Bæjarins besta - 21.05.2009, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2009
Karl Guðmundsson bóndi að Bæ í Súgandafirði sýnir barnabörnunum handtökin við að marka.
Óvenjumikil frjósemi í ár
Sauðburður er í fullum gangi í
sveitum landsins og er því nóg
um að vera hjá sauðfjárbændum.
Bæjarins besta skrapp í heimsókn
að sveitabýlinu Bæ í Súganda-
firði og forvitnaðist um hvernig
gengi á þessum háannatíma.
Fyrsta ærin sem bar þar var fimm-
lembd. Það bar vitni um hvað
koma skyldi en óvenju mikil frjó-
semi er í ár.
– Hvernig hefur sauðburðurinn
gengið hjá ykkur?
„Hann hefur gengið mjög vel.
Við erum með 479 kindur og
lömb og þar af eru 423 ær sem
bera. Sauðburðurinn byrjaði 27.
apríl, sem var viku of snemma
miðað við sæðinguna. Þar af leið-
andi tekur þetta lengri tíma, en
sauðburði ætti að ljúka hjá okkur
kringum mánaðamótin maí-júní,“
segir Karl Guðmundsson bóndi.
– Mikil frjósemi hefur verið
hjá ánum hér í ár og var ein ærin
fimmlembd sem verður að teljast
mjög óvanalegt.
„Já, það kom ein með fimm
lömb, sem er óvanalegt hjá
okkur, en kannski ekki svo mjög
þaðan sem hún er. Ég keypti hana
frá Mýrum í Dýrafirði. Það hefur
oft verið mikil frjósemi þar. Hún
er sjálf með tvö lömb og tveimur
komum við undir aðrar kindur,
en eitt þeirra féll frá.“
– Er ekki mikil stemmning
þegar kemur að sauðburðinum?
„Þetta er heilmikil vinna og
margar vökunætur sem fylgja
þessu. En ungviðið hefur mikinn
áhuga á þessu og vill fá að taka
þátt. Barnabörnin koma um helg-
ar og þeim þykir ógurlega gaman
að fylgjast með. Enda er mikið
um að vera, það eru að bera 20-
30 kindur á dag og því eru að
fæðast allt upp í 50-60 lömb dag-
lega. Það hefur verið óvenjumikil
frjósemi í ár og margar ær eru
tví- og þrílembdar. Ekki veit ég
hvaða ástæða er fyrir því en þær
hafa sjálfsagt fengið eitthvað gott
yfir fengitímann.“
– Það eru fleiri en barnabörnin
sem hafa áhuga á þessu krafta-
verki lífsins en fólkið í Bæ hefur
ósjaldan boðið til sín skólabörn-
um á þessum tíma.
„Það er alltaf gaman að fá
krakkana í heimsókn enda þykir
þeim mjög gaman að þessu. Þau
sjá þetta ekki á hverjum degi,
hvað þá þegar þau ná að sjá ein-
hverja kindina bera, það er mikil
upplifun fyrir þau. Einnig hefur
komið til okkar fólk frá Ísafirði
með smákrakka og þeim finnst
þetta spennandi“, segir Karl Guð-
mundsson bóndi, sem er nú orð-
inn þaulvanur þessum gangi lífs-
ins.
– thelma@bb.is