Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.05.2009, Síða 5

Bæjarins besta - 21.05.2009, Síða 5
FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2009 5 Verslun Bónuss á Ísafirði fagn- ar 10 ára afmæli sínum um þessar mundir en verslunarkeðjan var stofnuð fyrir 20 árum. „Við höf- um verið á Ísafirði í tíu ár og þar var okkur tekið með kostum og kynjum og hefur okkur liðið vel þar allar götur síðan. Það er alveg með ólíkindum hvað Vestfirð- ingar hafa tekið okkur vel“, segir Jóhannes Jónsson, stofnandi Bónuss. Í tilefni af afmælinu er unnið að endurbótum á búðinni. „Það er verið að laga búðina svo- lítið til, gera hana aðgengilegri og endurnýja hluti sem náttúru- lega láta á sjá eftir mikla notkun“, segir Jóhannes. „Ég verð fyrir vestan í kringum uppstigningar- dag og þá ættum við að vera klárir í slaginn með endurbætta búð“, segir Jóhannes. Verslun Bónus hefur verið vel tekið af Ísfirðingum og nær- sveitamönnum síðan hún var opnuð í júní 1999. Þess má geta að árið 2006 voru Jóhannesi af- hent verðlaun ísfirskrar alþýðu. Það var þó ekki auðveld ákvörð- un á sínum tíma að vera með sama verð á Ísafirði og á höfuð- borgarsvæðinu. „Ég ætla ekki láta sem fraktin vestur sé ódýr eins og Vestfirðingar þekkja vel sjálfir. En það hefur bara verið svo mikil verslun á Ísafirði að þetta hefur alveg gengið upp. Það hefur líka komið sér vel fyrir fjölskyldufólk fyrir vestan að hafa lægsta verðið á landinu“, segir Jóhannes. Fyrsta Bónusverslunin var opn- uð í apríl 1989 í Skútuvogi. Fjöldi verslana er nú tæplega 30 á Íslandi og fjórar í Færeyjum. Bónus á Ísafirði 10 ára Mikið verður um dýrðir um hvítasunnuhelgina er íþróttafé- lagið Hörður á Ísafirði heldur upp á 90 ára afmæli félagsins. Dagskrá afmælishátíðarinnar er glæsileg en hún hefst kl. 18 á föstudeginum með setningu af- mælishátíðarinnar á Harðarskála- flöt þar minnisvarði um skálann verður vígður. Kl 20 sama dag verða sýningar á taekwondo og júdó ásamt keppni í Þrastarglímu í íþróttahúsinu á Torfnesi. Á laugardeginum kl. 09.30, verður afhentur bikaraskápur í íþrótta- húsinu Torfnesi og kl. 10 hefst keppni um Vestfirðingabeltið. Kl. 11 verður minningarmót um Guðna Albert kóngabana í glímu. Kl. 13 mætir meistara- flokkur Harðar, Selfossi í hand- knattleik og kl. 15.30 hefst há- tíðardagskrá þar sem verða ræðu- höld, heiðranir, leiksýning, tón- list og vígður nýr félagsfáni. Á sunnudageginum kl. 12 verður frjálsíþróttamót yngri flokka og kl. 14 lýkur afmælishátíðinni með vítaspyrnukeppni milli ,,heldri“ Harðverja og Vestra púka. Fjölbreytt afmælisdag- skrá Harðar á Ísafirði Útvegsmenn og fiskverkendur í Ísafjarðarbæ skora á bæjaryfir- völd að beita áhrifum sínum til að koma í veg fyrir þau áform ríkisstjórnarinnar að koma fyrn- ingarleið í sjávarútvegi á. Áskor- un þessa efnis var afhent bæjar- stjórn Ísafjarðarbæjar á fjöl- mennum fundi þar sem mættir voru átján einstaklingar sem starfa í sjávarútvegi. Í áskorun- inni segir að fyrningarleiðin sé aðför að rekstrargrundvelli at- vinnugreinarinnar og þar með undirstöðu lífsafkomu fjölda fólks sem starfi í sjávarútvegi og þjónustugreinum tengdum hon- um. Kölluðu útvegsmennirnir fyrningarleiðina feigðarleið. „Jóhanna Sigurðardóttir, for- sætisráðherra, áréttaði í viðtali þann 6. maí sl. að áform um að fara svokallaða fyrningarleið í sjávarútvegi væru enn í fullu gildi og að þeim yrði beitt. Útvegs- menn og fiskverkendur um land allt, hvort sem þeir gera út stór skip eða smá, hafa eindregið varað við að þessi leið verði farin. Með fyrningarleið er verið að gera að engu þá hagræðingu sem nauðsynleg hefur verið í sjávar- útvegi undanfarin ár. Þessi leið er aðför að rekstrargrundvelli at- vinnugreinarinnar og þar með undirstöðu lífsafkomu fjölda Vest- firðinga sem starfa í sjávarútvegi eða þjónustugreinum tengdum honum. Við núverandi aðstæður í þjóðfélaginu er glapræði að vega að undirstöðuatvinnugrein landsbyggðarinnar. Við skorum á bæjaryfirvöld að beita áhrifum sínum til að koma í veg fyrir þessa aðför. Við skorum á ykkur að standa vörð um stöðuleika sem er forsenda afkomu atvinnugreinarinnar og gjaldeyrisöflunar þjóðarinnar. Vestfirskur almenningur þarf á því að halda að raddir ykkar heyr- ist á opinberum vettvangi til stuðnings sjávarútvegi,“ segir í áskoruninni. Útgerðarmenn skora á bæjarstjórn að beita sér gegn fyrningarleiðinni Frá fundinum í Stjórnsýsluhúsinu.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.