Bæjarins besta


Bæjarins besta - 19.02.2009, Page 12

Bæjarins besta - 19.02.2009, Page 12
12 FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2009 Við báðum ekki um sjúkdómana sem fylgja genunum Jónína Sesselja Guðmundsdóttir á Ísafirði (Ninna), fyrrum kennari á Ísafirði og í Reykjavík og skólastjóri á Broddanesi í Strandasýslu í allmörg ár, hefur átt dálítið krókótta leið á köflum. Kannski samt ekkert krókóttari en margur annar. En hún er tilbúin að segja frá af meira hispursleysi en líklega er algengt opinberlega. Undir höfundarnafninu SeSelia leggur Jónína stund á myndlist og ritstörf. Síðla árs 2007 hélt hún sýningu á þrjátíu vatnslitateikningum í Safnaðarheimili Ísafjarðar- kirkju og stóð sýningin þar fram yfir áramótin. Á nýliðnu ári kom út eftir hana bók- in Nær en blærinn, sem hlotið hefur ákaflega lofsamlega dóma. Hér rekur Ninna sögu sína. anum. Árið eftir komu alvarlegir brestir í samband okkar og 1988 slitum við samvistum. Eftir það tók við tíður flutningur minn og krakkanna um Reykjavík allt til fram undir árslok 1992, að ég fékk endanlegt húsnæði. Vetur- inn 1989-90 fór ég reyndar tíma- bundið vestur með krakkana og íhugaði í alvöru að setjast að í elskulegan og öruggan faðm fóstrunnar góðu Ísafjarðar, en um veturinn var tekin ákvörðun að reyna sambúðina enn einu sinni. Nú átti allt að vera gott. Ég sendi myndir og umsókn í Myndlista- og handíðaskóla Íslands og var bara sagt að koma, ég þyrfti ekki að taka inntöku- próf. Við fluttum aftur suður, dótið í geymslu, maðurinn var á sjó frá Vestmannaeyjum og við fórum þangað en íbúðin í Reykja- vík átti að verða laus í ágúst. Vestmannaeyjatíminn var mjög skrítinn. Það rigndi mikið og allt var á brattann að sækja, brekkur út um allt. Með allri virðingu fyrir Vestmannaeyjum kýs ég frekar Ísafjörð til búsetu. Eldri dóttirin undi sér ekki þarna og strauk vestur til að vinna í fiski. Mamma kom til Eyja en ákveðið var að hún yrði nokkurs konar ráðskona hjá okkur á Rauðalækn- um í Reykjavík. En um það leyti sem við ætl- uðum að flytja var sambúðinni lokið. Við mamma, dæturnar og ég fluttum til Reykjavíkur. Skól- inn byrjaði, mamma var mér stoð og stytta í vonbrigðunum, eldri dóttirin strauk að heiman eftir skólann, kunni ekki við sig í Verslunarskólanum, og fór vest- ur að vinna við fisk og búa með kærastanum. Í nóvember kom svo barnsfaðir minn ennþá tilbú- inn að takast á við sína ábyrgð og það gekk í nokkra mánuði. Mamma fékk sér íbúð á Grettis- götu og fór að vinna. Sambúðinni lauk svo endan- lega nokkru eftir áramótin. Það varð mér meira áfall en mig grun- störf tengd kennslu, svo og á lögfræðiskrifstofu hér á Ísafirði. Yngsta barnið okkar, sonur, fæddist 1985. Öll börnin fæddust á gamla sjúkrahúsinu sem nú hef- ur verið breytt í bókasafn. Veturinn 1980-81 var ég með dætur okkar með mér á Akureyri, þar sem ég fór í fornám í Mynd- listarskólann og leigði íbúð í Hlíðargötunni í kjallaranum hjá vinkonu mömmu, Jónu Kjartans, sem hafði verið kennari á Ísafirði. Mér hefur alltaf þótt vænt um Jónu og það var gott að leigja hjá henni. Eldri dóttirin fór í fyrsta bekk á Akureyri en sú yngri til dagmömmu. Á þeim tíma átti ég eldgamla gula Lödu og var alltaf þeirri stund fegnust að komast upp Gilið, þó ég væri á góðum dekkjum. Ég var alltaf hrædd að keyra Gilið. Við heimsóttum tengdamömmu á Svalbarðs- strönd eins oft og við gátum um helgar. Okkur tengdamömmu kom alltaf vel saman. Mér leið vel á Akureyri og ég kynntist þar góðu fólki. Það er svo skrýtið, að hvar sem ég flæk- ist og hvert sem ég fer, þá kynnist ég góðu fólki. Um sumarið þorði ég hreinlega ekki að fara suður, ein með dæt- urnar í framhaldsnám, þó hart væri lagt að mér. Í mínum huga var Reykjavík fráhrindandi víð- áttuflæmi. Hef trúlega verið svo mikið náttúrubarn eða sveita- stelpa í mér, að mér fannst óhugs- andi að gera þetta ein með ábyrgð á dætrunum. Sambúðarslit Næstu ár stundaði ég ýmis störf, var við kennslu og ýmislegt annað og vann síðan á lögfræði- stofu allt til 1986, að maðurinn minn ákvað að hætta sjómennsku og fara í Tækniskólann. Við flutt- umst suður, dæturnar í Snælands- skóla, drengurinn til dagmömmu og ég fór að vinna á lögfræði- skrifstofu og Jóhannes var í skól- Ég er fædd og uppalin á Ísafirði og var Neðribæjarpúki, dóttir Guðbjargar B. Árnadóttur og Guðmundar J. Sigurðssonar. Pabbi var ættaður frá Horn- ströndum og úr Skagafirði en fæddur hér og uppalinn. Mamma er ættuð að austan og úr Breiða- firði en flutti sjö ára gömul til Suðurnesja og fór síðar í Kvenna- skólann í Reykjavík. Þau kynnt- ust í Reykjavík og mamma flutti vestur 1949, sama ár og elsti bróðir minn fæddist. Þau eign- uðust sjö börn á tólf árum, fimm stráka og tvær stelpur. Pabbi var járnsmíðameistari og vann oft úti á sjó framan af en síðar í landi við iðn sína. Hann var duglegur til vinnu, handlag- inn, vandvirkur og listrænn, hafði mikinn áhuga á íþróttum, sér- staklega fótbolta og hnefaleikum. Hann dó árið 1992 úr sama sjúk- dómi og Árni bróðir minn fyrir rúmu ári. Ég ætla kannski að tala nánar um það hérna á eftir. Mamma var og er enn hörku- dugleg, flínk í höndum og list- ræn, mikil handavinnumann- eskja. Ég dáðist oft að því hvernig henni tókst að halda öllu hreinu og snyrtilegu í þriggja herbergja íbúðinni í Sundstrætinu þar sem níu manna fjölskyldan bjó, en það var algengt í þá daga að fólk bjó þröngt á Ísafirði. Maður og börn Eftir landspróf lá leið mín í Menntaskólann á Ísafirði. Þar kynntist ég stóru ástinni, Jóhann- esi Laxdal. Hann útskrifaðist 1974 og ég tveimur árum seinna. Eldri dóttir okkar fæddist 1974. Það haust fór maðurinn minn suður til náms, en undi sér ekki þar og kom heim eftir slysið á Guggunni og var með Geira á sjó eftir það í tólf ár meira og minna. Eftir útskrift kenndi ég við Grunnskólann á Ísafirði og við eignuðumst dóttur um vorið. Eftir það vann ég við ýmis hluta- aði og dró dilk á eftir sér. Eftir nokkra flutninga og flæking með börnin fékk ég loks öruggt hús- næði í desember 1992, fór í Kennaraháskólann, tók mér árs- leyfi á tímabilinu og lauk námi 1995. Þá fórum við mæðginin frá Reykjavík og fluttum að Brodda- nesi í Strandasýslu um sumarið. Drengurinn var þá tíu ára en dæt- urnar fluttar að heiman. Árin á Broddanesi Í hugum sumra sem þekktu mig var ákvörðunin að flytja til Broddaness eins og að fara til Alaska. Samt er Broddanes svona mitt á milli Ísafjarðar og Reykja- víkur og enn styttra suður eftir að Hvalfjarðargöngin komu. Íbú- ar Broddaneshrepps tóku vel á móti okkur mæðginunum og næstu sex ár voru góður tími. Fyrstu tvö árin var ég hvorki með þvottavél né bíl. Hugsaði þá bara: Hafa skal það sem hendi er næst og hugsa ekki um það sem ekki fæst. Þetta gekk ágæt- lega, enda vorum við bara tvö í heimili. Skólinn var á neðri hæðinni en íbúðin á þeirri efri, nánast einn geimur og herbergin lítil. En það- an var stórkostlegt útsýni yfir hafið í sínum sérstöku ljósabrigð- um eftir hverri árstíð. Undursam- legt. Á vetrum mátti sjá ljósfest- ina frá Drangsnesi glitra eins og gullkeðju í myrkrinu. Útsýnið frá þessum stað var algert augna- konfekt. Rútan þar sem Valdimar bíl- stjóri stóð sína pligt hvernig sem viðraði fór reglulega tvisvar í viku frá Reykjavík til Hólma- víkur. Við mæðginin fundum út að við gátum tekið rútuna til Hólmavíkur og til baka fyrir 500 krónur. Tíminn sem rútan stopp- aði á Hólmavík dugði okkur al- veg til að versla til vikunnar. Þegar okkur var hleypt út við afleggjarann handlönguðum við vörurnar. Þetta var ekkert mál. Stundum vorum við svo heppin að fá far heim með góðhjörtuðum borgurum. Að lokum keypti ég gamlan jeppa, algeran bensíngleypi, og svo þvottavél þegar barnabörnin komu. Kaupfélag var í Bitrufirði og þar var hægt að kaupa allt milli himins og jarðar og panta ef svo bar undir. Sérstaklega fall- eg og sérkennileg búð sem minnti á gamla tíma. Þar var hægt að panta vörur vikulega, sérstaklega þegar snjóþungt var og tvísýnt með ferðir til Hólmavíkur. Kaup- félagsstjórinn var ósköp lipur kona þrátt fyrir erfiðleikana að reka þetta elsta kaupfélag lands- ins. Það munaði um hvern sem flutti í burtu. Í Broddanesskóla tók ég við fámennum skóla, indælum nem- endum á öllum aldri frá fyrsta og upp í áttunda bekk, en nemenda- fjöldinn rokkaði svona frá sjö til tíu að jafnaði. Eftir áttunda bekk þurftu nemendurnir að fara annað í níunda og tíunda bekk þegar ég var með skólann. Á þeim tíma sem ég var fóru þau til Hólma- víkur í heimanakstri. Nokkurra mánaða heimavist var rekin yfir verstu mánuðina fyrra árið þeirra, en eingöngu var heimanakstur eftir það. Í fámennum skóla þarf skóla- stjórinn að setja sig inn í allar námsgreinar í öllum bekkjum. Þetta var töluverð vinna en ár- angurinn var góð yfirsýn yfir kröfur aðalnámskrár. Oftast voru einn eða tveir leiðbeinendur með mér, fyrir utan veturinn þegar ég bað bændur að hjálpa mér með t.d. eðlisfræði og smíði. Það gekk mjög vel. Foreldrar störfuðu mik- ið með skólanum og tóku þátt í öllum breytingum sem prófaðar voru. Við tókum þátt í fjarkenn- sluverkefni sem heppnaðist ágætlega og var mjög ánægjuleg upplifun bæði fyrir nemendur og kennara en ekki síst foreldrana. Í fjarkennslu voru kannski einn eða tveir nemendur í Broddanesi í kennslu frá Hólmavík. Græj- urnar voru hreyfanleg myndavél og tölva. Nemendur sáu hver ann- an og gátu hlustað og talað við kennarann á Hólmavík og unnið sín verkefni með jafnöldrum. Í sveitinni kynntist ég bænda- menningunni og erfiðleikum sveit- arfélaga, þar sem skólakostnað- urinn var um 80% af heildar- rekstri og lítið eftir til framkvæmda. Bændum fækkaði, nemendum fækkaði og fjöldamörg vandamál blöstu við fámennu sveitarfélagi. Allt það fólk sem ég kynntist í Broddaneshreppi var gott. At- hyglisverðar manneskjur sem ég sakna enn í dag og hafði gott af að kynnast. Á Broddanesárunum eignaðist ég þrjú barnabörn en það fjórða

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.