Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.05.2013, Síða 23

Víkurfréttir - 08.05.2013, Síða 23
VÍKURFRÉTTIR • miðvikudagurinn 8. maí 2013 23 400.000 Leiðsögn um tökustaði ís- lenskra kvikmynda á Suðurnesjum. Verkefnið lýtur að því að safna saman og gefa út upplýsingar um kvikmyndatökustaði íslenskra kvikmynda á Suðurnesjum. Upp- lýsingarnar verða gefnar út á prentuðu korti og sem smáforrit. Leiðsögnin gefur fólki tækifæri að upplifa Suðurnes á annan hátt en áður þekkist, í gegnum heim íslenskra kvikmynda. 300.000 Kynning á bók- menntaarfinum. Almenningsbókasöfnin á Suður- nesjum hafa á undanförnum árum haft samstarf um menningarvið- burði þar sem bókmenntir, rithöf- undar og skáld hafa verið kynnt. 250.000 Skúlptúra. Skúlptúra er samvinnuverkefni leik- skólabarna í Heilsuleikskólanum króki og myndhöggvarans Önnu Sigríðar Sigurjónsdóttur í skúlptúr- gerð með efnivið úr náttúrunni 200.000 Íbúð kanans Sýningin íbúð kanans er ætlað að gefa innsýn í hversdagslíf bandaríska hermanna á Íslandi og skoða jafn- framt hvaða áhrif þeir höfðu á menningu þeirra sem bjuggu hinum megin við hliðið og öfugt. 200.000 Ljóðatónleikar í Stapa í október vegna 70 ára afmælis tónskáldsins, Eiríks Árna Sigtryggssonar. 20 ný sönglög verða frumflutt. Tónleikarnir verða endahnútur á löngu ferli tónsmíða og æfinga. 200.000 Heimskautin heilla á ensku Hin glæsilega sýning Heim- skautin heilla var opnuð árið 2007 í húsnæði Þekkingarseturs Suðurnesja. Sýningin fjallar um líf og störf franska læknisins og heimskautafarans Jean-Baptiste Charcot og vekur sérstaka athygli vegna skemmtilegrar og vandaðrar uppsetningar, en umgjörðin líkist því að ganga um boð í skip. 200.000 Hafið bláa hafið. Stóru-Vogaskóli. Verkefnið er samstarfsverkefni Stóru Vogaskóla, leikskólans Suðurvalla og menningarmiðstöðvarinnar Hlöðunnar. Verkefninu er ætlað að styrkja tengsl grunnskóla og leikskóla og tengsl barnanna við menningarlíf í bæjum sínum. Eftirfarandi verkefni hljóta stofn- og rekstrarstyrkir í maí 2013 2.000.000 Fischershús, endurgerð. Fischershús er eitt af merkustu húsum bæjarins, byggt 1881 og kom tilsniðið frá Danmörku. Þetta þótti á sínum tíma eitt glæsilegasta hús landsins og er merkilegt á landsvísu. Mikil ábyrgð er hjá Suður- nsejamönnum að endurgera það á sem uppraunalegastan hátt. 2.000.000 Endurgerð Bryggjuhúss Duushúsa. Unnið hefur verið við endurgerð Duushúsanna síðan árið 2002 og nú er svo komið að aðeins á eftir að ljúka fjórða áfanga, Bryggjuhúsinu að innan. Húsið var byggt 1877 og er eitt stærsta pakkhús sinnar tegundar á Íslandi og því menningarsöugulega verðmætt fyrir alla þjóðina. 1.000.000 Rekstur sýninga hjá Þekkingarsetri Suðurnesja. Tvær sýningar eru í húsi Þekk- ingarsetursins sem setrið rekur en eru í eigu Sandgerðisbæjar. Báðar sýningarnar eru opnar alla virka daga og um helgar yfir sumartímann. 1.000.000 Listasafn Reykjanesbæjar. Listasafn Reykjanesbæjar er eina listasafnið á Suðurnesjum og hefur sem slíkt ákveðnum skyldum að gegna og starfar eftir safnalögum. Setta eru upp a.m.k. 6 sýningar á ári. 800.000 Bátasafn Gríms Karlssonar. Bátasafnið átti 10 ára afmæli í fyrra. Af því tilefni voru keypt 20 líkön af Grími sem þarf að koma í sýningarkassa. Fjöldi báta í safninu er nú orðinn 130 talsins. 700.000 Sjólyst í Gerðum – Minjasafn og fræðasetur. Í Sjólyst bjó hin landsfræga Una Guðmundsdóttir eða Völva Suður- nesja. Hugmyndin er að koma húsinu Sjólyst í upprunalegt horf. 600.000 Nýsköpun og viðhald á tónlistarlegri menningararfleifð Suðurnesja. Geimsteinn ehf. Geimsteinn er elsta starfandi hljómplötuútgáfa á Íslandi og hefur haldið merkjum Suðurnesja- manna á lofti frá 1976. Samhliða hefur verið rekið safn um okkar dáðasta tónlistarmann, Rúnar Júlíusson, frá árinu 2009 sem er orðinn ómissandi hlekkur í ferðaþjónustunni á Suðurnesjaum. 500.000 Rekstur myndasafns. Byggðasafn Reykjanesbæjar. Vefvæðing myndasafnsins hófst á síðasta ári þá náðist góður árangur, við áramót var búið að skanna inn 8483 myndir og tengja þær við safnskrá. 400.000 Efra Sandgerði – varð- veisla og endurbygging á elsta húsi í Sandgerði. Húsið er byggt árið 1883 af Svein- birni Þórðarsyni útvegsbónda, er húsið því 130 ára gamalt. Lions- klúbburinn í Sandgerði hefur farið fyrir endurbyggingunni. Samtals 27 styrkir til verkefna að fjárhæð kr. 18.000.000. Samtals 9 stofn og rekstrar- styrkir að fjárhæð kr. 9.000.000. Fisktækniskóli Íslands Icelandic College of Fisheries Víkurbraut 56 240 Grindavík Sími: 412 5966 www.fiskt.is www.facebook.com/fisktaekniskoli info@fiskt.is Fisktækniskóli Íslands Fisktækniskólinn býður upp á stutt, skemmtilegt og hagnýtt einingabært nám sem opnar þér fjölda möguleika í vel launuð störf í sjávarútvegi auk möguleika á framhaldsnámi að loknu grunnnámi. Námið er til tveggja ára og með mikla áherslu á tengingu við atvinnulífið og vinnustaðaþjálfun. Námsárið skiptist í eina önn í skóla með áherslu á faggreinar og eina önn á vinnustað undir leiðsögn tilsjónarmanns. Fólk sem vill hasla sér völl í þeim greinum sem skólinn býður upp á fær því gott tækifæri að mynda góðar tengingar út í atvinnulífið auk þess að búa sig undir frekara nám. Náminu lýkur með framhaldsskólaprófi. Fisktækniskólinn býður upp á nám í: Fiskvinnslu, sjómennsku, fiskeldi og netagerð. Skólaakstur af Suðurnesjum – Ferkari upplýsingar á skrifstofu skólans í síma 412-5966 Samstarfsaðilar Fisktækniskólans eru: Einhamar ehf, Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur, Stakkavík ehf, Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur, Verkakýðsfélag Grindavíkur, Vísir ehf, Þorbjörn ehf, Þróttur ehf, Fræðsluaðilar og sveitarfélög á Suðurnesjum Óðinsvellir 10 230 Reykjanesbær Glæsilegt einbýlishús Stærð: 201 fm Fjöldi herbergja: 6 Byggingarár: 1997 Fasteignamat: 34.100.000 Bílskúr: Já Verð: 43.700.000 RE/MAX Alpha kynnir: Glæsilegt einbýlishús á eftirsóttum stað í Reykjanesbæ. Fjögur svefnherbergi, stór stofa og eldhús í opnu rými. Glæsilegur sólpallur og hellulögð stétt í sólríkum suður-garði. Allar upplýsingar veitir Davíð Ólafsson í síma 897 1533 eða david@remax.is Alpha Haukur Halldórsson Lögg. fast. hdl. Davíð Ólafsson Sölufulltrúi haukurhalldors@remax.is david@remax.is Fjögur svefnhverbergi og stór stofa RE/MAX Alpha - Skeifan 17 - 108 Reykjavík - Sími: 4777777 - www.remax.is 4777777 897 1533 Sýningin Íbúð kanans, lífið á vellinum verður opnuð í Off- isera klúbbnum á Ásbrú mið- vikudaginn 8. maí nk. kl. 17:00. Í tilefni af opnuninni verður opin sýningarhelgi 11. og 12. maí frá kl. 13:00 - 17:00. Sýningin hvetur til samtals um hálfrar aldar sögu varnarliðs á Ís- landi. Segja má að Bandaríkjamenn, her- menn og borgarar sem störfuðu á varnarstöðinni í Keflavík hafi verið hluti af daglegu lífi Suður- nesjamanna óslitið í hálfa öld. Í september 2006 lauk þeirri sögu er síðasti hermaðurinn fór af landi brott en talið er að alls hafi rúm- lega tvö hundruð þúsund Banda- ríkjamenn starfað eða dvalið hér á landi á vegum varnarliðsins frá upphafi. Þá hafa þúsundir Íslend- inga komið að rekstrinum með einum eða öðrum hætti. Markmið sýningarinnar er að gefa innsýn í hversdagslíf bandarískra hermanna á Íslandi og skoða jafn- framt hvort og hvaða áhrif þeir höfðu á menningu þeirra sem bjuggu hinum megin við hliðið, og öfugt. Sýningunni er jafn- framt ætlað að varpa fram nýrri sýn á herstöðina sem oft hefur verið neikvæð og pólitísk. Hér er sjónum beint að hinu hvers- dagslega og því persónulega, að fólkinu sem þar bjó og samskipti þeirra skoðuð sem og menningar- leg áhrif á báða bóga. Þetta er vinsamlega snertið sýn- ing. Gestir eru hvattir til þess að miðla sinni reynslu og sögu og geta þeir skráð hana í gestabók á staðnum. Þá verður hægt að gefa muni til sýningarinnar og verður hún uppfærð eftir því sem ábend- ingar berast frá gestum. Sýningarstjóri er Dagný Gísla- dóttir og er sýningin hluti af mast- ersverkefni í hagnýtri menningar- miðlun við Háskóla Íslands. Life on a nato base Sýning um hversdagslíf bandarískra hermanna á varnarstöðinni í Keflavík SP 607 West Avenue á Ásbrú Íbúð kanans, LÍfið á veLLinum

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.