Bæjarins besta - 12.04.2007, Page 6
FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 20076
Er til of
mikils mælst?
Ritstjórnargrein
Kjör má bæta með hag-
kvæmum vinnubrögðum
Á þessum degi fyrir 45 árum
Útgefandi: H-prent ehf., kt. 600690-1169, Sólgötu 9, 400 Ísafjörður, sími 456 4560, fax 456 4564 · Ritstjóri:
Sigurjón J. Sigurðsson, sími 892 5362, bb@bb.is · Blaðamenn: Eiríkur Örn Norðdahl, símar 456 4694 og 845
2685 eirikur@bb.is – Thelma Hjaltadóttir, símar 456 4693 og 849 8699, thelma@bb.is – Anna Sigríður Ólafs-
dóttir, símar 456 4680 og 860 6062, annska@bb.is · Tinna Ólafsdóttir, sími 868 5963, tinna@bb.is · Ritstjóri
netútgáfu bb.is: Sigurjón J. Sigurðsson · Ljósmyndari: Halldór Sveinbjörnsson, sími 894 6125, halldor@bb.is
· Ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson og Halldór Sveinbjörnsson · Lausasöluverð er kr. 300 eintakið með vsk.
Veittur er afsláttur til elli- og örorkulífeyrisþega. Einnig sé greitt með greiðslukorti. ·
Önnur útgáfa: Ferðablaðið Á ferð um Vestfirði. · ISSN 1670 - 021X
Í bréfi sem ríkisstjórnin ritaði í gær til Alþýðusambands Ís-
lands, lýsir hún yfir þeirri skoðun sinni, að með hagkvæmari
vinnubrögðum eigi að vera hægt að framleiða jafnmikið og ná
þannig kjarabótum.
Þá leggur ríkisstjórnin sérstaka áherslu á þá skoðun sína, að
athuga beri, hvort ekki sé unnt að hækka sérstaklega laun
þeirra í hópi verkamanna, sem lægst eru launaðir, án þess að
það hafi í för með sér hækkun annarra launa. Kveðst ríkisstjórnin
fús til að mæla með slíkri hækkun við samtök atvinnurekenda.
Ennfremur bendir ríkisstjórnin á, að það jafnvægi sem nú
hefur náðst í íslensku efnahagslífi, bæti skilyrðin fyrir fram-
leiðsluaukningu – er ásamt verðhækkun á útflutningsafurðum
sé forsenda þess, að um almennar kauphækkanir getið orðið að
ræða – en þó sé ekki hægt að gera ráð fyrir að aukning á fram-
leiðslu á mann geri orðið meiri en 2-3% að meðaltali næstu
árin.
Fyrir skömmu gekkst Utanríkisráðuneytið fyrir alþjóðlegri
ráðstefnu á Akureyri um þróun siglingaleiða á norðurslóðum.
Á ráðstefnunni, sem bar heitið ,,Breaking the Ice – eða ísinn
brotinn“ og var í samvinnu við ýmsa aðila, þ.á.m. Háskólann
á Akureyri, var fjallað um þá möguleika sem norðurslóðasigl-
ingar kunna að færa okkur Íslendingum. Borgarafundir á Ak-
ureyri og í Reykjavík fylgdu í kjölfarið.
Í leiðara BB 22. okt. 2003 sagði m.a.: ,,Þingmönnum Vest-
firðinga og bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar ber að leita allra leiða
til að Vestfirðingar komi sterkir til leiks að þeim möguleikum
sem kunna að felast í opnun norðaustur-siglingaleiðarinnar,
sem svo er kölluð. – Um gífurlega hagsmuni verður að ræða.
- Um þá miklu fjármuni sem í húfi eru verður slegist og hvergi
gefið eftir.“ Tilefni skrifanna var viðtal blaðsins við Úlfar
Ágústsson, kaupm. á Ísafirði, sem vakti athygli á þeim hags-
munum sem þarna kunna að vera í húfi fyrir íslenskt samfélag
og benti jafnframt á að Vestfirðir lægju beinast við sem við-
komustaður skipa á þessari leið.
Síðan þetta gerðist er sagan í stuttu máli á þessi: Utanríkis-
ráðherra skipaði nefnd. Þrátt fyrir fjölmenni hennar voru
Vestfirðingar ekki taldir þess verðugir að eiga þar fulltrúa.
Nefndur Úlfar óskaði eftir því við samgönguráðherra að Vest-
firðingar fengju að koma að starfi nefndarinnar, en fékk að
eigin sögn engar undirtektir. Það voru mikil vonbrigði.
Í febrúar 2005 skilaði nefndin skýrslu, reifaði málið á ýmsa
vegu og tilgreindi þrjú svæði sem hugsanlega viðkomustaði:
Austfirði, Eyjafjörð, (lesist Akureyri, skv. yfirlýsingu utan-
ríkisráðherra í sjónvarpsviðtali um ráðstefnuna) og Hvalfjörð.
Ekki einu orði eytt á Vestfirði þrátt fyrir að sá landshluti liggi
best að siglingaleiðinni samkvæmt korti í skýrslu nefndarinnar.
Skip á þessari siglingaleið þurfa hins vegar að taka á sig veru-
legan krók til þess að sigla til Eyjafjarðar og Hvalfjarðar og
með viðkomu á Austfjörðum lengist leiðin enn frekar. Niður-
staða embættismanna utanríkisráðherra er einfaldlega sú að
ekki sé orðum eyðandi á viðhorf Vestfirðinga. Hver er afstaða
ráðherrans?
Félagsmálaráðherra lýsti því nýverið yfir á framboðsfundi
Stöðvar 2 í Stykkishólmi, sem andsvar við áburði um linkind
í málefnum kjördæmis hans, að hann væri ráðherra alls landsins.
Sitthvað bendir til efasemda um að allir samráðherrar hans líti
valdsviðið sömu augum.
Málefni Vestfjarða bíða úrlausnar nefndar á vegum for-
sætisráðherra. Er til of mikils mælst af ráðherrum samgöngu-
félags- og sjávarútvegsmála, sem og öðrum þingmönnum
NV-kjördæmis, að þeir sjái til að Vestfirðingar fái setið við
sama borð og aðrir í þessu mikla hagsmunamáli sem gæti orð-
ið ígildi stóriðju fyrir Vestfirðinga ef fram fer sem horfir?
s.h.
Bæjarfulltrúi ofsóttur
af ósáttum bæjarbúa
Ingi Þór Ágústsson, bæjar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokks í Ísa-
fjarðarbæ, hefur heldur nötur-
lega sögu að segja af sam-
skiptum sínum við reiðan bæj-
arbúa á bloggsíðu sinni. Þar
kemur fram að ónefndur aðili,
tengdur máli sem er til með-
ferðar í bæjarkerfinu, hafi
ítrekað veist að honum með
fúkyrðum og svívirðingum,
að börnum bæjarfulltrúans
ásjáandi. Fór svo að Ingi Þór
tilkynnti málið til lögreglu.
„Ég hef fram að þessu aldrei
upplifað annað eins sem bæj-
arfulltrúi í þessu bæjarfélagi.
Fólk hefur haft sterkar skoð-
anir á sínum málum, sem er
vel og kann ég að meta slíkt.
Samt þegar fólk hefur ekkert
fram að færa nema persónu-
legar árásir á mig og mína
fjölskyldu þá er mér nóg boð-
ið. Ég tilkynnti umrætt tilfelli
til lögreglu því mér er ekki
sama hvað fólk gerir og segir
þegar ég er með börn mín og
fjölskyldu nærri. Börnin urðu
skelkuð og það tók talsverðan
tíma í gær að róa þau niður og
reyna að útskýra fyrir þeim
hegðun einstaklingsins.“
Tekur Ingi Þór hins vegar
einnig fram að afskipti bæjar-
búa af málum í bæjarráði séu
sér alla jafna ómetanleg við
vinnu sína. „Það er ýmislegt
sem gengur á, á meðan málin
eru í vinnslu, margir hringja í
bæjarfulltrúa og segja sína
hlið á málinu, koma í heim-
sókn með gögn og útskýra sín
mál og allir fram að þessu
hafa verið mjög málefnalegir
og kurteisir þegar þeir leggja
sína skoðanir fram. Þetta hefur
gefið mér tækifæri til að heyra
skoðanir þeirra sem að málinu
koma áður en ég tek ákvörðun
í málinu. Ég tek síðan ákvörð-
un í málum út frá minni eigin
sannfæringu þrátt fyrir að hafa
fengið að heyra annað í gegn-
um tíðina.“
Segist Ingi hafa verið í
heimsókn á sjúkrahúsinu hjá
veikum ættingja þegar áður-
nefndur aðili tók hann tali.
Hafi hann í fyrstu verið kurt-
eis, útskýrt sína hlið málsins,
sem hafi reyndar margoft
trúinn niður í bæ þar sem þrjú
börn bættust í hópinn. „Þegar
ég var kominn áleiðis niður í
bæ kom sami einstaklingur,
sem ég sagði frá hér að ofan,
stökk út úr bíl sínum og fór að
ausa yfir mig fúkyrðum, sví-
virðingum og blótsyrðum sem
gerðu það að verkum að börn-
in sem ég var með urðu dauð-
skelkuð og vildu forða sér í
burtu. Það gerðum við og
forðuðum okkur. Börnin urðu
vör um sig eftir þetta en því
miður þá gerðist þetta aftur -
ég átti erindi á bæjarskrifstof-
urnar og þar kom umræddur
einstaklingur og jós ennþá
meiri og verri fúkyrðum að
mér sem börnin urðu aftur
vitni af. Farið var með börnin
í burtu á meðan ég reyndi að
ræða við einstaklinginn og
reyndi að láta hann átta sig á
því að það eru tími og staður
fyrir allt - þetta væri ekki tím-
inn og staðurinn til að láta
svona. Það gekk ekki eftir og
viðkomandi jós ennþá fleiri
svívirðingum í minn garð þeg-
ar ég gekk í burtu.“
komið fram áður. „Ég sagði
viðkomandi mína skoðun á
málinu og þá byrjuðu upp-
hrópanir og skammir sem end-
uðu með fúkyrðum og sví-
virðingum í minn garð. Ég
kippti mér ekki upp við þetta
- þetta hefur komið fyrir og
því miður alltaf jafn sorglegt
þegar einstaklingar hafa ekk-
ert annað fram að færa nema
persónulegar árásir á einstakl-
inga sem eru að reyna að vinna
sína vinnu að bestu sannfær-
ingu.“
Þessu næst hélt bæjarfull-
Ingi Þór Ágústsson.
Klofningur auglýsir eftir um-
sækjendum um umhverfisstyrk
Klofningur ehf Suðureyri
hefur auglýst eftir umsækj-
endum um umhverfisstyrk, en
í tilefni af 10 ára afmæli fé-
lagsins í upphafi ársins ákvað
stjórn þess að veita einni millj-
ón króna til umhverfisverk-
efnis á Suðureyri. Skilyrði
fyrir styrkveitingu er að um-
sækjendur séu búsettir á Suð-
ureyri, og að styrkurinn fari
til verkefnis til hagsbóta fyrir
íbúa Suðureyrar og komandi
kynslóðir.
Fólk er hvatt til þess að láta
hugann reika og vonast út-
hlutunarnefnd styrksins eftir
að fá umsóknir frá fólki sem
að hefur haft löngun til þess
að gera eitthvað í samfélaginu
en kannski skort fjármagn til
þess að draumurinn gæti orðið
að veruleika. Úthlutunar-
nefndin vill benda á að hugs-
anlega geti styrkurinn verið
hluti einhverrar framkvæmdar
sem að hafin er eða fyrirhugað
er að fara í.
Ef fólk treystir sér ekki í
verklýsingar og kostnaðar-
áætlanir, þiggur nefndin allar
ábendingar um verkefni, og
er allt eins víst að þær geti
hlotið brautargengi. Einstakl-
ingar, fyrirtæki og félagasam-
tök geta sótt um styrkinn og
þarf að fylgja umsóknum lýs-
ing á verkefni og kostnaðar-
áætlun fyrir það.
Umsóknarfrestur er til 17.
apríl nk. og verður tilkynnt
hvaða verkefni hlýtur styrkinn
á sumardaginn fyrsta, sam-
hliða því verður tilkynnt hvaða
lag verður „Sæluhelgarlagið“
árið 2007. Óðinn Gestsson,
Þóra Þórðardóttir og Snorri
Sturluson skipa úthlutunar-
nefndina.
– annska@bb.is
Suðureyri við Súgandafjörð.
Sýning á fréttamyndum í Safnahúsinu
„Með augum fréttaritarans“ er heiti sýningar sem opnuð var í Safnahúsinu á Eyrartúni á Ísafirði á laugardag. Um er að
ræða sýningu á fréttamyndum Jóns Páls Halldórssonar sem var fréttaritari Morgunblaðsins á Ísafirði árin 1950–1960,
auk þess sem hann var blaðamaður á Vesturlandi um árabil. Ljósmyndir Jóns skipta hundruðum og eru merkilegar
heimildir um mannlíf og bæjarbrag á Ísafirði um og eftir miðja 20. öldina. Jón Páll Halldórsson er fæddur á Ísafirði 2.
október 1929. Hann var lengi framkvæmdastjóri Norðurtangans hf. og driffjöður í atvinnu- og menningarlífi Ísfirðinga
í meira en hálfa öld. Ævistarfi sínu varði hann í þágu fiskveiða, fiskvinnslu og verslunar og eftir hann liggja merkileg rit
um sögu þessara atvinnugreina á Ísafirði. Byggðasafn Vestfjarða stendur fyrir sýningunni í samstarfi við Jón Pál.