Bæjarins besta - 12.03.2009, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 12. MARS 2009
Ritstjórnargrein
„Þegar bíður þjóðarsómi“
Útgefandi:
H-prent ehf.,
kt. 600690-1169,
Sólgötu 9, 400 Ísafjörður,
sími 456 4560, fax 456 4564
Ritstjóri:
Sigurjón J. Sigurðsson,
sími 892 5362, bb@bb.is
Blaðamenn:
Thelma Hjaltadóttir,
símar 456 4693 og 849
8699, thelma@bb.is
Birgir Olgeirsson, símar
456 4560 og 867 7802,
birgir@bb.is
Ritstjóri netútgáfu bb.is:
Sigurjón J. Sigurðsson
Ljósmyndari:
Halldór Sveinbjörnsson, sími
894 6125, halldor@bb.is.
Ábyrgðarmenn:
Sigurjón J. Sigurðsson
og Halldór Sveinbjörnsson
Lausasöluverð er kr. 400
eintakið með vsk. Veittur er
afsláttur til elli- og örorku-
lífeyrisþega. Einnig sé greitt
með greiðslukorti.
Önnur útgáfa:
Ferðablaðið
Á ferð um Vestfirði. ·
ISSN 1670 - 021X
Spurningin
Munt þú kjósa í próf-
kjöri einhvers stjórn-
málaflokkanna?
Alls svöruðu 628.
Já sögðu 272 eða 43%
Nei sögðu 356 eða 57%
Netspurningin er birt viku-
lega á bb.is og þar geta
lesendur látið skoðun sína
í ljós. Niðurstöðurnar eru
síðan birtar hér.
Erum öll jógar hið innra
„Maðurinn minn er Ísfirðingur
og við höfum verið mikið fyrir
vestan síðasta áratug eða svo.
Við kunnum voða vel við okkur
hér. Eina sem ég sakna er fólkið
mitt og vinir, Heilsubúðin og
frjálsíþróttahöllin. Og þá er það
upptalið. Helst vildi ég fá hingað
útibú frá Heilsubúðinni og frjáls-
íþróttahöllinni. Smá vakning er í
Samkaup og Bónus er kemur að
heilsuvörum en ég vil fá mikið
meira af fersku grænmeti og öðru
góðgæti. Ég er nú heldur ekki
ein um það og ég held að eftir-
spurnin eigi bara eftir að aukast.“
– Í sumar vakti það athygli að
Martha stóð fyrir úti-jóga á Aust-
urvelli.
„Mér finnst náttúran hér vera
svo stórkostleg og frábært að búa
í bæ eins og Ísafirði í faðmi fjalla
og fegurðar. Mér fannst því alveg
tilvalið að vera með jóga úti og
það var alveg eins yndislegt og
mig hafði dreymt um. Ég stefni
pottþétt á að vera með það aftur
næsta sumar.“
– Hvað hefurðu verið lengi í
jóga?
„Ég byrjaði sjálf að prófa jóga
1995 en hellti mér ekki út í það
fyrr en ég tók kennaraprófið úti í
Póllandi tveimur árum seinna.
Annars held ég að við séum öll
jógar innra með okkur. Lítil
ungabörn eru öll jógar. Barnið
kann að anda, slaka og vera í
núinu. Meira að segja þegar þau
byrja að hreyfa sig fara þau í
jógastellingar. Þetta býr því í
okkur öllum þegar við fæðumst
en síðan gleymum við þessu. Það
má því að segja að við séum að
sjúklingum sínum sem voru
komnir á það stig að þeir þurftu á
aðgerð að halda. Hann lét sjúkl-
ingana iðka jóga án þess láta þá
vita að um jóga væri að ræða, en
þetta var fyrir það mörgum árum
að fólk hafði ekki mikla trú á
því. Og svo sýndi hann fram á
það að hægt var að snúa ferlinu
við með því að tileinka sér þenn-
an lífstíl. Hann gaf út bók sem er
mjög þekkt í dag og heitir Revers-
ing heart disease. Þetta er bara
eitt dæmi af mörgum. Jóga getur
nýst manni á öllum sviðum og
hjálpað manni að líða betur og
finna frið innra með sér.“
– Martha segir bæjarbúa hafa
tekið sér og jóganu vel frá því að
hún flutti ásamt eiginmanni
sínum til Ísafjarðar á síðasta ári.
„Mér finnst Ísfirðingar, og
Vestfirðingar í heild, vera ofsa-
lega opið, jákvætt og öflugt fólk.
Mér hefur ekki fundist neitt mál
að hafa flutt í bæinn og byrjað á
mínum verkefnum. Enda er ég
ekki að ryðja neinn veg hér, gott
fólk hefur gert það á undan mér
og ég held því bara áfram.
Mér finnst eins og Vesturlanda-
búar séu tilbúnir núna til að taka
á móti þessari hugmyndafræði.
Hún snýst ekki um trúarfræði
eða hvernig fólk er á litinn heldur
er hún fyrir okkur öll, hvort sem
við erum lítil eða stór, ung eða
gömul eða hvað sem er. Hún
sameinar okkur ef eitthvað er,
enda þýðir orðið jóga að sameina.
Ég held að það sé ástæðan fyrir
því að jóga höfði svona til fólks,
rifja upp þegar við leggjum stund
á jóga.
Jóga er mikið meira en bara
jógastöður, öndun og slökun. Það
er heilmikil heimspeki, hugmynda-
fræði og lífstíll að baki því sem
ég held að eigi vel við langflesta.
Ekki síst þarf vestræni heimurinn
á þessu halda.“
Íslandsmet í jóga
–Martha stóð fyrir því að sett
var Íslandsmet í hópjóga í
íþróttahúsinu á Torfnesi í janúar
þar sem tæplega 150 manns komu
saman.
„Forsagan er sú að ég er
meðlimur af jógakennarafélagi í
Bandaríkjunum síðan ég tók nám-
skeið í barnajóga þar á landi. Ég
fékk tilkynningu frá félaginu að
stefnt væri að því að halda al-
þjóðlegan jógadag 24. janúar.
Mestmegnis fór hann fram í
Bandaríkjunum en félagið hvatti
til þess að jógakennarar alls stað-
ar myndu opna jógastúdíóin sín
og bjóða fólki, annað hvort frítt
eða til styrktar góðgerðarmála,
til að vekja almenning til um-
hugsunar hvað jóga er djúpstætt
og hefur upp á margt að bjóða.
Rannsóknir hafa sýnt fram á hvað
jóga gerir mikið. Þetta er ekki
einhver tískubóla enda hefur jóga
verið til staðar í þúsund ár, þó
það sé tiltölulega ný tilkomið á
Vesturlöndunum og gjörsamlega
að springa þar út um þessar
mundir. Til dæmis gerði hjarta-
læknir og jógi stóra rannsókn á
Martha Ernstsdóttir hefur stuðlað að andlegu og líkamlegu
jafnvægi Ísfirðinga frá því að hún flutti búferlum þangað
ásamt fjölskyldu sinni. Hún er menntaður sjúkraþjálfari og
margfaldur Íslandsmeistari í hlaupi. Hún á meðal annars
Íslandsmet kvenna í maraþoni, hálfu maraþoni, 10.000 metra
hlaupi og í 5000 m. Martha hefur verið landsliðskona í mörg
ár og keppti meðal annars á Ólympíuleikunum í Sydney árið
2000. Hún hefur því yfir mikilli reynslu að búa og ekki síst í
jóga en hún hefur nú stofnað jógamiðstöð á Ísafirði undir
nafninu Ljósið þitt sem nú er til húsa þar sem Straumur var
áður.
Martha segir Vestfirði vera magnaðan stað sem bjóði upp
á mikla möguleika í heilsutengdri ferðaþjónustu. Hún er
uppfull af hugmyndum og lætur þær verða að veruleika.
Sem dæmi má nefna jógasumarbúðir í Holti í Önundarfirði
sem hún ásamt fleirum fer af stað með í sumar.
Bæjarins besta ræddi við hlaupadrottninguna og jógakenn-
arann Mörthu og forvitnaðist um það af hverju hún sem er
fædd og uppalin í Reykjavík ákvað að flytja vestur.
Helgarveðrið
Horfur á föstudag:
Norðaustanátt og víða
dálítil él. Kalt í veðri.
Horfur á laugardag:
Norðaustanátt og víða
dálítil él. Kalt í veðri.
Horfur á sunnudag:
Norðaustanátt og víða
dálítil él. Kalt í veðri.
Verða ekki
við beiðninni
Umhverfisráðuneytið telur
sig ekki hafa tök á að verða
við beiðni um aukið fjármagn
til reksturs Náttúrustofu Vest-
fjarða í Bolungarvík og telur
jafnframt að stuðningur ráðu-
neytisins hafi verið í fullu sam-
ræmi við ákvæði samnings
um rekstur stofunnar. Farið
var fram á það að ráðuneytið
að það endurgreiddi Bolung-
arvík 24 milljónir króna.
Á hátíðarstundum eru tilvitnuð orð mörgum töm í munni og því
gjarnan bætt við að þá eigi Ísland eina sál. Falleg og innihaldsrík
ábending til fámennrar þjóðar um að þegar að kreppir beri henni að
standa saman; þannig geti hún sigrast á nær öllum erfiðleikum,
sem að kunna að steðja. Stjórnmálamönnum hefur verið þetta
einkar tamt.
Ætla mætti að við núverandi aðstæður væri þörfin fyrir þjóðar-
sóma og samheldni meiri en nokkru sinni fyrr. Lítið ber þó á brýn-
ingu í þá veru. Aftur á móti ríður sundurlyndis fjandinn mikinn. Og
er því miður æði aðsópsmikill hjá þjóðfélagsstétt, sem allra hluta
vegna ætti að sjá sóma sinn í því að slíðra sverðin; fólkinu sem tók
að sér að gæta hagsmuna okkar í einu og öllu, alþingismönnum.
Með þessu er ekki verið að segja að þingmenn beri einir eða öðr-
um fremur ábyrgð á því hvernig komið er. Fjarri því. Það þarf ekki
að velta við mörgum steinum til að átta sig á því að orsakir fyrir
kreppunni er víða að finna. En þingmönnum ber að sýna gott for-
dæmi. Því hvað sem öllu líður verður ekki fram hjá því horft að
stjórnmálamennirnir halda um þá þræði samfélagsins, sem öllu
skiptir hvernig bundnir eru meðan stormurinn gengur yfir svo við
náum að haga seglum á ný. Þess vegna geta alþingismenn ekki
leyft sér háttu götustráka, líkt og nú er siður margra skríbenta.
Þingmenn eru ekki stikkkfrí hvort heldur þeir hafa ákveðið að taka
pokann sinn eða biðla um skiprúm á ný. Þótt kosningabaráttan
kunni að verða hörð mega þeir ekki missa sjónar á því sem öllu
máli skiptir.
Varstu nokkuð óþekkur?
Eva Joly, rannsóknardómari og kunnur sérfræðingur í efnahags-
brotum og baráttu gegn spillingu, segir umbúðalaust að kurteislegar
spurningar til auðmanna um undanskot frá skatti gangi ekki. Slík
mál verði að lúta sömu lögmálum og hver önnur sakamál. Í stuttu
máli þá sé nauðsynlegt að sýna hörku við rannsókn efnahagsbrota.
Í þeim efnum dugi engin elsku mamma!
Krafa meginþorra þjóðarinnar er að afdráttarlaust verði upplýst
hvað varð um alla þá milljarða króna, sem með einum eða öðrum
hætti virðast hafa gufað upp í bankakerfinu. Bankastarfsemi er al-
þjóðleg og efnahagsbrot eru það líka, segir Eva Joly, sem nýverið
ræddi við íslenska ráða- og embættismenn.
Nýtum að fullu allar tiltækar leiðir til að komast til botns í þess-
um málum. Þar með talið samstarf við aðrar þjóðir, sem í mörgum
tilfellum glíma við sama vandann.
s.h.