Bæjarins besta


Bæjarins besta - 12.03.2009, Blaðsíða 3

Bæjarins besta - 12.03.2009, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 12. MARS 2009 3 Skúla Sigurðssonar frá Gemlufalli Ragnhildur Jóna Jónsdóttir og aðrir aðstandendur Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför Sérstakar þakkir til starfsfólks Fjórðungs- sjúkrahússins á Ísafirði fyrir frábæra umönnun „Ekki eðlilegt að loka- skýrslan sé trúnaðarmál“ „Mér finnst ekki eðlilegt að þetta sé trúnaðarmál. Mér finnst að skýrslan í heild sinni eigi að koma fram og það eigi að koma fram hvaða verkefni voru unnin og hvaða störf urðu til. Hvað feng- um við fyrir þessar 17,4 millj- ónir sem skattgreiðendur greiddu í þetta verkefni,“ segir Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarð- arbæjar, aðspurður hvort eðlilegt sé að lokaskýrsla Alsýnar sé ekki opinberuð í ljósi þess að skatt- greiðendur greiddu fyrir vinnu fyrirtækisins á þeim tíma sem það starfaði fyrir sveitarfélagið. „Mér finnst að fyrirtækið eigi að opinbera þessa skýrslu og þetta er lokaskýrsla vegna verkefnis sem það fékk greitt fyrir. Það er að gefa í skyn að hin og þessi störf eigi að geta orðið til en mér finnst almenningur eiga rétt á að fá að vita hver þau eru,“ segir Halldór. Halldór segir bæjarfulltrúa hafa fengið skýrsluna afhenta sem trúnaðarmál að beiðni Al- sýnar. „Það eina sem almenn- ingur hefur fengið að sjá eru tvær öftustu síður skýrslunnar og at- hugasemdir formanns atvinnu- málanefndar. Einhverja hluta vegna ákveður þetta ráðgjafafyr- irtæki, sem átti að vinna að því að fjölga störfum, að ráðast á hann fyrir að hann skuli vera í atvinnulífinu. Gagnvart formanni atvinnumálanefndar þá þykir mér undarlegt að hálfu fyrirtækisins að gera þetta,“ segir Halldór. Aðspurður hvort fjármunun- um, sem voru settir í verkefnið hefðu betur verið varið í Atvinnu- þróunarfélag Vestfjarða, sem hefur haft starfsemi á svæðinu, eða leyft fyrirtækjum sem starfað hafa á svæðinu um árabil og sýnt vilja og getu til atvinnusköpunar, að njóta þessara fjármuna til ný- sköpunar innan sinna félaga segist Halldór ekki geta metið það. „Því miður er ekkert þarna að mínu mati sem er hægt að segja að sé hönd á festandi. Verk- efnið var boðið út og þetta var eitt af þeim fyrirtækjum sem buðu í það en alls komu þrjú tilboð. Niðurstaða atvinnumálanefndar var að velja þetta fyrirtæki vegna þess að þar voru fjórir einstakl- ingar sem ætluðu að vinna þessi verkefni. Fyrirfram töldum við að þetta væri góð leið og markmiðið var mjög skýrt, en það var að skapa fimmtíu störf á tveimur árum og fyrirtækið sagði það vera ekki mikið mál, það væri alltof hóg- vært markmið að hálfu bæjarins. Fyrirtækið sagðist því ætla að skapa hundrað störf á tveimur árum. Fyrst að við sögðum fimmtíu störf í upphafi þá hefðu, miðað við þeirra forsendur, átt að geta skapast fimmtíu störf á því ári sem fyrirtækið starfaði hjá Ísafjarðarbæ,“ segir Halldór. – birgir@bb.is Halldór Halldórsson. Eikarbáturinn Hrönn ÍS sökk í höfn Ísafjarðarbæjar síðdegis á laugardag og voru björgunar- sveitir kallaðar út til að reyna að forða tjóni. Annar bátur var bund- inn við Hrönnina, þar sem hún lá við bryggju. Talið er að botnloki hafi farið og að flætt hafi inn í bátinn. Skera þurfti hinn bátinn, Jón forseta, frá Hrönn til að forða því að hann sykki með henni. Ekki er talið að tiltakanlegt tjón hafi orðið á Jóni forseta. Hrönn hefur ekki verið í mikilli notkun að undanförnu, og er því ekki um að ræða rekstrartjón vegna þess hvernig fór, heldur einungis tjón vegna skemmda á bátnum sjálfum, sem telja má þó að verði umtalsvert. Hrönn ÍS sökk í Ísafjarðarhöfn Setja fjármagn í snjóflóðavarnir Ríkisstjórnin hefur samþykkt víðtækar tillögur í atvinnumál- um, sem ætlað er að skapa ríflega 4000 ársverk á næstu misserum. Meðal þeirra eru bygging snjó- flóðavarna í Bolungarvík og í Holtahverfi í Skutulsfirði. Bygg- ing snjóflóðavarna í Traðahyrnu í Bolungarvík yrðu framhald af snjóflóðavarnargarðinum sem er í byggingu. Elías Jónatansson, bæjarstjóri Bolungarvíkur, segir bæjarstjórn hafa óskað eftir því með bréfi að það farið yrði í hönnunarvinnu til að klára varn- irnar sem vernda Völusteins- stræti og Bakkahverfi í Bolung- arvík, í beinu framhaldandi af framkvæmdunum sem standa yfir. „Ef að þarf að umróta fyrir þessum vörnum þá yrði það gert í beinu framhaldi af þeirri fram- kvæmd sem er í gangi núna,“ segir Elías. Gert er ráð fyrir 75 milljónum frá ríkinu í fram- kvæmdirnar. Þá gerir ríkistjórnin ráð fyrir 300 milljónum króna í byggingu snjóflóðavarnargarðs í Kubba, fyrir ofan Holtahverfið í Skutuls- firði. Heildarkostnaður við fyrir- hugaðar snjóflóðavarnir ofan Holtahverfis er áætlaður 810 milljónir króna miðað við verð- lag í febrúar 2008. Ráðgert er að hefja framkvæmdir við varnirnar í ár og að þær muni standa yfir í 3-4 ár. Jarðvinnu við þvergarð ætti þó að vera lokið á einu ári. Útlit þvergarðs (tölvuteiknað) ofan fjölbýlishúsa við Stórholt í Holtahverfi. Úr frumathugun VST hf., apríl 2005. Skera þurfti Jón forseta frá til að forða því að hún sykki ekki með Hrönninni.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.