Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.05.2013, Side 22

Víkurfréttir - 08.05.2013, Side 22
miðvikudagurinn 8. maí 2013 • VÍKURFRÉTTIR22 M enningarráð Suðurnesja hefur nú úthlutað styrkjum í síðasta sinn samkvæmt. samningi sem undirritaður var í Ráðherra- bústaðnum 15.4.2011. Breyting verður á vinnubrögðum og rennur nú fjármagn til menningarmála eftir einum farvegi og byggir á Sóknaráætlun hvers landshluta fyrir sig. En eins og við lok undan- genginna menningarsamninga var menningarráðstefnan „Menn- ingarlandið“ haldin á Kirkjubæjar- klaustri daganna 11 og 12 apríl. Að ráðstefnunni stóðu mennta- og menningarmálaráðuneytið, atvinnuvega- og nýsköpunar- ráðuneyti, Samband íslenskra sveitarfélaga og menningarráð Suðurlands í samstarfi við önnur menningarráð landsbyggðarinnar. Formaður Menningarráðs Suður- nesja ásamt verkefnastjóra sóttu ráðstefnuna sem var mjög áhuga- verð í alla staði. Leitast var við að svara spurningum eins og hvers virði er öflugt menningarstarf fyrir samfélagið? Hver er reynslan af menningarsamningunum ? Hafa upphafleg markmið sem lágu að baki samningunum náðst. Hvaða áhrif hafa breytingar í tengslum við sóknaráæltanir landshluta á menningarsamninga og starfsemi menningarráða ? Hvernig er hægt að tryggja að úthlutun opinberra fjármuna til lista- og menningar- tengdra verkefna sé faglega unnin? Mengin tilgangur ráðstefnunnar var að ræða framkvæmd og fram- tíð menningarsamninga ríkis og sveitarfélaga, sem og samstarf ríkis og sveitarfélaga við menningar- ráðin. Menningarsamningarnir renna allir út á þessu ári og því nauðsynlegt að meta reynsluna af þeim til að geta gert áætlanir um framhaldið m.a. með tilliti til sóknaráætlana landshluta. Það má segja að niðurstaða Menn- ingarlandsins hafi verið að það beri að halda menningarsamningunum áfram og samstarfi ríkis og sveitar- félaga. Samningarnir hafi styrkt menningarlífið á landsbyggðinni og eflt menningartengda ferðaþjónustu. Hér á Suðurnesjum varð samdráttur í umsóknum til Menningarráðs eftir hrun. En núna virðist sem umsóknum sé aftur að fjölga og verkefnin sem sótt er um fyrir er mun fjölbreytilegri en oft áður. Sótt var um styrki fyrir 70 verkefni samtals og hljóðuðu umsóknirnar upp á tæpar 94 milljónir króna. Til úthlutunar voru 18 milljónir króna til verkefnastyrkja og 9 milljónir króna til stofn- og rekstrarstyrkja. Að þessu sinni hlutu 36 verkefni styrki. Eftirfarandi verkefni hljóta styrki í maí 2013 1.500.000 Klassísk ballettverk fyrir áhorfendur á öllum aldri. Bryn Ballett Akadimían ehf Valin atriði úr tveimur klass- ískum ballettverkum við tónlist eftir Tchaikovsky „Svanavatnið“ og „hnotubrjóturinn“. Þrjár sýningar settar upp í apríl 2014 í menn- ingarhúsi Andrews á Ásbrú. 1.500.000 UPPSPRETTA Verkefnið er á vegum Toyista (toyism). Stefnt er að því að veita vatnstankinum við Vatnsholt í Reykjanesbæ andlistlyftingu sem mun sóma svæðinu vel. Þemað verður, uppspretta/orkugjafi. Hópurinn hefur skreytt mannvirki með góðum árangri í Hollandi. 1.500.000 Ferskir Vindar í Garði. Verkefnið er samfélagslegt menn- ingarverkefni sem vekur athygli á Suðurnesjum og laðar að fjölda fólks. Hátíðin hefur hlotið verð- skuldaða athygli, innanlands sem utan. Opnunarhátíðiin verður 18. Janúar 2014. 1.000.000 2 Tótar. Verkefnið er lítil falleg saga um það hversu sárt það er að missa vin. Frá- sagnarhátturinn er dálítið táknrænn því að fólk er oft með grímur til að leyna því hvernig því líður. Þá sér- staklega þeir sem eru þunglyndir. Í verkinu eru þeir trúðar og eru því bókstaflega með grímur allan tíman. 1.000.000 Saga slökkviliða á Íslandi. Áhugasamtök um sögu slökkviliða. Safnið mun segja sögu slökkviliða á Íslandi sem nær yfir 100 ár. Safnið verður staðsett í Ramma- húsinu í Reykjanesbæ. Safnið var vígt 13. apríl sl. í tilefni 100 ára afmælis Slökkviliðs Keflavíkur, síðar Brunavarna Suðurnesja. 1.000.000 Keflavík Music Festival 5. til 9. Júní 2013. Verkefnið er árleg tónlistarhátíð í Reykjanesbæ þar sem rjóminn af innlendum og erlendum tón- listarmönnum koma fram. 900.000 Með blik í augum III. Verkefnið er tónlistarverkefni sem flutt verður á fernum tón- leikum á Ljósanótt 2013. Gert er ráð fyrir að 30-40 einstaklingar komi að verkefninu með einum eða öðrum hætti. Þetta verk- efni er einn af stærri viðburðum Ljósanætur og veitir listafólki af Suðurnesjum tækifæri til þess að taka átt í metnaðarfullri sýningu þar sem hvergi er slegið af í kröfum 800.000 List án landa- mæra á Suðurnesjum. Verkefnið er hátíð fjölbreytileikans þar sem horft er á tækifæri en ekki takmarkanir. List án landamæra vill koma list fólks með fötlun á framfæri og koma á samstarfi á milli fatlaðs og ófatlaðs listafólks. Verkefnið er sameiginlegt verk- efni sveitarfélaga á Suðurnesjum. 800.000 Safnahelgi á Suðurnesjum. Er sameiginleg kynning sveitarfélag- anna á þeim söfnum, setrum og sýn- ingum sem eru í boði á Suðurnesjum utan hefðbundins ferðamannatíma. 750.000 Jesus christ Superstar í kirkjum á Suðurnesjum. Uppsetning þess á Jesus Christ Superstar byggir á sígildu formi óratoríunnar þar sem Bíblíufrásögn er flutt í söng og lesnu máli. Sjö manna hljómsveit leikur, fimmtíu kórfélagar syngja og valinn hópur einsöngvara flytur hin þekktu verk. 750.000 Óperuhátíð í Reykja- nesbæ. Verdi & Wagner 200 ára. Tvö af virtustu óperutónskáldum allra tíma eiga báðir 200 ára afmæli á árinu. Því telur Norður- óp við hæfi að halda glæsilega stórtónleika þeim til heiðurs. 650.000 Merkingar áhugaverðra staða innan Reykjanes jarðvangs. Verkefnið er að hanna og setja upp upplýsinga- og fræðsluskilti innan Reykjanes jarðvangs. Skilt- unum verður komið fyrir í öllum sveitarfélögum á Suðurnesjum. 600.000 Bryggjumenning í Grindavík 2013. Bryggjan kaffihús. Verkefnið er tvæþætt. Annars vegar útgerðar- og sjómannasýning með munum og myndum í kaffi- húsinu. Hins vegar lifandi við- burðir á „Bryggjunni“ bæði í töluðu máli og með tónlist. 500.000 Nýtt kynningar- efni fyrir Víkingaheima á fjórum tungumálum. Í Víkingaheimum eru fimm sýningar sem þarf að kynna og a.m.k. þrjár þeirra alveg frá grunni. Textar allra sýninganna fimm verða þýddir á fjögur tungumál. 500.000 Listahátíð barna vorið 2014. Listahátíðin er samstarfsverkefni Listasafns Reykjanesbæjar, allra 10 leikskóla bæjarins og allra 5 grunn- skólanna. Á listahátíðinni má sjá afrakstur þess frábæra starfs sem unnið er í skólum Reykjanesbæjar í skapandi greinum og með sam- starfi við Listasafnið er sköpuð fagleg umgjörð sem hæfir slíku starfi. 500.000 SAMSPIL – Færeysk og íslensk mynd- og tónlist á Suður- nesjum og Þórshöfn í Færeyjum. Verkefnið lýtur að kynningu á verkum fjögurra listamanna frá Færeyjum og íslandi, myndlista- manna og tónlistamanna. Sam- sýning á þremur stöðum, í Þórhöfn, Reykjanesbæ og Grindavík. 500.000 Upplýsinga- og fræðslu- skilti í Vogum. Hilmar Egill. Verkefnið lýtur að fjórum upp- lýsingaskiltum tengdum sögu og menningu í sveitarfélaginu Vogum. Skiltin eru ætluð til fræðslu jafnt fyrir heimamenn sem ferðafólk. Skiltin verða á tveimur tungumálum. 500.000 Kynningarmynd- band fyrir rannsóknir og skoðun náttúrufyrirbæra á Reykjanesi. Geocamp Iceland. Kynningarmyndband um Reykjanesið þar sem höfðað er til erlendra ferðamanna með sér- stakan áhuga á jarð- og náttúru- vísindum og þar sem gerð er sérstök grein fyrir áhugaverðum stöðum á Reykjanesi til rannsókna og verk- efnavinnu með raunverulegum dæmum og fyrirmyndum. 500.000 Söngleikurinn Grease. Uppsetning á söngleiknum Grease fyrir nemendur á grunnskólaaldri á Suðurnesjum. Söngleikurinn verður settur upp í Frumleikhúsinu í september og gefst nemendum í 8 til 10 bekk kostur á að taka þátt. 500.000 Saga Vatnsleysu- strandarhrepps og sveitarfélags- ins Voga vaknar á vefnum. Verkefnið lýtur að söfnun efnis um sögu sveitarfélagsins frá landnámi til nútíma í bókum, greinum, skjölum, ljósmyndum og kvik- myndum. Efnið verður sett upp sem aðlaðandi og aðgengilegur vefur. 27 milljónir króna til menningarmála MENNING n Menningarráð Suðurnesja úthlutar styrkjum til verkefna á Suðurnesjum n Sótt um styrki fyrir 70 verkefni n Alls fengu 36 aðilar verkefni styrki Fulltrúar þeirra sem hlutu styrki Menningarráðs Suðurnesja ásamt nefndarmönnum.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.