Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.05.2013, Side 8

Víkurfréttir - 08.05.2013, Side 8
miðvikudagurinn 8. maí 2013 • VÍKURFRÉTTIR8 Ferðamálasamtök Suðurnesja standa fyrir morgunverðarfundi um stöðu og framtíðarhorfur ferðaþjónustunnar á svæðinu miðvikudaginn 15. maí. Fundurinn hefst kl. 8:30 og fer fram í Eldey, þróunarsetri. MORGUNVERÐARFUNDUR FERÐAMÁLASAMTAKA SUÐURNESJA GÆÐI OG GOTT ORÐSPOR Skráning í Ferðamálasamtök Suðurnesja á staðnum. Allt áhugafólk um ferðaþjónustu velkomið. Stjórn Ferðamálasamtaka Suðurnesja Kl. 08:30 Morgunverður í boði Ferðamálasamtakanna Kl. 9:00 Ferðamálasamtök Suðurnesja: Starfið og stefnumótun. Sævar Baldursson, formaður. Kl. 9:15 Markaðsstofa Reykjaness: Ímynd svæðis og vörumerkið Reykjanes. Þuríður Aradóttir, verkefnastjóri Kl. 9:30 Reykjanes jarðvangur: Staða umsóknar og tækifæri í ferðaþjónustu á Reykjanesi. Eggert Sólberg Jónsson, verkefnastjóri Kl. 9:45 Kaffihlé Kl. 10:00 VAKINN: Gæða- og umhverfiskerfi ferðaþjónustunnar Áslaug Briem, verkefnastjóri gæðamála FMS Kl. 11.00 Almennar umræður Dagskrá: Söngsveitin Víkingar heldur sína árlegu vortónleika dagana 13., 14. og 15. maí nk. Yfirskrift tónleikanna er: Frá okkur til ykkar með sumarkveðju, enda er enginn aðgangseyrir innheimtur og allir velkomnir. Efnisskráin er að venju létt og skemmtileg, góð blanda af íslenskum og erlendum lögum frá ýmsum tímum. Við viljum hvetja Suðurnesjamenn til að nýta sér gott boð og fjölmenna á söngskemmtun Víkinganna undir stjórn Steinars Guðmundssonar. Tónleikarnir verða sem hér segir: Mánudaginn 13. maí í Útskálakirkju Þriðjudaginn 14. maí í Ytri-Njarðvíkurkirkju Miðvikudaginn 15. maí í Safnaðarheimilinu í Sandgerði. Tónleikarnir hefjast kl. 20.00 Stjórnin Það var þéttskipaður bekkurinn í Stapa á há-tíðardagskrá í tilefni af 1. maí, alþjóðlegum degi verkafólks. Yfir 600 manns mættu í Stapann til að hlusta á ræðuhöld, söng og skemmtun. Ræðu dagsins flutti Halldór Grönvold, aðstoðar- framkvæmdastjóri ASÍ. Þá söng Sönghópurinn Vox Felix og einnig Eldey, sem er kór eldri borgara. Guð- mundur Hermannsson lék ljúfa tónlist við upphaf dagskrár sem Guðbrandur Einarsson kynnti. Þá flutti Ragnar Örn Pétursson formaður Starfsmannafélags Suðurnesja setningarræðu dagsins. Á sama tíma og hátíðardagskráin var í Stapa var börnum boðið á bíósýningu í Sambíóinu í Keflavík. Eins og í Stapa þá var húsfyllir einnig í bíóinu. S lysavarnafélagið Landsbjörg, í samvinnu við Alcoa Fjarðarál, Dynj-anda ehf, EFLA verkfræðistofu, Eflingu stéttafélag, HB Granda, Isavia, Landsvirkjun, Neyðarlínuna, Tryggingamiðstöðina, Umferðar- stofu og Þekkingu, ætla að gefa öllum skólum á landinu endurskins- vesti til að nota í vettvangsferðum barna í 1. bekk. Þema þessa verkefnis er „Allir öruggir heim“ því öll eigum við rétt á því að koma örugg heim og á það ekki síst við um þau sem eru að hefja skólagöngu sína. Meðfylgjandi mynd var tekin þegar Kvennasveitin Dagbjörg í Reykjanesbæ afhenti fyrstu vestin í átakinu til Heiðarskóla í Reykjanesbæ. Frá okkur til ykkar með sumarkveðju! n Vortónleikar Víkinganna: n Hátíðarhöld á baráttudegi verkalýðsins vel sótt: „Allir öruggir heim“ „Uppselt“ á 1. maí í Stapa Vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja Kvennakór Suðurnesja hélt fyrri vortónleika sína í Ytri Njarðvíkur-kirkju á mánudagskvöld. Seinni tónleikar kórsins verða í kvöld, miðvikudagskvöld, í Keflavíkurkirkju og hefjast þeir kl. 20:00. Dagskrá tónleikanna er létt og skemmtileg og full ástæða til að hvetja Suður- nesjafólk til að lyfta sér upp yfir góðum tónleikum. VF-mynd: HBB

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.