Bæjarins besta


Bæjarins besta - 12.03.2009, Page 10

Bæjarins besta - 12.03.2009, Page 10
10 FIMMTUDAGUR 12. MARS 2009 Innlit í Bolungarvíkurgön Hvað er að gerast inni í Bolungarvíkurgöngum? Fréttir berast vikulega um framkvæmdirnar, hversu mikið hafi verið borað, hvernig bergið hafi verið þá vikuna o. s.frv. En hvernig er lífið í raun inni í sjálfum göngunum? Ljósmyndari og blaðamaður Bæjarins besta brugðu inn í göngin til að fylgjast með jarðgangagerðinni og var byrjað á að fara inn í göngin Bolungar- víkurmegin. Athafnasvæði Ósafls, sem sér um jarðgangagerðina, hefur tekið stakkaskiptum síðan vinnan hófst síðastliðið sumar. Búið er að byggja nýja brú yfir Ósá, þá þriðju á 300 metra kafla, og vegurinn að göngunum hefur tekið á sig mynd. Einnig er snjóflóðavarnargarðurinn nær fullkláraður. Rúnar Ágúst Jónsson, staðarstjóri Ósafls fór með blaðamanni og ljósmyndara inn í göngin og fræddi þá um ýmislegt sem snýr að jarðgangagerðinni. Þúsund króna sekt fyrir gleymsku Á framkvæmdasvæðinu er gríðarstór moldarhaugur og segir Rúnar Ágúst hann vera efni sem hafi komið úr göngunum síðustu daga. Jarðlögin í göngunum hafa ekki verið með hagstæðasta móti og hafa framkvæmdir því gengið fremur hægt. Þegar komið er inn í gangamunnan þarf Rúnar að stimpla sig inn en starfs- menn Ósafls sæta þúsund króna sekt ef þeir stimpla sig ekki inn í göngin. Stimplað er inn m.a. vegna öryggisástæðna því nauðsynlegt er að vita um starfs- menn sem eru inn í göngunum hverju sinni. Heilög Barbara er í námundan við stimpilklukkuna en hún er verndardýrlingur kaþólskra námumanna en fjöldi kaþólikka starfar við jarðagangagerðina. Fimm-

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.