Bæjarins besta - 21.05.2009, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2009
Útgefandi:
H-prent ehf.,
kt. 600690-1169,
Sólgötu 9, 400 Ísafjörður,
sími 456 4560, fax 456 4564
Ritstjóri:
Sigurjón J. Sigurðsson,
sími 892 5362, bb@bb.is
Blaðamenn:
Thelma Hjaltadóttir,
símar 456 4693 og 849
8699, thelma@bb.is
Birgir Olgeirsson, símar
456 4560 og 867 7802,
birgir@bb.is
Ritstjóri netútgáfu bb.is:
Sigurjón J. Sigurðsson
Ljósmyndari:
Halldór Sveinbjörnsson, sími
894 6125, halldor@bb.is.
Ábyrgðarmenn:
Sigurjón J. Sigurðsson
og Halldór Sveinbjörnsson
Lausasöluverð er kr. 400
eintakið með vsk. Veittur er
afsláttur til elli- og örorku-
lífeyrisþega. Einnig sé greitt
með greiðslukorti.
Önnur útgáfa:
Ferðablaðið
Á ferð um Vestfirði. ·
ISSN 1670 - 021X
Spurningin
Ætlar þú að ferðast
um Vestfirði í sumar?
Alls svöruðu 510.
Já sögðu 402 eða 79%
Nei sögðu 54 eða 10%
Óvíst sögðu 57 eða 11%
Netspurningin er birt viku-
lega á bb.is og þar geta
lesendur látið skoðun sína
í ljós. Niðurstöðurnar eru
síðan birtar hér.
Ritstjórnargrein
Víða steðjar vandi að
Snjóflóðið á Seljalandsdal sem rústaði sumarhúsabyggðinni í
Tunguskógi leiddi til þess að skíðaparadís Ísfirðinga var flutt um
set, ef svo má orða. Í framhaldi var byggður varnargarður á Múlanum.
Umdeild framkvæmd á sínum tíma. Vissulega mikið umhverfisrask,
sem missti athygli og umtal eftir því sem fram liðu stundir. Fyrir-
hugaðar snjóflóðavarnir í Kubbanum eru umdeildar líkt og garðurinn
á Múlanum forðum. Sitt sýnist hverjum um nauðsyn þeirra og telja
þeim fjármunum, sem til þarf, betur til annarra verka varið.
Víða steðjar vandi að. Byggðum á Íslandi stafar ekki bara hætta
frá allt um liggjandi fjallgörðum hvort heldur er í vorleysingum eða
svartnætti vetrarins. Hlýnandi loftslag og bráðnun jökla segir til sín
í hækkandi yfirborði sjávar og mun gera í enn ríkari mæli eftir því
sem ár og aldir líða, ef fram fer sem horfir með breytingar í lofthjúpi
jarðar.
Eyri við Skutulsfjörð er ein þeirra byggða þar sem ágangur sjávar
er vandamál undir vissum kringumstæðum. Um er að ræða sjóvarnar-
garðinn við Pollgötuna á Ísafirði. Þegar stórstreymi og sterk vestanátt
fara saman er umferð um götuna ekki fýsileg. Við þær aðstæður
virkar sjóvarnargarðurinn eins og stökkpallur fyrir vindbáruna á
Pollinum.
Vegagerðin er sögð uppi með áætlanir til lausnar. Þær munu þó,
eftir því sem best er vitað, aðeins til þess fallnar að draga úr bráðasta
vandann. Þótt það sé gott út af fyrir sig er vilji bæjaryfirvalda er
annar. Þau vilja að farið verði í gerð tveggja garða sem í senn ,,verja
Pollgötuna fyrir sjógangi og um leið skapa aðstæður sem búa hér til
góða höfn fyrir smábáta,“ að sögn Halldórs Halldórssonar, bæjarstjóra
Ísafjarðarbæjar. Hann kveður samgönguráðherra hafa verið kynnt
málið með ósk um samstarf Vegagerðar, Siglingamálastofnunar og
bæjaryfirvalda.
Trúlega verður ekki hjá því komist að betrumbæta sjóvarnargarðinn
þar sem hann er lægstur. Sú plástrun dregur sjálfsagt úr vandanum
en leysir hann ekki. Eina raunhæfa lausnin er gerð varnargarðs
(garða) sem nær að brjóta upp báruna áður en hún skellur á grjótgarð-
inum við Pollgötuna. Slíkur varnargarður býður upp á möguleika
fyrir snoturri smábátahöfn, sem setja myndi svip á miðbæinn.
Ástandið í þjóðfélaginu gefur ekki tilefni til bjartsýni á að tillögur
bæjaryfirvalda nái fram að ganga með skjótum hætti. Engu að síður
verður að horfa fram á veginn, ,,hanna og undirbúa verkefnið, það er
stóra málið,“ svo vitnað sé til orða Halldórs Halldórssonar, bæjar-
stjóra.
Þótt á móti blási um sinn verðum við að hugsa stórt og horfa til
framtíðar. – s.h.
Helgarveðrið
Horfur á föstudag: Hæg
austlæg eða breytileg átt
og þokuloft eða súld við
ströndina, en annars
skýjað með köflum eða
bjart veður. Hiti 10-16
stig. Horfur á laugar-
dag: Útlit fyrir austanátt
með vætu en úrkomulítið
norðanlands. Kólnar
heldur í veðri. Horfur á
sunnudag: Útlit fyrir
austanátt með vætu en
úrkomulítið norðanlands.
Kólnar heldur í veðri.
Ertu
orðin(n)
áskrifandi?
Síminn er
456 4560!
Mikið vatn umlauk geymslu
sem hýsir Ísafjarðarkirkju hina
eldri í Engidal í Skutulsfirði í
síðustu viku. „Þessi staður var
upphaflega valinn til að geyma
kirkjuna í samráði við bæjaryfir-
völd og arkitekt Húsafriðunar-
nefndar. Það hefur þó komið áður
fyrir í vorleysingum að áin flæði
yfir bakka sína og að geymslunni.
Við höfum ekki gert könnun á
því hvernig kirkjunni reiðir af en
ég held að það sé ljóst að gamalt
timbur fer ekki vel út úr svona
kringumstæðum“, segir séra
Magnús Erlingsson, sóknarprest-
ur á Ísafirði. Eftir að kirkjan
brann árið 1987 fóru í hönd mikl-
ar bollaleggingar þess efnis hvort
endurbyggja ætti kirkjuna eða
reisa nýja. Úr varð að ný kirkja
var reist á staðnum þar sem hin
eldri stóð. Söfnuðinum var þá
skylt að taka gömlu kirkjuna nið-
ur, spýtu fyrir spýtu, og varðveita
hana, annars hefði ekki fengist
leyfi fyrir niðurrifi hennar.
Kirkjan var tekin niður árið
1991 og hver spýta var merkt,
hvort sem þær voru heilar, fúnar
eða brunnar. Því næst var smíðað
utan um hana til að varðveita
innviði kirkjunnar um ókomin
ár. „Ég held að þessi frágangur á
sínum tíma sýni að menn hafi
verið að uppfylla einhverja kvöð
þar sem allir sjá að þetta er nú
ekki góð geymsla til lengri tíma“,
segir Magnús. Aðspurður hvort
annar geymslustaður komi til
greina segist Magnús ekki vita
til þess. „Ég sé ekki lausn á þess-
um vanda sem stendur, þetta er
sú lóð sem við fengum og það
hefur ekki verið farið í það að
finna nýja. Kirkjan er ekki með
stóra sjóði og á fullt í fangi með
að borga af nýju kirkjunni og
halda uppi söfnunarstarfi. Að
auki er boðaður er niðurskurður
innan kirkjunnar. Það er bara
hinn napri sannleikur að við erum
með næg verkefni á okkar könnu.“
Í aðalskipulagi er gert ráð fyrir
að gamla Ísafjarðarkirkja verði
endurreist á viðeigandi lóð í Skut-
ulsfirði. Aðspurður um þetta seg-
ir Magnús ekki hafa mikla trú að
af því verði. „Ég tel þetta vera
gott dæmi um svona 2007 mál.
Það þarf töluverða peninga til
þess að byggja kirkjuna svo sómi
sé að, því það yrði að gera í
upprunalegri mynd. Ég veit ekki
hvaðan þeir peningar ættu að
koma, því það er ekki eins og
peningar liggi mikið á lausu í
þjóðfélaginu um þessar mundir.
Ekki góð geymsla til lengri tíma
Gamla kirkjan er geymd í Engidal í húsi sem ber um þessar mundir svip með örkinni hans Nóa.