Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.05.2009, Page 11

Bæjarins besta - 21.05.2009, Page 11
FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2009 11 verðum við að fara með sýning- una til Reykjavíkur. Mér skilst að þar verði þrjár sýningar síð- ustu helgina í maí. Það var af- skaplega skemmtilegt að taka þátt í þessu.“ Skemmtileg aukabúgrein Annað hugðarefni Hildar er ferðamennska og ferðaleiðsögn og gegnum árin fyrir vestan hefur hún alltaf öðru hverju fengist við leiðsögustörf. Ferðalög innan- lands eru eitt af hennar helstu áhugamálum. „Að vísu hafði ég ekki aflað mér neinna réttinda til leiðsögu- starfa fyrr en ég fór í nám í svæð- isleiðsögn þegar Fræðslumiðstöð Vestfjarða bauð það hér fyrir vestan. Þaðan útskrifaðist ég sem svæðisleiðsögumaður á Vest- fjörðum og Vesturlandi. Ég hef unnið töluvert mikið við þetta hjá ferðaskrifstofunni Vesturferðum á Ísafirði undanfarin sumur og reyndar tekið að mér verkefni fyrir fleiri. Ég hef haft mjög gam- an af þessari aukabúgrein. Það sem heillar mig mest við leið- sögustarfið er að fá að ferðast. Vestfirðirnir höfða svo sterkt til mín sem ferðamannasvæði og þess vegna er auðvelt að gefa af sér til þeirra sem koma í heim- sókn.“ Því má skjóta hér inn, að Guð- jón Torfi sambýlismaður Hildar er líka svæðisleiðsögumaður. Spurningarnar heilla! Hildur er að eigin sögn ófor- betranleg áhugamanneskja um spurningakeppni. Eins og sagði hér í upphafi var hún í vetur í liði Ísafjarðarbæjar í Útsvari. Félagar hennar þar eins og flestir ættu að muna voru Jónas Tómasson, tón- skáld og flautuleikari, og Páll Ásgeir Ásgeirsson, blaðamaður, rithöfundur og ferðagarpur. „Ég hef sinnt því í hjáverkum í skólanum að aðstoða nemendur í keppninni Gettu betur. Þar leiddi eitt af öðru þannig að ég var beðin að taka sæti í liði Ísa- fjarðarbæjar. Það var ljómandi skemmtilegt, liðsfélagarnir alveg frábærir og við náðum mjög vel saman. Ég kannaðist aðeins við þá Jónas og Pál áður en þekkti þá ekki neitt. Baldur Trausti Hreinsson leik- ari frá Ísafirði átti að vera í liðinu en svo gaf hann það frá sér vegna anna og Páll Ásgeir kom inn í staðinn samkvæmt uppástungu Baldurs. Það var enginn smá- fengur að fá Palla. Bæði hann og Jónas eru ákaflega fróðir og vel lesnir. Þetta gekk alveg þokka- lega enda þótt við kæmumst ekki í undanúrslitin, sem var næsta skrefið hjá okkur.“ Að rækta fjölskyldulífið Hvað önnur áhugamál í lífinu varðar nefnir Hildur þó fyrst og fremst góðar stundir með fjöl- skyldu og vinum. „Það reyni ég alltaf að rækta þó að mikið sé að gera þar fyrir utan. Eitt af því sem við höfum gaman af er að spila hin ýmsu spil, hvort sem þar er um að ræða hefðbundin spil eða borðspil.“ Eins og áður sagði er Edda Arnholtz móðir Hildar búsett á Mýrum í Dýrafirði. Eiginmaður Eddu og stjúpi Hildar er Valdi- mar Gíslason bóndi og sagnfræð- ingur á Mýrum. Faðir Hildar er Halldór Ólafs- son, búsettur í Reykjavík. Hann var lengst af starfsmaður hjá Norrænu eldfjallastöðinni og Jarðvísindastofnun Háskóla Ís- lands. Kona hans er Inga Dagný Malmberg. „Gegnum foreldra mína hef ég fengið hinn mikla áhuga á Íslandi og íslenskri náttúru. Líka hef ég alltaf haft mikinn áhuga á jarðfræði þó að ég hafi menntað mig sem líffræðingur.“ Bróðirinn líka kominn á Ísafjörð „Síðan er ég svo heppin að eiga bróður. Ég er mjög rík! Hann heitir Ólafur Halldórsson, sjúkra- þjálfari hérna á Ísafirði. Ég segi að ég sé rík því að ég er svo ánægð með það að hann skuli búa hér. Hann er sex árum yngri en ég og fluttist með mömmu vestur í Dýrafjörð á sínum tíma. Svo bjó hann í Reykjavík og síðan á Patreksfirði og svo aftur í Reykja- vík, en þá höguðu örlögin því þannig að hann fluttist hingað vestur fyrir fjórum árum. Síðan er hann búinn að stofna hér sjúkraþjálfunarstöð og alveg bú- inn að setja sig niður hérna með konu og barnaskara. Það er nota- legt að geta aftur verið í nánari samskiptum við hann en var í mjög mörg ár þegar við vorum ýmist hvort á sínu landshorninu eða hvort í sínu landinu.“ MÍ er mjög góður vinnustaður – Hverfum aftur í lokin að Menntaskólanum á Ísafirði og starfinu þar. Hvernig gengur? „Menntaskólinn á Ísafirði er mjög góður vinnustaður. Núna erum við að vinna við mjög erf- iðar aðstæður undir niðurskurð- arhnífnum. Það getur orðið nokk- uð flókið að skipuleggja næstu misseri út frá peningahliðinni. En við brettum bara upp ermarnar og reynum að gera það besta úr hlutunum. Því má ekki gleyma, að í skól- anum er mjög fjölbreytt náms- framboð og sérstaklega er verk- námi gert hátt undir höfði. Líka er skólinn í fremstu röð meðal framhaldsskóla á landinu hvað varðar tölvuvæðingu.“ Eins og áður kom fram er ekk- vestan? – Hlynur Þór Magnússon. ert fararsnið suður á Hildi Hall- dórsdóttur og fjölskyldu hennar. Enda mætti þá spyrja: Til hvers eiginlega? Hvar er betra en fyrir

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.