Bæjarins besta - 19.02.2009, Side 18
18 FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2009
Þríeyki með leka
Bloggið
Þeir eru greinilega báðir haldn-
ir slæmum lekanda. Flest ratar í
blöðin og fréttir sem þeir ættu
frekar að þegja um - þeir hrein-
lega leka - mígleka.
Davíð notar meiri kænsku, er
manni sagt - nýtir sér blaðamenn
Morgunblaðsins til að leka út
fréttum á meðan Ólafur getur bara ekki þagað hreinlega bunar út úr
honum af slíkum krafti að hann má hafa sig allan við að lagafæra
lekann. Og ekki nóg með það - hans ektakona hún Dorrit bunar út úr
sér svo líkja mætti við fruss.
Hvar endar þetta allt saman og er þetta hreinlega ekki heilsuspill-
andi fyrir þau sjálf og þjóðina alla?
Skiljanlegt er að Davíð skuli leka - hann er jú ennþá í pólitík og
stýrir heilum stjórnmálaflokki og fyrrum ríkisstjórn. En þetta með
hann Ólaf - það er öllu verra. Hann er á ofurlaunum við að halda
kjafti um hluti sem snúa að pólitík - upp í hann verður að sparsla
strax. Og frussið um leið.
Þorleifur Ágústsson
http://tolliagustar.blog.is
Staðlaður flokks-
hestaáróður
Hvernig væri nú að þingmenn
(aðallega Sjálfstæðisflokksins)
hættu að fjöldaframleiða staðlað-
an flokkshestaáróður eftir tal-
punktum frá flokkunum og færu
að gera eitthvað gagn og endur-
reisa virðingu og áhrif Alþingis.
T.d. gætu þeir farið að dæmi
breskra kollega sinn og kalla við-
skiptajöfranna fyrir þingnefnd og
yfirheyrt um hvernig standi á
því að þeir hafi tapað þúsundum
millj-arða sem Íslendingar og útlendingar hafi treyst þeim fyrir.
Hversu miklu þeir hafi stassað á Tortóla, o.sv.frv. […]
Frumkvæði breskra þingmanna gerir ríkisstjórnina sífellt vand-
ræðalegri. Gordon Brown og hans kónar voru og eru á kafi uppi í
rassgatinu á bankamönnunum og reyna nú leynt og ljóst að leyfa
vinum sínum að halda bónusakláminu þrátt fyrir að hafa þegið
massífa ríkisaðstoð.
Kristinn Hermannsson
http://stinnihemm.blogspot.com
Birtir yfir
Bessastöðum
…Þetta er mjög skemmtileg
umfjöllun en reyndar lenda þau
hjónin í nokkrum átökum sín á
milli í viðtalinu. Ólafur marg-
reynir að fá konu sína til að tala
varlega og biðlar til blaðamanns
að birta ekki það sem hún er að
segja. Hún segir að svo mikið sé
af húsum á Íslandi að engin hætta
sé á að einhverjir missi heimili
sín. Færi sig bara yfir i næsta
hús, enda sé allt fullt af tómum
húsum. Nú og þeir sem eigi ekki fyrir brauði geti bara borðað kökur.
Það þarf svona lausnir í dag.
Kannski þessi aðalþjóðlega hefðarkona gæti verið svona
nokkurskonar ,,Guiding light“ okkar Íslendinga. Hún er greinilega
mjög vel að sér í hagfræði og reyndar mjög vel tengt alþjóðlega. Ef
til vill gæti hún tekið yfir í Seðlabankanum. Ekki bara að hún drekki
te með Mrs. Brown í Bretlandi heldur er hún beintengd inn í innsta
kerfi Alþjóðlega gjaldeyrissjóðsins.
Gunnar Þórðarsson
http://vinaminni.blog.is
Guðjón Arnar Kristjánsson,
formaður Frjálslynda flokksins,
hefur í hyggju að gefa kost á sér
sem formaður flokksins á lands-
þingi flokksins um miðjan mars.
„Ég hafði ekki hugsað mér annað.
En vika er langur tími í póli-
tík,“sagði Guðjón Arnar í samtali
við visir.is. Guðjón segist ekki
hræðast slag um formannsem-
bættið. Guðjón hefur lítið um
brotthvarf Jóns Magnússonar að
segja, en Jón tilkynnti í síðustu
viku að hann hefur sagt skilið
við Frjálslynda flokkinn.
„Jón gaf ekki kost á neinni
umræðu,“ segir Guðjón. Guðjón
hefur verið formaður Frjálslynda
flokksins frá árinu 2003 en hann
var fyrst kjörinn á þing í kosning-
unum 1999. Hann var varaþing-
maður Sjálfstæðisflokksins á ár-
unum 1991 til 1995.
– thelma@bb.is
Hræðist ekki formannsslag
Um áramótin urðu þær breyt-
ingar hjá Orkubúi Vestfjarða að
rafveitusvið og orkusvið hættu
svokölluðum eftirlitsálestri. Fram-
vegis verður aðeins lesið af orku-
mælum einu sinni á ári í samræmi
við reglur Orkustofnunar en þar
segir: Lesa skal á rafmagnsmæla
árlega og annast dreifiveitan það
ýmist sjálf eða felur notendum
að lesa á mæla og tilkynna dreifi-
veitunni um mælisstöðuna. Þó
er dreifiveitum skylt að senda
fulltrúa sína til að lesa á rafmagns-
mæla að minnsta kosti fjórða
hvert ár.
Dreifiveita les á rafmagnsmæli
á fjögurra ára fresti í það minnsta
eða ef notandi skiptir um raforku-
sala eða ef notandi flytur úr íbúð
eða húsi eða ef skipt er um raf-
magnsmæli. Hafi notendur grun
um að áætlun sé röng eða vilja
koma álestri til dreifiveitu er hægt
að senda inn álestur til Orkubús-
ins símleiðis eða gegnum heima-
síðu fyrirtækisins og smella á
eyðublöð og tilkynning um álest-
ur.
– birgir@bb.is
Breyting á álestri mæla
Bæjarstjórar Bolungarvíkur og
Ísafjarðarbæjar og sveitarstjóri
Súðavíkur hafa sammælst um að
leggja til við sveitarstjórnir síns
bæjarfélags að stefna að sameig-
inlegu útboði á sorphirðu þegar
núverandi samningur sveitarfé-
laganna rennur út. Á fundi fram-
kvæmdastjóra sveitarfélaganna,
sem var sá fyrsti síðan í júní
2005, var einnig rætt um verk-
efnastöðu sveitarfélaganna, rekstr-
arstöðu þeirra og hversu mikið
yrði um svokallaðar mannafls-
frekar framkvæmdir í þeirra
sveitarfélögum í ár.
Töluvert verður um fjárfest-
ingar hjá sveitarfélögunum sem
og viðhaldsframkvæmdir, m.a.
vegna gerð snjóflóðavarna í Bol-
ungarvík og jarðganga milli Bol-
ungarvíkur og Hnífsdals. Þá
verður farið í vega- og brúarfram-
kvæmdir og ýmsar aðrar við-
haldsframkvæmdir. Á fundinum
var einnig rætt um hvernig standa
ætti að refaveiðum í sveitarfé-
lögunum. Tvær leiðir munu vera
í boði, annars vegar óbreytt ástand
eða að veiðunum yrði skipt t.d.
eftir landfræðilegri stærð sveitar-
félaganna. Engar ákvarðanir voru
teknar um veiðarnar á fundinum.
Stefna að sameigin-
legu útboði á sorphirðu
Sorpbrennslan Funi í Engidal.