Bæjarins besta - 19.02.2009, Síða 11
FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2009 11
Auglýsing
um deiliskipulag í landi Efstahvamms í Dýrafirði, Ísafjarðarbæ
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar auglýsir hér með
tillögu að deiliskipulagi í landi Efstahvamms í
Dýrafirði, Ísafjarðarbæ, skv. 25. gr. skipulags-
og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breyt-
ingum.
Deiliskipulagstillagan tekur til frístundabyggð-
ar á um 1,8 ha. landsvæðis sem er hluti af landi
Hæsta-Hvamms. Í deiliskipulaginu er skilgreind-
ur byggingarreitur fyrir gestahús ásamt bygg-
ingarskilmálum. Annað fyrirkomulag á land-
svæðinu er óbreytt. Svæðið liggur sunnan þjóð-
vegar 60, á milli jarðanna Bræðratungu og Efri-
og Neðri Mið-Hvamms. Að sunnanverðu eru
óbyggðar hlíðar Hvammsfjalls, en norðan þjóð-
vegar er jörðin Lægsti-Hvammur.
Gert er ráð fyrir frístundabyggð á svæðinu
fyrir þrjú frístundahús ásamt byggingarreit fyrir
nýtt gestahús. Stærð byggingarreits er 30x12
metrar.
Deiliskipulagstillagan verður til sýnis á bæjar-
skrifstofum í Stjórnsýsluhúsinu, Hafnarstræti
1, Ísafirði og á vefsíðu Ísafjarðarbæjar, www.
isafjordur.is frá og með 19. febrúar 2009 til og
með 19. mars 2009. Þeim sem telja sig eiga
hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á
að gera athugasemdir við deiliskipulagstillög-
una. Frestur til að skila inn athugasemdum
rennur út 2. apríl 2009.
Skila skal athugasemdum á bæjarskrifstofur
Ísafjarðarbæjar, Stjórnsýsluhúsinu, Hafnar-
stræti 1, Ísafirði. Þeir sem ekki gera athuga-
semdir við breytingartillöguna fyrir tilskilinn frest,
teljast samþykkir henni.
Ísafirði, 12. febrúar 2009,
Jóhann Birkir Helgason,
sviðstjóri framkvæmda- og rekstrarsviðs.
Foreldrafélag Eyrarskjóls hvet-
ur yfirvöld í Ísafjarðarbæ til að
standa við þau fyrirheit að tryggja
grunnþjónustu sveitarfélagsins.
Þjónusta sem tryggir velferð íbúa
er nú mikilvægari en áður í ljósi
breyttra aðstæðna í þjóðfélaginu.
Félagið skorar á bæjarstjórn að
skerða ekki þjónustu í leikskólum
sveitarfélagsins og minnir á mik-
ilvægi leikskóla í uppeldi og mót-
un barna.
Félagið minnir á að leikskóla-
gjöld í Ísafjarðarbæ eru með dýr-
asta móti sé miðað við önnur
sveitarfélög. Á síðasta ári hækk-
uðu gjöldin þegar borga þurfti
sérstaklega fyrri fimmtán mín-
útna svigrúm umfram fullan
skóladag. Félagið ítrekar einnig
fyrirspurn frá síðasta ári um
stefnu Ísafjarðarbæjar varðandi
gjaldfrjálsa leikskóla.
„Leikskólagjöld
með dýrasta móti
í Ísafjarðarbæ“
„Ef hundaeigendur taka
sig ekki á hér í bæ þá verður
að grípa til mun harkalegri
aðgerða“, segir Halldór Hall-
dórsson, bæjarstjóri Ísafjarð-
arbæjar, aðspurður um frétt
blaðsins um þann sívaxandi
vanda að hundaeigendur á
Ísafirði þrífi ekki upp eftir
gæludýr sín. Formlega séð
er hundahald bannað og svo
er undanþága í formi leyfis.
Þeir sem fá undanþágu þurfa
þó að fylgja skilyrðum sem
fram koma í samþykkt Ísa-
fjarðarbæjar um hundahald.
„Kvartanir sem berast
vegna hunda eru margar og
hundaeigendur verða að átta
sig á því að þeir bera mikla
ábyrgð. Ef ekki verður tekið
á þessu af þeirra hálfu eru
væntanlega fáir hundaeig-
endur að skemma fyrir
fjölda annarra sem sýna
mikla ábyrgð og eftirlit með
sínum hundum“, segir Hall-
dór og bætir við: „Ég hvet
hundaeigendur til að taka
sjálfir á sínum málum svo
ekki þurfi að fara í hertar
aðgerðir af hálfu Ísafjarðar-
bæjar.“ – thelma@bb.is
Grípa
verður til
harkalegri
aðgerða
Nánast daglega berst blaðinu
ábendingar um að hundaskítur
farinn sé að aukast út um allan
bæ á Ísafirði. Er ljósmyndari
blaðsins fór á stúfana var úr-
gangur hins svokallaða besta vin
mannsins, víða að sjá, sumstaðar
niðurtraðkaður og annars staðar
angandi og nýr. Þá gáfu þó nokkr-
ir bæjarbúar sig á tal við ljós-
myndarann og sögðu vera búnir
að fá sig fullsadda af þessu hirðu-
leysi í hundaeigendum. Ein-
hverjir tóku það sterkt til orða að
banna þyrfti hundahald með öllu
ef ekki yrði ráðin bót á þessum
vanda. Hundahald er bannað í
Ísafjarðarbæ, að undanteknum
þarfahundum á lögbýlum, leið-
söguhundum til hjálpar blindu
fólki, viðurkenndum leitarhund-
um til aðstoðar björgunarsveitum
og hundum sem notaðir eru við
löggæslustörf. en bæjarstjórn
veitir undanþágur til hundahalds
með ákveðnum skilyrðum.
Því eru hundar skráðir og fyrir
þá skráningu er greitt skráning-
argjald þar sem innifalin er trygg-
ing og hundahreinsun. Lausa-
ganga hunda er með öllu bönnuð.
Í samþykkt Ísafjarðarbæjar um
hundahald segir m.a: „Hundaeig-
endum er skylt að sjá svo um að
hundar þeirra raski ekki ró manna
né verði þeim til óþæginda, einn-
ig er hundaeiganda skylt að fjar-
lægja saur eftir hunda sína.“
Þar kemur einnig fram að við
minnsta brot á skuli hundaeig-
andi sæta skriflegri áminningu
og greiða allan kostnað er leiðir
af brotinu. Ef um alvarlegt brot
eða ítrekað er að ræða skal aftur-
kalla viðkomandi undanþágu til
hundahalds, segir í reglum um
hundahald í Ísafjarðarbæ.
– thelma@bb.is
Hundaskítur sívaxandi vandamál
Ekki væri geðslegt að stíga ofan í hundaskít á göngu um fallegan miðbæ Ísafjarðar.