Bæjarins besta - 12.04.2007, Side 3
FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2007 3
Ómar Már Jónsson, sveit-
arstjóri Súðavíkurhrepps, seg-
ir fjárhagslega stöðu sveitar-
félaga segja á margan hátt til
um hversu framsækið sveitar-
félagið getur leyft sér að vera,
en eins og kunnugt er, er Súða-
víkurhreppur eitt fárra sveit-
arfélaga sem skilað hefur
hagnaði síðustu árin.
„Ársreikningar marga sveit-
arfélaga á landsbyggðinni
undanfarin ár sýna því miður
ekki sýna ekki góða stöðu eða
þróun. Þar er ekki eingöngu
um vestfirsk sveitarfélög,
heldur er að finna sambæri-
lega þróun víða“, segir Ómar
á bloggsíðu sinni. „Hafa ber í
huga að stór hluti þeirrar stöðu
er vegna breytinga sem hafa
verið að eiga sér stað, s.s. verk-
efnaflutningar frá ríki til sveit-
arfélaga þar sem ekki nægt
fjármagn hefur fylgt með auk
þess sem sveitarfélögin eru
að verða af útsvarstekjum íbúa
sinna vegna aukningar einka-
hlutafélaga en ríkið fær nú í
formi fjármagnstekna. Jafn-
framt hefur fækkun íbúa haft
sitt að segja í minni tekjum
sveitarfélaga.“
Þá bendir hann á að hagn-
aður áranna 2002-2005 í
Súðavíkurhreppi var samtals
28,8 milljónir króna. Í Súða-
víkurhreppi bjuggu 235 manns
árið 2005. „Þetta eru jákvæðar
fréttir af fjárhag sveitarfélaga
frá Vestfjörðum“, segir Ómar
Már. – eirikur@bb.isÓmar Már Jónsson.
Segir ekki nægt fjármagn hafa fylgt með
verkefnaflutningum til sveitarfélaga
Fasteignir Ísafjarðarbæjar selja Múlaland 14
Fasteignir Ísafjarðarbæjar ehf. hafa ákveðið að selja fjölbýlishúsið að Múlalandi 14
Ísafirði. Þetta var ákveðið á nýliðnum stjórnarfundi fyrirtækisins. Í húsinu sem er
byggt árið 1990 eru 10 íbúðir og verður húsið selt í heilu lagi. Síðar er ráðgert að
fjölbýlishúsið að Fjarðargötu 30, Þingeyri verði boðið til sölu í heilu lagi. Í því húsi
eru 9 íbúðir. Auk þessa verður haldið áfram þeirri stefnu að fækka stökum íbúðum í
eigu félagsins. Á sl. ári voru seldar 17 íbúðir, þar á meðal eitt fjölbýlishús á Suð-
ureyri með 8 íbúðum. Í dag eru 150 íbúðir í eigu Fasteigna Ísafjarðarbæjar ehf.
Vélarvana línubát-
ur í Ísafjarðardjúpi
Björgunarskipið Gunnar
Friðriksson frá Ísafirði var
kallað út skömmu eftir kl. 10
að morgni þriðjudags er línu-
báturinn Ísbjörg ÍS-69 til-
kynnti að báturinn væri vélar-
vana. Skipstjóri Ísbjargar
hafði samband við Vaktstöð
siglinga kl. 10:03 og lét vita
að báturinn væri vélarvana á
Ísafjarðardjúpi og sjór væri
kominn í vélarrúm. Ísbjörg var
þá þrjá og hálfa sjómílu norð-
austur af Arnarnesi í Skutuls-
firði.
Björgunarsveitir og –skip
voru þegar kölluð út en einnig
var haft samband við nær-
staddan bát, Val ÍS-20, og hann
beðinn um að koma Ísbjörgu
til aðstoðar. Þegar björgunar-
skipið kom að var Valur þegar
kominn með Ísbjörgu í tog,
en skömmu áður hafði verið
komist fyrir lekann. Björgun-
arskipið tók við Ísbjörgu kl.
10:50 og dró til Ísafjarðar. Ís-
björg er 6 tonna línu- og hand-
færabátur með tveggja manna
áhöfn. Áhöfnina sakaði ekki. Björgunarskipið Gunnar Friðriksson dregur Ísbjörgu að bryggju á Ísafirði.
Merkilegar heimildir fyrrum fréttarit-
ara um mannlíf og bæjarbrag Ísafjarðar
Sýning á fréttamyndum
Jóns Páls Halldórssonar
var opnuð í Safnahúsinu á
Ísafirði á laugardag. Hún
ber yfirskriftina „Með
augum fréttaritarans“ en
Jón Páll er fyrrum frétta-
ritari Morgunblaðsins á
Ísafirði árin 1950–1960,
auk þess sem hann var
blaðamaður á Vesturlandi
um árabil. Ljósmyndir
Jóns skipta hundruðum og
eru merkilegar heimildir
um mannlíf og bæjarbrag
á Ísafirði um og eftir miðja
20. öldina.
Jón Páll Halldórsson er
fæddur á Ísafirði 2.
október 1929. Hann var
lengi framkvæmdastjóri
Norðurtangans hf. og
driffjöður í atvinnu- og
menningarlífi Ísfirðinga í
meira en hálfa öld. Ævi-
starfi sínu varði hann í
þágu fiskveiða, fiskvinnslu
og verslunar og eftir hann
liggja merkileg rit um sögu
þessara atvinnugreina á
Ísafirði. Byggðasafn
Vestfjarða stendur fyrir
sýningunni í samstarfi við
Jón Pál en hún stendur
fram til um miðjan maí.
– thelma@bb.is Hans W. Haraldsson og Jón Páll Halldórsson á opnun sýningarinnar á laugardag.
Ljósmyndir Jóns Páls eru merkilegar heimildir um mannlíf og bæjarbrag á Ísafirði um og eftir miðja 20. öldina.