Bæjarins besta - 19.02.2009, Blaðsíða 19
FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2009 19
Theódóru Kristjánsdóttur
Bakkavegi 13, Hnífsdal
Halldóra Elíasdóttir Guðmundur Kr. Thoroddsen
Sigríður Inga Elíasdóttir Svavar Geir Ævarsson
Finnbjörn Elíasson Gyða Björg Jónsdóttir
Guðmunda Elíasdóttir Friðrik Óttar Friðriksson
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur auðsýnda
samúð og virðingu í veikindum og við andlát okkar
ástkæru móður, tengdamóður, ömmu og langömmu
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks á blóð-
lækningadeild 11G á Landspítalanum við Hringbraut.
Guð blessi ykkur öll.
Samfylkingin auglýsir eftir fólki
Stefnt að útimarkaði
fyrir farþega skipa
Hugmyndir eru uppi um að
koma á fót útimarkaði í Ísafjarð-
arbæ sem beint yrði sérstaklega
að farþegum skemmtiferðaskipa.
Bæjarráð Ísafjarðarbæjar hefur
falið atvinnumálanefnd í sam-
starfi við umhverfisfulltrúa, hafn-
arstjóra og upplýsingafulltrúa að
kanna möguleika og framkvæmd
þess. „Ef þetta reynist fýsilegt ætti
að stefna að framkvæmd strax í
sumar“, segir í bókun nefndar-
innar. Um gæti verið að ræða
útimarkað þar sem bændur, lista-
menn og aðrir bæjarbúar gætu
selt afurðir sínar.
Komur ferðamanna með skemmti-
ferðaskipum aukast með hverju
ári. Nú þegar hafa hátt í 30 komur
skemmtiferðaskipa verið til-
kynntar til Ísafjarðarhafnar í ár.
Heildarfjöldi farþega sem áætlað
er að komi með skipunum er
17.738 manns. Stefnir því í metár
í komu skemmtiferðaskipa en til
samanburðar má nefna að á þessu
ári var heildarfjöldi skemmti-
ferðaskipa sem lögðu leið sína
til Ísafjarðar tuttugu talsins.
– thelma@bb.is Komur ferðamanna með skemmtiferðaskipum aukast með hverju árinu.
Skrifað undir samstarfssamn-
ing um Viðskiptasetur á Ísafirði
Skrifað var undir samstarfs-
samning á milli þeirra aðila sem
sjá um rekstur nýs viðskipta-
seturs á Ísafirði í Háskólasetri
Vestfjarða á föstudag. Viðskipta-
setrið verður opnað 6. mars á
vegum Impru á Nýsköpunarmið-
stöð í samstarfi við Atvinnuþró-
unarfélag Vestfjarða, Háskóla-
setur Vestfjarða og Vinnumark-
aðsráðs Vestfjarða með stuðningi
Vaxtarsamnings Vestfjarða og
Pennans. Setrið sem hlotið hefur
nafnið Eyrin, verður til húsa í
Vestrahúsinu. Þar verður aðstaða
fyrir 4-6 frumkvöðla til að byrja
með. Markmiðið með viðskipta-
setrinu er að skapa frumkvöðlum
þekkingarumhverfi, aðstöðu og
umgjörð til að vinna að nýsköpun
og veita þeim faglega þjónustu
og stuðning við framgang hug-
mynda sinna.
Það sem felst í aðstöðu á við-
skiptasetri er leiga á skrifstofu-
húsnæði gegn vægu gjaldi, að-
gangur að fundarherbergjum,
þjónusta móttöku og símsvörun-
ar, fagleg ráðgjöf og stuðningur
Impru á Nýsköpunarmiðstöð og
Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða
og skapandi umhverfi og öflugt
tengslanet fyrirtækja og starfs-
manna Impru og Atvest.
Inntökuskilyrði eru: Að fyrir
liggi drög að viðskiptaáætlun
vegna reksturs eða stofnunar fyr-
irtækis. Að fyrir liggi starfsáætl-
un um starfsemi frumkvöðulsins
meðan á verunni í setrinu stendur.
Að viðkomandi geti sýnt fram á
greiðslu fyrir aðstöðuna. Að við-
skiptahugmyndin hafi verulegt
svæðisbundið nýsköpunargildi
og sé ekki í beinni samkeppni á
svæðinu. Að til staðar sé geta og
færni til að vinna að úrlausnum
viðskiptahugmyndarinnar. Að
rekstraraðili virði almennar um-
gengnisreglur viðskiptaseturs og
Vestrahúss. Að viðkomandi
skrifi undir trúnaðarsamning
gagnvart öðrum fyrirtækjum á
setrinu. Viðskiptasetur er ekki
ósvipað frumkvöðlasetrum. Ný-
sköpunarmiðstöðvar, en ekki er
gerð eins sterk nýsköpunarkrafa.
Impra á Nýsköpunarmiðstöð rek-
ur nú þegar 5 viðskipta- og frum-
kvöðlasetur; í Keflavík, á Höfn í
Hornafirði auk þriggja í Reykjavík.
Frá undirskrift samningsins. Neil Shiran Þórisson frá, Guðrún Stella
Gissurardóttir, Peter Weiss, Arna Lára Jónsdóttir og Þorgeir Pálsson.
Samfylkingin í Norðvesturkjördæmi leitar að dugandi fólki úr ýmsum
starfsgreinum, kjörgengum konum og körlum sem vilja gefa kost á sér á
framboðslista og vinna samkvæmt bestu samvisku og eigin sannfæringu að
hugsjónum jafnaðarstefnunnar á Alþingi Íslendinga fyrir hönd íbúa Norð-
vesturkjördæmis og íslensku þjóðarinnar.
Kjördæmaþing verður haldið í Borgarnesi 21. febrúar en þar verður meðal
annars tekin endanleg ákvörðun um hvernig verður valið á framboðslista.
Þar býðst frambjóðendum einnig kostur á að kynna sig og sín stefnumál.
Dagskrá kjördæmaþings má finna á www.samfylking.is og www.xsnv.blog.is.
Frekari upplýsingar veitir formaður kjördæmisráðs, Eggert Herbertsson,
GSM: 617-8306 eða í netfang nordvestur@xs.is.