Víkurfréttir - 08.05.2013, Side 18
miðvikudagurinn 8. maí 2013 • VÍKURFRÉTTIR18
Dreymdi ótrúlega skrýtinn draum í vik-
unni - jú nefnilega að ég væri í sambúð
með Pétri Pan, ég var sjálf Vanda og saman
áttum við tvö börn, Gosa og Öskubusku.
Eins og gefur að skilja var samband okkar
Péturs litað af veikleika hans: að neita því
að þroskast eins og fullorðnum einstak-
ling sæmir. Ég var ein af mörgum konum
sem hann hafði verið í sambandi með því
munstrið hans er að fara úr einu
sambandi í annað og ,,neita“ því
að fullorðnast en eins og við vitum
þá heldur Pétur Pan í bernskuna
með því að vera óbundinn og
frjáls. Hann á erfitt með að horfast
í augu við raunveruleikann og flýr
þess vegna í Einskismannsland
með frjálsum vinum sínum þegar
á reynir. Ástæðan fyrir þessum
tilfinningum er kvíði, einmana-
leiki og ótraust sjálfsmynd sem
veldur því að hann á í erfiðleikum
að vera í nánu gagnkvæmu ástar-
sambandi eða hann hefur hreint
og beint ekki þol né getu til að
takast á við alvöru samband. En þar sem
ég var Vanda, þá var Pétur Pan drauma-
prinsinn holdi klæddur.
Ég var frekar eins og mamma Péturs en
sambýlingur. Ég afsakaði ábyrgðarleysi
hans og strákslega hegðun fyrir öðrum
með því að segja ,,æ þessi elska, er bara eins
og eitt af börnunum mínum, getur ekki án
mín verið“. Ég gerði mig algerlega ómiss-
andi, og elskaði þegar Pétur minn sagði
,,ég skil ekki hvernig ég fór að áður en ég
kynntist þér“ svona rétt áður en hann fór
í fjögurra daga pókerferð með strákunum
til London. Sem Vanda vissi ég hvernig ég
átti að fá Pétur til að gera það sem ég vildi
og hann kom sér oft út úr vandamálum
með því að segja ,,já alveg rétt elskan“ en
tók samt aldrei á málunum í raun og veru.
Þegar Pétur Pan gekk fram af mér þá not-
aði ég hefndaraðgerðir eins og að fara og
eyða fullt af peningum í hluti sem mig
vantaði ekki neitt eða hótaði honum með
,,klæddu þig bara í grænu sokkabuxurnar
og forðaðu þér í Einskismannsland -“ á
meðan við vissum bæði að hann var eins
og teygja sem kom alltaf til baka.
Börnin mín í draumnum auðvelduðu
ekki málin. Öskubuska beið eftir að vera
bjargað frá þessu leiðindaheimili og var
nokkuð viss um að prinsinn á hvíta hest-
inum mundi banka upp einn daginn með
skó sem passaði einmitt á hana. Hún gekk
um húsið með vandlætingasvip því hún
átti svo mun betra skilið og bara tíma-
spursmál hvenær hún mundi flytja inn
í höllina þar sem prinsinn mundi bera
hana á höndum sér. Hún var hætt að sína
metnað í námi því hennar hlutverk í fram-
tíðinni mundi ekki tengjast akademískum
heimi, hún mundi helga það prinsinum
og börnunum og það tekur nú sinn tíma
að halda heilli höll í standi. Hún notaði
setningar eins og ,,bíðið þið bara því þegar
ég er flutt héðan og búin að eignast það líf
sem ég á svo skilið skal ég sýna ykkur hvað
í mér býr“.
Gosi var kapítuli út af fyrir sig. Hann lenti
í slæmum félagsskap og vissi ekki lengur
muninn á réttu og röngu. Hann vann sem
plötusnúður á næturklúbbi og var mest
umhugað um álit annarra, græða sem
mestan pening og eiga þannig fyrir hinu
ljúfa lífi sem freistaði hans mikið. Nefið á
honum stækkaði með hverjum deginum
og nokkuð ljóst að vinur hans, Siggi Sam-
viska, hafði lítil áhrif.
Ég vaknaði sveitt og sá Disney persón-
urnar í nýju ljósi - var undirmeðvitundin
að segja að ég ætti við Vöndu-vanda að
stríða? Þakkaði samt fyrir að hafa ekki
verið ,,vonda stjúpan“ í Mjallhvít og dverg-
arnir sjö eða agalega Grimmhildur Grá-
mann, sú freka, ríka og stjórnsama kona
í 101 Dalmatíuhundur, sem lét græðgi og
hégóma stýra lífi sínu. En það var einmitt
hún sem var ofarlega í huga mér þegar ég
fór í göngutúr til að greina þetta frekar og
verð að nota tækifærið og biðja vesalings
konuna með hundana afsökunar. Þegar ég
sá hana koma labbandi með fjóra hunda sá
ég bara fyrir mér Grimmhildi, sem stelur
hundum því hana langar í hvolpaskinns-
kápu með hettu. Það voru því algjörlega
ósjálfráð viðbrögð að stoppa og öskra á
eftir henni ,,að þú skulir ekki skammast
þín“.
Ætla að reyna að dreyma að ég sé Lína-
langsokkur eða Ronja ræningjadóttir
þessa vikuna. Það er meira ég!!
Þangað til næst - gangi þér vel!
Anna Lóa
Fylgstu með mér - http://www.
facebook.com/Hamingjuhornid
Dularfulli Disney draumurinn!
ANNA LÓA
ÓLAFSDÓTTIR
SKRIFAR
HAmINgjuHoRNIð
Anna Lóa
Ætla að reyna að
dreyma að ég sé
Lína langsokkur
eða Ronja ræningja-
dóttir þessa vikuna.
Það er meira ég!!
Stolt Sea Farm leitar að áhugasömu almennu starfsfólki í
fiskeldisstöð fyrirtækisins úti á Reykjanesi.
Leitað er að jákvæðum, heiðarlegum, duglegum og
útsjónarsömum einstaklingum sem hafa áhuga á
að taka þátt í uppbyggingu á nýju fyrirtæki.
Starfsreynsla í fiskeldi, fiskvinnslu,
sjómennsku er góður grunnur.
Öllum umsóknum verður svarað
Umsókn ásamt ferilskrá skal senda á ssficeland@stolt.com
ATVINNA
Aðeins rafrænar
umsóknir hjá
Vinnuskóla
Reykjanesbæjar
opnað verður fyrir umsóknir hjá Vinnuskóla Reykjanes-
bæjar miðvikudaginn 8. maí á vef-
síðu Reykjanesbæjar en einungis
er hægt að sækja um rafrænt.
Forráðamenn fá í kjölfarið tölvu-
póst með helstu upplýsingum og á
hvaða tímabil unglingurinn fer.
Fyrstu 200 sem sækja um á A-
tímabil eru í forgangi og eftir það
er einungis hægt að sækja um á B-
tímabilið.
Lögð er sérstök áhersla á að reikn-
ingsnúmer nemanda sé þeirra eigið
og á þeirra kennitölu, því öðruvísi
er ekki hægt að taka við umsókn-
inni. Ef nemandi á ekki reikn-
ingsnúmer þarf að fara í banka og
stofna reikning áður en umsókn er
lögð inn.
Vinnutímabil sumarið 2013
9. bekkur og 10. bekkur
– fá vinnu í 4 vikur.
A-tímabil hefst 10. júní og er til 4.
júlí. (Unnið föstudaginn 21. júní
til 12:00)
B-tímabil hefst 8. júlí og er til 1.
ágúst.
Unnið er frá 08:00 til 16:00 mánu-
dag til fimmtudags.
Frí á föstudögum, nema annað sé
tekið fram.
8. bekkur
– fá vinnu í 3. vikur.
A-tímabil hefst 18. júní og er til 4.
júlí. (Unnið föstudaginn 21. júní
til 12:00)
B-tímabil hefst 15. júlí og er til 1.
ágúst.
Unnið er frá 08:00 til 12:00 mánu-
dag til fimmtudags.
Frí á föstudögum, nema annað sé
tekið fram.
Við bjóðum alla unglinga velkomna
í Vinnuskólann í sumar.
Nánari upplýsingar er að nálgast
á vefsíðu Reykjanesbæjar, www.
reykjanesbaer.is
Vinnuskólinn er á vegum Um-
hverfis- og skipulagssviðs Reykja-
nesbæjar.
Kveðja, Berglind Ásgeirsdóttir
garðyrkjufræðingur
og yfirmaður vinnuskóla
H jálpræðisherinn í Reykja-nesbæ rekur öflugt æsku-
lýðsstarf. Í lok júní fer 25 manna
hópur á vegum Hersins á sumar-
mót í Noregi og eru krakkarnir
búnir að leggja mikið á sig til að
afla fjár fyrir þessa ferð.
Á uppstigningardag, 9. maí, ætlum
við að gera okkur glaðan dag og efla
til flókamarkaðs, kaffi- og kökusölu
í „Gömlu Grágás“, Vallargötu 14,
klukkan 12-15. Vonum að sem
flestir vilji koma og styðja þetta
framtak, segir í tilkynningu.
S tóru-Vogaskóli í Vogum á Vatnsleysuströnd tekur nú
þátt í Comeniusar verkefni í
fjórða sinn og er yfirskrift verk-
efnisins “A Healthy Mind in a
Healthy Body” (Heilbrigð sál í
hraustum líkama).
Comeniusar verkefni eru evrópsk
samstarfsverkefni sem stuðla að
auknum samskiptum og sam-
vinnu milli evrópskra skóla og
eru studd af Evrópusambandinu.
Samstarfsaðilar í verkefninu eru
skólar frá Hollandi, Skotlandi,
Slóveníu, Tékklandi, Spáni og
Ítalíu en nemendur úr skólunum
taka virkan þátt í verkefninu
sem er fjölbreytt og skemmtilegt.
Áhersla er lögð á heilbrigt líf-
erni, aukna hreyfingu og hollt
mataræði. Í verkefninu er unnið
út frá fjölbreytileika og ólíkum
venjum í hverju landi þótt megin
markmiðið sé að stuðla almennt
að bættri heilsu, jafnrétti og sjálf-
bærni.
Nemendur bera saman ýmsa
þætti og kynna fyrir öðrum þátt-
takendum; svefn- og matarvenjur,
mismunandi íþróttir og leikir,
heilbrigt mataræði og endur-
vinnsla eru meðal verkefna en
hefðir landanna í þessum efnum
eru um margt ólíkar.
Á Vorsýningu Stóru-Vogaskóla
sem haldin verður á uppstign-
ingardag 9. maí 2013 verður
verkefnið kynnt með myndum og
glærum sem nemendur skólans
hafa unnið.
„Heilbrigð sál í
hraustum líkama“
n Stóru-Vogaskóli:Æskulýðsstarf
Hjálpræðishersins
með flóamarkað
Daglegar
fréttir
á vf.is