Bæjarins besta


Bæjarins besta - 12.03.2009, Blaðsíða 7

Bæjarins besta - 12.03.2009, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 12. MARS 2009 7 því það hentar öllum. Jóga er heldur ekki bara það sem gerist á líkamsræktarstöðum heldur getur það t.d. líka falist í að hjálpa gamalli konu yfir götuna. Það að gefa af sér án þess að ætlast til einhvers kallast karmajóga, eins og t.d. móðir Teresa og Ghandi sem gáfu af sér af eintómum kær- leika. Við erum öll oft að gera karmajóga án þess kannski að gera okkur grein fyrir því.“ Börn opnari en fullorðnir – Þrátt fyrir að hafa hellt sér út í jógað sinnir Martha enn hlaup- inu. „Ég hamast á brettinu og er líka að þjálfa. Ég er með hóp í fjarþjálfun í Reykjavík og síðan verð ég með annan hóp þar í sumar sem ég hef þjálfað undan- farin fimm ár. Við vildum ekki sleppa hvort öðru svo ég ætla að verða áfram með þau í sumar og flakka bara á milli. Síðan er ég að þjálfa Riddara Rósu hér á Ísa- firði.“ – Meðal fjölmargra verkefna Mörthu er jóganámskeið fyrir börn í samstarfi við Skíðafélag Ísfirðinga, enda hentar vel að iðka jóga samhliða öðrum íþrótt- um. „Við erum rétt að fara af stað með skíðabörnin en mér finnst þetta mjög áhugavert verkefni. Íþróttamenn eru í auknum mæli að taka upp jóga því þeir finna að það hefur áhrif, t.d á hugann sem verður skýrari og einbeittari, á öndun og liðleika.“ – Eru börn opnari fyrir jóga en fullorðnir? „Börn eru á heildina litið opn- ari, rétt eins og þau eru opnari fyrir öllum hlutum, en það er líka einstaklingsbundið. Það er voða gaman að vinna með börn- um og það er frábært ef við getum aðstoðað börn með aðferðum jóga því þær styrkja þau innan frá. Og það hefur áhrif fyrir lífið.“ –Martha er með næg járn í eldinum en til að mynda er hún einnig að hefja með sjálfstyrk- ingarnámskeið fyrir unglings- stúlkur. „Ég er líka mjög spennt að vinna með þeim. Ég er einnig rétt að fara af stað með það nám- skeið. Ég vinn líka með eldri borgur- um á Hlíf sem er mjög skemmti- legt. Svo má ekki gleyma að ég er að fara bjóða atvinnulausum upp á fría jógatíma. Svo í samráði við áhugamannahópinn Heilsu- eflingu í Ísafjarðarbæ ætlum við að fara af stað með sex vikna jóga námskeið fyrir ófrískar kon- ur. Í sumar langar mig að fara af stað með hóp fyrir fólk sem hefur ekki hreyft sig í mörg ár og á erfitt með það, t.d. vegna þess að það er í yfirþyngd eða eitthvað annað. Mig langar til að hjálpa þeim með fyrstu skrefin.“ efni fyrir okkur öll. Ég sé fyrir mér Ísafjörð sem heilsubæ í framtíðinni. Allt svæðið býr upp á mikla mögu- leika í heilsutengdri ferðaþjón- ustu. Ég sé fyrir mér að við mun- um bjóða fólki hingað til að njóta náttúrunnar og slaka á. Það getur gengið á fjöll, farið að sigla eða í hestaferðir, möguleikarnir eru endalausir. Ég hef lengi gengið með þessa hugmynd í maganum. Ég veit ekki hvort Vestfirðingar átti sig á því hversu ótrúlega magnaður staðurinn er, en ég sem kem hingað sem aðkomumann- eskja skynja það svo sterkt. Í sumar erum við að fara með mjög spennandi verkefni sem við fengum hugmyndina að frá Bandaríkjunum. Þegar ég fór að læra barnajógað var sonur minn með í för og fór í svona jóga- sumarbúðir fyrir börn. Hann dvaldi þar í heila viku og fylgdi gildum jóga eins og virðing og samskipti. Og síðan var hann bara gera ýmislegt sem maður gerir í sumarbúðum. Þetta ætlum við að gera hér og til þess hef ég leigt Holt í Önundarfirði í sumar. Ég og maðurinn minn ásamt systur minni mági og tveimur vinkon- um, önnur er listmeðferðarfræð- ingur og hin íþróttafræðingur höfum sett saman vikudagskrá þar sem við bjóðum börnum til okkar og til að gera ýmislegt skemmtilegt eins og að ganga á fjöll, fara í fjöruferð, finna grös ásamt því að iðka jóga og finna kraftinn í sjálfum sér og náttúr- unni. Við vonumst til að fá til okkar börn sem víðast af landinu og miðum við aldurshópinn 9- 12 ára. Svo sjáum við bara til hvernig því verður háttað á næsta ári“, segir Martha og greinilegt er að margt spennandi er fram- undan hjá þessari kjarnakonu. – thelma@bb.is Heilsutengd ferða- þjónusta á Vestfjörðum – Eru þið fjölskyldan komin til að vera á Ísafirði? „Við ákváðum bara að koma og erum ekki búin að ákveða í hversu langan tíma. Það kemur bara í ljós. En við erum mjög ánægð hér. Ég er alltaf að æfa mig á því sem mér finnst eitt af erfiðustu verkefnum lífsins en það er að lifa í núinu. Ekki að vera velta sér upp úr fortíðinni eða spá í nútíðinni. Ég held að það sé alveg rosalega stórt verk-

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.