Bæjarins besta


Bæjarins besta - 12.03.2009, Qupperneq 14

Bæjarins besta - 12.03.2009, Qupperneq 14
14 FIMMTUDAGUR 12. MARS 2009 Mannskepnan brást Bloggið Mikil er sú speki sem frá Val- höll kemur. Maður fellur nánast á kné og langar að ákalla sjálf- stæðisguðinn. Og niðurstaða mikill bollalegginga - höfðanna sem legið hafa í bleyti - að kerfið og kenningarnar séu í fínu lagi - en bannsett mannskepnan brást. Er þetta ekki einmitt vandamálið - við erum þau sem bjuggum til kenningarnar - settum leikreglur og smíðuðum kerfið. Svo að auðvitað brugðumst við. Fyrst var það kommúnisminn sem hrundi til grunna - gekk ekki - og þá hlakkaði í kapítalistunum sem vissu betur - þangað til að kerfið þeirra hrundi. En þá er það útskýrt með því að mannskepnurnar sem höfðu töglin og hagldirnar brugðust. Guðfaðirinn í Valhöll - sjálfur Davíðinn - hann brást. Fylgdi ekki eigin kenningum og leikreglum og því hrundi allt til grunna. Hvað er það sem gerir að við mannfólkið erum svo gjörsamlega laus við að geta á nokkurn hátt stundað sjálfsgagnrýni? Og að halda því fram að kenningar og kerfi virki - vitandi það að eina forsendan fyrir því er að við virkum - hvort sem við erum kommar eða kapítal- istar. Dr. Þorleifur Ágústsson http://tolliagustar.blog.is Oft meiri snjór Þetta ástand er hvorki verra né betra en í ótalmörg skipti áður. Eins og Diddi Rós sagði í frétt- unum áðan þá er þetta bara venju- legt vetrarveður sem gert er allt of mikið úr. Það skal þó tekið fram að það er aldrei of varlega farið hjá yfirvöldum sem annast eftirlit í fjöllunum. En fyrir stóru flóðin var ekki spáð í svona lagað. Yfirvöld fóru ekki að rýma hús fyrr en eftir að þau féllu. Það væri nú munur ef fjölmiðlafólk sýndi meiri áhuga öllum þeim frábæru hlutum sem eru að gerast hér á svæðinu á hverjum degi. En því er nú ekki að heilsa nema að litlu leyti. það er eins og ekki sé varið í fréttir af svæðinu nema að þær séu neikvæðar. Þetta er orðið svolítið þreytandi að ekki megi snjóa þá fari misjafnlega upplýstir fréttamenn á stúfana og dramatiseri fréttir með þvílíkum tilþrifum. Ingólfur Þorleifsson http://golli.blog.is Ísland og Enron Það var óhugnalegt að horfa á þáttinn um Enron í gærkvöldi. Ótrúlega margt virðist vera líkt með íslensku bönkunum og En- ron. Að maður tali nú ekki um Fl group, Sterling og Stím. Hjá Enron tættu menn niður gögn í tonnavís á fyrsta degi eftir hrunið, hvað ætli sé búið að tæta mikið á Íslandi. Allar eftirlits- stofnanirnar brugðust, það var ekki fyrr en blaðamaður spurði hvaðan peningarnir kæmu sem blekkingarvefurinn hrundi. End- urskoðendur hljóta hreinlega að hafa verið í vitorði með svindl- urunum, ætli það hafi ekki verið þannig hér líka. Annað gengur ekki upp. Í Bandaríkjunum voru menn handjárnaðir og dregnir fyrir dóm. Hvað ætli gerist hér? Jóna Benediktsdóttir http://jonaben.blog.is Þorgeir Pálsson, framkvæmda- stjóri Atvinnuþróunarfélags Vest- fjarða var í Tókýó í Japan í síð- ustu viku þar sem Útflutningsráð Íslands og Ferðamálastofa, í sam- vinnu við sendiráð Íslands í Jap- an, kynntu Ísland og viðskipta- tækifæri á Íslandi. Áhersla var lögð á að kynna íslenska ferða- þjónustu og tækifæri hér á landi til fjárfestinga. Fjórtán fulltrúar fyrirtækja og stofnana tóku þátt í ferðinni auk forsvarsmanna Út- flutningsráðs og Ferðamálastofu. Í viðskiptasendinefndinni voru fulltrúar sjö ferðaþjónustufyrir- tækja sem kynntu Ísland sem áfangastað fyrir ferðamenn. Þar á meðal var kynning á Vestfjörð- um og sá Þorgeir um að kynna svæðið fyrir japönskum ferða- skrifstofum. Kynningin og efni sem dreift var til ferðaskrifstofanna er á jap- önsku og er það í fyrsta skipti sem vitað er til, að kynningarefni um Vestfirði á japönsku sé dreift erlendis. Kynningin og kynning- arefnið var unnið í samstarfi við Markaðsstofu Vestfjarða, en þýð- ing fór fram hjá sendiráði Ís- lands í Japan. – thelma@bb.is Vestfirðir kynntir í Japan Rannsókn hnífaárás- ar á Ísafirði á lokastigi Rannsókn á hnífaárás sem átti sér stað í heimahúsi á Ísafirði um miðjan síðasta mánuð er langt á veg komin samkvæmt upplýsing- um sem fengust hjá lögreglunni á Ísafirði. Hlynur Snorrason, rannsóknarlögreglumaður, segir að ekki verði ákært í málinu fyrr en málið hefur verið afgreitt og sent til fulltrúa lögreglustjóra. „En það er verið að vinna úr gögnum og ætti ekki að vera langt í að ákæra verði gefin út,“ segir Hlynur. Hann segir það ekki lögregl- unnar að ákveða hvort ákært verður í málinu og undir hvaða ákærulið. Atvikið átti sér stað í samkvæmi í heimahúsi á Ísafirði aðfararnótt 15. febrúar s.l. Sam- kvæmt heimildum blaðsins tók árásarmaðurinn sér stöðu fyrir aftan mann og reyndi að skera hann á háls með hníf en aðrir húsgestir skárust í leikinn og yfir- buguðu hann. – birgir@bb.is Vestfirðingurinn Helga Rakel Rafnsdóttir hlaut menningar- verðlaun DV fyrir heimildar- myndina Kjötborg sem hún leik- stýrði ásamt Huldu Rós Guðna- dóttir. Kjötborg vann í flokki kvikmynda og var hún tilnefnd ásamt Brúðgumanum eftir Balt- asar Kormák, Dagvaktinni eftir Ragnar Bragason, Smáfuglum eftir Rúnar Rúnarsson og Kvik- myndahátíðinni Skjaldborg á Patreksfirði. „Kjötborg er gull- falleg og lágstemmd „feelgood“ frásögn um afmarkað samfélag í borginni. Þeir Kristján og Gunnar verslunareigendur kunna að vera með síðustu kaupmönnunum á horninu en tilfinningin er samt sú að þeir hafi alltaf verið þarna - og muni vonandi alltaf vera þarna, því það kemst ágætlega yfir að þessir ágætu menn bjóða ekki aðeins upp á fjölbreytt úrval hvers kyns dagvöru heldur einnig trú, von og kærleika,“ segir um kvikmynda í DV. Nýbygging Grunnskólans á Ísafirði var einnig tilnefnd til verðlaunanna í flokki byggingar- listar en þar sigraði bygging Menntaskóla Borgarbyggðar. Menningarverðlaun DV eru ár- legur viðburður þar sem veitt eru verðlaun fyrir einstakt framlag einstaklinga til menningarinnar, að mati dómnefndar í hverjum flokki. Að auki voru veitt net- verðlaun og sérstök heiðursverð- laun sem forseti Íslands, hr. Ól- afur Ragnar Grímsson, afhenti. Menningarverðlaun DV komu til sögunnar árið 1978 í framhaldi gagnrýnendaverðlauna sem kennd voru við Silfurlampann og Silfur- hestinn. Síðan hafa verðlaunin verið árviss að undanskildum tveimur árum sem þau féllu nið- ur. Verðlaunagripurinn er eftir listakonuna Huldu Hákon og kallast „Jónas“ eftir frumkvöðl- inum, Jónasi Kristjánssyni, fyrr- verandi ritstjóra DV. – birgir@bb.is Hlaut menningarverðlaun DV Helga Rakel Rafnsdóttir.

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.