Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.05.2013, Síða 16

Víkurfréttir - 08.05.2013, Síða 16
miðvikudagurinn 8. maí 2013 • VÍKURFRÉTTIR16 TIL HAMINGJU MEÐ SIGURINN Í SKÓLAHREYSTI Reykjanesbær óskar Holtaskóla til hamingju með glæsilegan árangur í Skólahreysti, þriðja árið í röð. Reykjanesbær – heilbrigður bær! „Það er ekkert nema ást og umhyggja í matnum hérna hjá okkur,“ sögðu konurnar í mötu- neyti Holtaskóla þegar blaða- maður ýjaði að því að það hlyti nú að vera eitthvað sérstakt í fæðinu sem gerði það að verkum að skólinn næði þessum einstaka árangri í Skólahreysti. Síðast- liðinn fimmtudag náði Holta- skóli þeim ótrúlega árangri að sigra Skólahreysti í þriðja sinn í röð. Holtaskóli tók þátt í úr- slitum ásamt Myllubakkaskóla sem hafnaði í fimmta sæti af 12 liðum. Lið Holtaskóla í ár var skipað þeim Theodór Sigurbergs- syni, Kolbrúnu Júlíu Newman, Guðmundi Ólafssyni, Ingibjörgu Sól Jónsdóttur og Thelmu Hrund Helgadóttur. Bæði í riðlakeppninni og úrslita- keppninni sjálfri sigraði skólinn ekki eina einustu þraut. Það er þannig að liðsheildin og sú stað- reynd að liðið er ofarlega í öllum þrautum sem skilar þessum frá- bæra árangri. „Ég átti alls ekki von á þessu og var hreinlega búinn að sætta mig við fjórða sætið. Þessu er bara stillt hérna upp fyrir okkur, við vinnum þetta alltaf,“ sagði Theodór í nokkurri geðshræringu að lokinni keppni í Laugardalshöll. Theodór viðukenndi að úrslitin hafi komið flatt upp á hann þar sem skólinn hafi ekki sigrað neina grein. Hann sjálfur sá um upphýfingar og dýfur fyrir skólann. Kolbrún Júlía Newman sem sá um armbeygjur var sátt við árangur liðsins en hún sagðist ekki eiga svör við því af hverju þessi uppgangur væri að eiga sér stað í Holtaskóla. Theodór var þó með þær skýringar að vel væri haldið utan um þessa keppni í Holtaskóla og mikil áhersla lögð á að æfa vel. Ætlaði sér Íslandsmet Þau Ingibjörg Sól Jónsdóttir og Guðmundur Ólafsson, sem sáu um hraðaþrautina, voru sigurreif þegar blaðamaður Víkurfrétta sveif á þau að lokinni verðlaunaafhendingu. Guðmundur átti æsilegan loka- sprett í hraðaþrautinni þar sem segja mætti að sigurinn hafi komið í hús. Á lokasprettinum sagðist Guðmundur Ólafsson hafa verið að hugsa um að bæta Íslandsmet frekar en um um að sigra keppn- ina. „Ég ætlaði mér Íslandsmet en sigurinn er mun betri,“ sagði Guð- mundur. Íþróttakennarar Holtaskóla eiga sjálfsagt þátt í árangri liðsins þrátt fyrir að ábyrgðin sé sett töluvert í hendur keppenda. Bergþór Magnússon annar íþróttakennara skólans segir að krakkarnir séu samviskusamir og tilbúnir að tak- ast á við hin ýmsu verkefni sem liggja fyrir. „Þau hafa frábærar fyrirmyndir sem hafa verið hérna undafarin ár. Þau feta í þeirra fót- spor.“ Bergþór segir íþróttastarf í bæjarfélaginu vera til fyrirmyndar og vissulega hjálpi það líka til. „Það eru fá bæjarfélög sem státa af jafn öflugu íþróttastarfi og Reykjanes- bær.“ Hetjurnar hylltar Haldin var sigurhátíð á sal Holta- skóla morguninn eftir hinn frækna sigur þar sem hetjur skólans voru hylltar. Skólastjórinn Jóhann Geir- dal var stoltur af nemendum sínum en skólinn er nú sá eini sem sigrað hefur keppnina þrisvar sinnum en alls hafa níu keppnir verið haldnar. „Það er ábyggilega verið að gera eitthvað sérstakt hérna hjá okkur. Hvað það er er ekki gott að segja til um. Ég þakka fyrst og fremst liðs- heildinni hérna í skólanum. Bæði nemendur, starfsmenn og foreldrar eru lifandi í því sem verið er að gera. Það er mjög mikilvægt.,“ segir Jóhann. Blaðamaður spyr að því hvort pressan verði nokkuð of mikil á næstu keppendur en þrír af fimm liðsmönnum verða frá að hverfa í framhaldsskóla næsta haust. „Það er auðvitað mikilvægt að passa að svo verði ekki. Auðvitað er gaman þegar að vel gengur og við vonumst eftir að svo verði áfram. Það er hins vegar mjög góður árangur að komast bara í þessa úrslitakeppni.“ Jóhann segir að árangur skólanna sé eftirtektaverður og að óvíða sé stemmningin fyrir Skólahreysti meiri en í Reykjanesbæ. skólahreysti Árangur skóla frá Suður-nesjum hefur verið frábær frá upphafi og eiga ungmenni héðan m.a. tvö Íslandsmet. Jó- hanna Júlía Júlíusdóttir nemandi í Myllubakkaskóla tók 177 arm- beygjur í fyrra. Þar bætti hún fyrra metið um 70 armbeygjur sem verður að teljast alveg ótrú- legt. Fyrir skömmu vakti svo glæsilegt Íslandsmet Elvu Lísu Sveinsdóttur úr Njarðvíkurskóla verðskuldaða athygli. Heiðar- skóli sigraði keppnina árið 2009 en skólinn hefur hafnað í öðru sæti árin 2010 og 2012. Holtaskóla-Hreysti Magnað afrek hjá Holtaskóla sem sigraði Skólahreysti þriðja árið í röð Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykja- nesbæjar segir bæjarfélagið mjög stolt af unga fólkinu sem hefur sýnt og sannað að þegar menn einsetja sér að ná árangri, æfa sig vel, hafa skýra sýn á markmiðið og kunna að framfylgja því þegar á hólminn er komið, er allt hægt. „Þetta sýna nemendur okkar í Skólahreysti og eru einnig að sýna það í almennu bóknámi. Þetta er því gríðarlega mikilvæg aðferðarfræði fyrir allt lífið. Árangur unga fólksins okkar í Skólahreysti hvetur okkur öll áfram, hvar sem við störfum, til að ná settum markmiðum og stuðla þannig að hamingju og heilbrigði allra íbúanna,“ sagði bæjarstjórinn í samtali við Víkurfréttir. Fyrri árangur Suðurnesja- manna í Skólahreysti Guðmundur Ólafsson átti rosalegan enda- sprett í tímaþrautinni. Sindri Kristinn Óskars- son úr Myllubakka- skóla var ansi snöggur. Bikarinn á loft.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.