn Gunnar
Þorsteinsson í hópnum en hann er
á mála hjá enska liðinu Ipswich.
Keflavík tapaði
úrslitaleiknum
Breiðablik tryggði sér sigur á Fótbolta.net mótinu annað
árið í röð með því að leggja Kefl-
víkinga 3-0 í úrslitaleik í Kórnum
um síðastliðna helgi. Í fyrri hálf-
leik voru Blikar öllu sterkari
en bæði lið fengu hálffæri til að
skora. Eftir um það bil klukku-
tíma komust Blikar síðan yfir
þegar Viggó Kristjánsson skoraði
með skoti eftir fyrirgjöf frá Finni
Orra Margeirssyni.
Annað mark leiksins var sjálfs-
mark hjá varamanninum Andra
Fannari Freyssyni sem fékk boltann
í sig eftir baráttu við Andra Rafn
Yeoman og Árna Frey í markinu.
Í viðbótartíma innsiglaði vinstri
bakvörðurinn ungi Ósvald Jarl
Traustason síðan 3-0 sigur Blika
með fínu skoti á lofti úr vítateignum
í kjölfarið á hornspyrnu.
Jóhann kominn á skrið
Borðtenniskappinn Jóhann Rúnar Kristjáns-son er kominn aftur á ról eftir meiðsli en um
síðustu helgi tók hann sig til og vann 2. flokk á
punktamóti BTÍ.
Jóhann hefur verið að glíma við meiðsli, m.a. í oln-
boga en komst í úrslit um helgina þar sem hann mætti
Ara Bjarnasyni úr KR og vann hann örugglega 3-0
(11-3, 11-2 og 11-9).
Gunnar Þorsteinsson