Víkurfréttir - 07.02.2013, Page 24
Kirkjuklukkan í Ytri-Njarðvíkurkirkju hljómar einkennilega. Fæ alltaf sting í magann að hlusta
á hana klingja við athafnir. Hef
það sterklega á tilfinningunni að
það þurfi að stilla gripinn. Ég vil
hafa hljóminn tæran og skýran.
Viðurkenni þó að ég hef enga
þekkingu á því hvernig hún á
að hljóma, en eitthvað hlýtur að
þurfa að bæta. Sérstaklega núna
þegar aldurinn færist yfir og hlut-
skipti okkar verður æ algengara
að kveðja nána ættingja og samferðamenn. Það var
mér ljúfsárt fyrir skömmu að kveðja yndislegan mann,
sem reynst hafði mér ákaflega vel á árum áður. Upplifa
kynnin og ævisöguna á kveðjustund.
Ég hvarf rúmlega þrjátíu ár aftur í tímann. Strák-lingurinn ég að feta mín fyrstu skref á lífsbrautinni
og ekki úr vegi að gera það undir styrkri stjórn vel-
gjörðarfólks. „Kvaddi“ heimahagana og flutti inn á
nýju fjölskylduna á sautjánda ári. Varð einn af þeim frá
fyrsta degi. Kærastan á heimilinu einungis fimmtán,
að verða sextán. Námið í algleymingi og ungdómurinn
eins og flestir þekkja hann. Ýmist hlátur eða grátur.
Yfirvegun og gott atlæti hélt okkur kærustuparinu á
mottunni. Saltað hrossakjöt úr heimahaga reyndi á
þolrifin. Með tíð og tíma vann það á. Eldamennskan
í hávegum höfð á heimilinu. Sunnudagsmessan í út-
varpinu leið inn í herbergið með undraverðum ilmi
sem ekkert fékk staðist. Lambalæri eða lambahryggur
á borðum án undantekninga.
Dvöl mín breyttist úr dögum í vikur. Úr vikum í mánuði. Mánuðir urðu að árum. Lífið var leikur.
Við námslok beið mín fagurlega skreytt terta á út-
skriftardegi. Námsherbergið hafði getið af sér afurð
í ró og spekt. Fékk algjört næði þegar svo bar undir.
Snarkið í ritvélinni þýddi algera friðhelgi. Spurning
um hverjir væru stoltari, ég eða þau. Umhyggjan óum-
ræðileg. Skein í gegn. Lífið hélt áfram sinn vanagang
og árin fimm sem ég naut við á heimilinu reyndust
mér ógleymanleg. Lærði heil ósköp um lífið og til-
veruna. Lagði af stað með gott veganesti.
Stundirnar gleymast eigi svo glatt. Fylgdist með þeim hjónum af natni og nærgætni á hliðarlínunni.
Góðar kveðjur og umhyggja streymdu áfram jafn-
vel þó samskiptin hefðu smám saman dvínað. Innlit,
fyrirspurnir og jólakort tryggðu böndin á báða bóga.
Að æviskeiði loknu standa eftir angurværar minn-
ingar um góðmennsku og gjafmildi, sem seint verða
afmáðar. Vænleg arfleifð sem tekur nú við keflinu.
Prestinum var tíðrætt um vorið sem er á næsta leiti.
Regnið nærir alla sprettu, jafnt í lífinu sem og í nátt-
úrunni.
vf.is
Fimmtudagurinn 7. FEBrúar 2013 • 5. töluBlað • 34. árgangur
auglýsingasími víkurfrétta er 421 0001
Opið alla miðvikudaga frá kl. 8:00 – 16:00
Tímapantanir í síma 426 8540
Opið virka daga frá kl. 8:00 – 17:00
Frjáls mæting
VALUR KETILSSON SKRIFAR
FIMMTUDAGSVALS
Kia Sportage EX
Árgerð 2012, 136 hestafla dísilvél, sjálfskiptur,
4x4, ekinn 30.000 km, 6 ár eftir af ábyrgð.
Álfelgur, aksturstölva, hraðastillir, hiti í öllum sætum, loftkæling,
fjarstýrðar samlæsingar, þjófavörn og margt fleira. Eyðir aðeins
6,9 l/100 km í blönduðum akstri.*
Verð: 5.690.000 kr.
Mánaðarleg afborgun: 36.000 kr.**
*Skv. uppgefnum meðaleyðslutölum frá framleiðanda.
**Miðað við 3.600.000 kr. útborgun í peningum eða
með uppítökubíl ásamt láni frá ERGO til 84 mánaða.
Árleg hlutfallstala kostnaðar: 11,64%. Vextir: 9,70%.
Gæða-
bíll
Holtsgötu 52 · Reykjanesbær · Sími 420 5000 · ksteinarsson.is
Lífið í hnotskurnVetur konungur hefur látið lítið fyrir sér fara það sem
af er ári. Reyndar hefur veturinn
allur verið ansi mildur og fínn
hérna á suðvesturhorninu. Það
gefur því auga leið að snjómokstur
hjá bæjarfélögunum hefur tölu-
vert dregist saman og töluverðar
fjárhæðir sem sparast sökum þess,
ef svo má komast að orði.
Í janúar í fyrra eyddi Reykjanesbær
t.a.m. rúmum 10 milljónum króna í
snjómokstur og hálkueyðingu. Auk
þess var 5 milljónum varið til salt-
kaupa í sama mánuði. Í janúarmán-
uði 2013 voru útgjöldin 1,5 milljón
króna við snjómokstur. Sú upphæð
samsvarar einum snjóþungum
degi samkvæmt upplýsingum frá
Reykjanesbæ.
Oddný G. Harðardóttir, odd-viti Samfylkingarinnar í
Suðurkjördæmi og fyrrum bæjar-
stjóri í Garðinum, tapaði í kjöri
til varaformanns gegn Katrínu
Júlíusdóttur en kosið var um
embættið á landsfundi Samfylk-
ingarinnar um nýliðna helgi.
524 greiddu atkvæði í varafor-
mannskjörinu. Katrín hlaut 308
atkvæði eða 59% atkvæða. Oddný
hlaut 214 atkvæði eða 41%. Auðir
seðlar voru 2. Einungis þeir lands-
fundarfulltrúar sem greitt hafa
landsfundargjöld áttu rétt til þátt-
töku í kjörinu.
Árni Páll Árnason verður formaður
flokksins en hann hafði betur gegn
Guðbjarti Hannessyni.
Milljónir sparast í snjóleysi
Oddný verður ekki varaformaður