Bæjarins besta - 12.03.2009, Qupperneq 19
FIMMTUDAGUR 12. MARS 2009 19
Sælkerinn
Kjúklingur og ávaxta- og berjapæ
Sveinfríður býður upp á kjúkl-
ing og ávaxta-og berjapæ. „Oft
er það einfaldasta allra best og
það á við um þessa rétti og þeir
eru nokkuð hollir líka“, segir hún.
Kjúklingur á spínatbeði
4 kjúklingabringur eða 1 úr-
beinaður kjúklingur
1 dós Satay sósa (best frá Thai
choice)
1 poki spínat
furuhnetur (ristaðar)
feta ostur
rauðlaukur
Best er að láta kjúklinginn
marinerast í sósunni yfir nótt. Kjúkl-
ingurinn og sósa sett á pönnu-
steikja í nokkrar mínútur. Spínati,
hnetum, osti og söxuðum rauð-
lauk blandað saman og kjúkling-
ur settur yfir. Borið fram með
kúskús (með sólþurrkuðum tóm-
ötum) og brauði.
Ávaxta- og berjapæ
frábær með kaffinu eða sem
eftirréttur eftir létta máltíð.
6 dl frosin ber eða ávextir að
hnetum
80 gr marsipan skorið í litla
bita
5 sneiðar af frosnu smjöri
(skorið með ostaskera)
¼ l rjómi
1 dós hrein jógúrt
1 msk vanillusykur
Hellið berjunum eða ávöxtun-
um í eldfast form. Bláber, hindber
vild
2 ½ dl gott ristað múslí með
og jarðarber eru mjög góð og
epli og mangó ekki síður. Dreifið
hrærið hreint jógúrt saman
við.Verði ykkur að góðu.
Ég skora á Sveinfríði Olgu
Veturliðadóttur á Ísafirði að
koma með eitthvað gott í næsta
blaði. Hún leynir á sér stelpan.
múslíblöndunni yfir og marsi-
paninu. Síðan smjörið í sneiðum.
Bakið við 180 °C í 30 mínútur,
eða þar til pæið er bakað í gegn
og skorpa hefur myndast að ofan.
Þeytið rjóma og vanillusykur og
Sælkeri vikunnar er Sveinfríður Hávarðardóttir á Ísafirði.
Hlífarsamætið haldið í 103. sinn
Um 130 manns mættu á
Hlífarsamsætið sem haldið
var í sal Frímúrara á Ísafirði
á sunnudag. Var þetta í 103.
skiptið sem samsætið er hald-
ið en Kvenfélagið Hlíf heldur
það árlega og voru kvenfé-
lagskonur einstaklega
ánægðar með mætinguna
miðað við að færðin var
fremur slæm. Þorsteinn
Jóhannesson, læknir hélt er-
indi um hvernig var að alast
upp sem Hlíðarvegspúki á
Ísafirði um miðbik síðustu
aldar. Þorsteinn rakti stráka-
pör púkanna og rifjaði upp
hversu eftirminnilegt það var
að leika sér í slippnum í
Neðstakaupstað og hve
starfsmenn slippsins voru
einstaklega þolinmóðir varð-
andi strákapör púkanna og
hjálplegir við boga- og sverð-
smíði þeirra. Félagar úr Litla
leiklúbbnum sýndu brot úr
söngskemmtuninni „Við
heimtum aukavinnu“, þjóð-
fræðingurinn Ólína Þorvarð-
ardóttir fjallaði um íslenskan
kveðskap og nemendur úr
Dansskóla Evu Friðþjófsdótt-
ur sýndu dansatriði. Boðið
var upp á heitt súkkulaði
með rjóma, brauð og kökur
og að endingu stigu gestir
samsætisins dans. Þess má
geta að Kvenfélagið Hlíf
verður hundrað ára á næsta
ári. Meðfylgjandi myndir
voru teknar í samsætinu.
– birgir@bb.is