Bæjarins besta - 12.04.2007, Page 16
Stofnað 14. nóvember 1984 · Sími 456 4560 · Veffang: www.bb.is · Verð kr. 300 m/vsk
bb.is – fjölsóttasti vestfirski vefurinn
Þann 23. mars síðastliðinn
stofnuðu öll íslensk sveitarfé-
lög opinbera hlutafélagið
Lánasjóð sveitarfélaga ohf.
Nafnverð hlutafjár var ákveð-
ið 5 milljarðar króna, en bók-
fært eigið fé í árslok 2006
nam tæplega 8.858 milljónum
krónum. Eigið fé félagsins er
því hærra en nafnverð, en mið-
að við innra virði félagsins
um síðastliðin áramót er verð-
mæti hlutanna 1,77 sinnum
nafnverðið.
Enn fremur var samþykkt á
ársfundi lánasjóðsins sama
dag að færa eigið fé hans niður
um 3 milljarða króna og greiða
sveitarfélögunum á fjórum ár-
um þann 1. júlí ár hvert, í
fyrsta sinn í ár, í samræmi við
eignarhlut þeirra í hlutafélag-
inu. Tekið mun hafa verið tillit
til þessarar niðurfærslu í upp-
gjöri fyrir árið 2006.
Samkvæmt bréfi Lánasjóðs
sveitarfélaga ohf. til Ísafjarð-
arbæjar er eignarhlutur Ísa-
fjarðarbæjar í lánasjóðinum
þannig að nafnverð hlutafjár
er 207,4 milljónir, verðmæti
hlutar miðað við gengi 1,77
er þá tæplega 367,1 milljón,
eignarhlutdeild er 4,148% og
árleg greiðsla er 31,11 millj-
ónir. – eirikur@bb.is Stjórnsýsluhúsið á Ísafirði.
Ísafjarðarbær á 207 milljón kr. hlut
í Lánasjóði íslenskra sveitarfélaga
Aðeins tvö tilboð bár-
ust í endurbyggingu 10
kílómetra kafla Djúpveg-
ar í vestanverðum Ísafirði
í Ísafjarðarsýslu. Verkið
nær frá slitlagsenda á Eyr-
arhlíð að slitlagsenda við
Svörtukletta út undir Svans-
vík í Súðavíkurhreppi.
KNH ehf. átti lægra til-
boðið, tæplega 208 millj-
ónir króna, sem er 67,9%
af áætluðum verktaka-
kostnaði, en hann var ríf-
lega 306 milljónir króna.
Vélgrafan ehf. og Borgar-
virki ehf. buðu saman ríf-
lega 276 milljónir króna,
sem er 90,2% af áætluð-
um verktakakostnaði.
Samkvæmt áætlun skal
verkinu að fullu lokið fyr-
ir 1. nóvember 2008.
Tveir buðu
í Djúpveg
Handteknir
fyrir innbrot
Tveir karlmenn um tví-
tugt voru handteknir á
Ísafirði aðfaranótt páska-
dags fyrir að brjótast inn
í heimahús. Að sögn lög-
reglu ætluðu mennirnir að
gera upp mál við einn íbúa
hússins. Þeir spörkuðu
upp útidyrahurðinni og
voru með barefli.
Móðir íbúans tók á
móti þeim, náði að hrekja
þá út og og hringdi á lög-
reglu. Annar þeirra var
yfirheyrður um nóttina og
sleppt að því loknu. Hinn
var mikið ölvaður og lát-
inn sofa úr sér. Hann var
yfirheyrður á páskadag.
Þá komu tvö fíkniefnamál
upp á rokkhátíðinni Al-
drei fór ég suður en annars
fór hátíðin vel fram að
öðru leyti.
Teknir með
fíkniefni
Fyrri hluti rokkhátíð-
arinnar Aldrei fór ég suð-
ur, sem fram fór á Ísafirði
á föstudaginn langa, fór
vel fram að sögn lögregl-
unnar á Ísafirði, þrátt fyrir
mikinn mannfjölda, enda
voru mótshaldarar, gæslu-
lið og lögregla með gott
eftirlit með því að góð
regla væri viðhöfð á há-
tíðinni. Lögreglan lagði
hald á nokkur grömm af
kannabisefnum, n.t.t. 8,12
gr., á þremur einstakling-
um sem voru á eða við
tónleikana.
Gréta María Kristinsdóttir
frá Þingeyri var krýnd ungfrú
Vestfirðir á fegurðarsam-
keppni Vestfjarða, sem haldin
var í veitingahúsinu Krúsinni
miðvikudaginn 4. apríl. Gréta
María, sem er 19 ára, starfar
sem leiðbeinandi á leikskóla.
Í öðru sæti var Vala Karen
Viðarsdóttir og Edith Guð-
mundsdóttir Hansen varð í
þriðja sæti. Svala Sif Sigur-
geirsdóttir var valin vinsæl-
asta stúlkan en hún var einnig
valin netstúlka en hana völdu
lesendur vefsíðunnar skemmt-
un.it.is.
Guðrún Auður Böðvars-
dóttir var valin sportstúlkan.
Fegurðardrottningin sjálf var
einnig kjörin besta ljósmynda-
fyrirsætan. Óhætt er að segja
að mikil spenna hafi legið í
loftinu þegar dómnefnd var
að störfum, en níu stúlkur
kepptu um titilinn eftirsótta. Í
dómnefnd sátu Arnar Laufdal,
eigandi keppninnar um ungfrú
Ísland, Elín Gestsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Ungfrúar Ís-
lands, Silja Allansdóttir, fram-
kvæmdastjóri Ungfrúar Vest-
urlands, Margrét Magnúsdótt-
ir, fegurðardrottning Vest-
fjarða árið 2004 og Davíð Eg-
ilsson, einkaþjálfari og fyrir-
sæta.
Það var Rakel Magnúsdóttir
sem hélt utan um keppnina að
þessu sinni, en hún tók þátt í
ungrú Vestfjörðum árið 2002
og hreppti þá titilinn Ljós-
myndafyrirsæta Vestfjarða,
auk annarrar stúlku.
– tinna@bb.is
Gréta María Kristinsdóttir kjör-
in fegurðardrottning Vestfjarða
Nýkrýnd fegurðardrottning Vestfjarða Gréta María Kristinsdóttir, Vala Karen Viðarsdóttir
sem varð í öðru sæti og Edith Guðmundsdóttir Hansen sem var í því þriðja.