Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.05.2009, Síða 12

Bæjarins besta - 21.05.2009, Síða 12
12 FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2009 Fiskaflinn í nýliðnum apríl mánuði var 28% minni en á sama tíma í fyrra. Alls veiddust 94 þúsund tonn í ár samanborið við 130 þús. tonn í apríl fyrra. Sam- dráttur varð bæði í botnfiskafla og uppsjávarafla en aukning varð í afla skel- og krabbadýra, að því er fram kemur í nýjum tölum Fiskistofu. Botnfiskaflinn í apríl var liðlega 40 þús. tonn saman- borið við 51 þús. tonn í sama mánuði í fyrra. Þorskaflinn var hins vegar nánast sá sami bæði árin eða liðlega 16 þús. tonn. Rétt er þó að minna á að pásk- arnir voru í apríl að þessu sinni en í mars í fyrra. Samdráttur varð í afla flestra botnfisktegunda ann- arra en þorsks. Meðal annars dróst afli í ýsu saman um 5 þús. tonn í aprílmánuði á milli ára eða úr 11.900 tonnum í 6.800 tonn. Talsverður samdráttur varð einnig í ufsa, karfa og grálúðu. Merkjanleg aukning varð hins vegar í steinbít og þykkvalúru ásamt botnfisktegundum. Frá þessu er greint á vef Hagstof- unnar. – birgir@bb.is Fiskaflinn minnk- aði um 28% í apríl Halldór Halldórsson, bæjar- stjóri Ísafjarðarbæjar, áætlar að 6-8 milljóna króna sparnaður hljótist af sameiningu Markaðs- stofu Vestfjarða og Upplýsinga- miðstöðvar ferðamála á Ísafirði. Eins og fram hefur komið hafa ráðherra ferðamála og ferðamála- stjóri lýst því yfir að eðlilegt telj- ist að markaðsstofum verði breytt í landshlutastofur og eitt hlutverk þeirra verði að reka landshluta- miðstöðvar í stað upplýsingamið- stöðva. Bæjarráð Ísafjarðarbæjar telur hagræðingarmöguleika fólgna í þessu og hefur hvatt stjórnvöld til að hrinda því í framkvæmd fyrir 2010. Framlag Ferðamála- stofu til rekstrar upplýsingamið- stöðvar í Ísafjarðarbæ hefur verið 2,5 milljónir króna undanfarin ár en hækkar upp í 3 milljónir vegna ársins 2009. „Eins og kunnugt er hefur það ákaflega lítið að segja upp í heild- arrekstrarkostnað við rekstur þessarar upplýsingamiðstöðvar“, segir í bréfi Halldórs til bæjar- ráðs. Í dag greiðir Ísafjarðarbær eitt sveitarfélaga allan kostnað við Upplýsingamiðstöð ferða- mála sem er skilgreind sem lands- hlutamiðstöð og opin allt árið. Í dag sinna markaðsstofur rekstri upplýsingamiðstöðva á fjórum stöðum; á Austurlandi, Reykjanesi, Vesturlandi og á höf- uðborgarsvæðinu. Viðræður eru í gangi milli Akureyrarbæjar og Markaðsstofu Norðurlands um þetta fyrirkomulag en ljóst er að það verður ekki í ár en ekki er ólíklegt að það verði 2010. Eftir standa þá Suðurland og Vestfirðir og hefur Ísafjarðarbær sett fram sínar áherslur varðandi slíka sameiningu. Þá má geta þess að Vesturbyggð hefur velt upp möguleika á að hætta framlögum til Markaðsstofu þó ekki hafi verið tekin formleg ákvörðun um slíkt á þeim bænum enda er í gildi áætlun fyrir árið 2009 sem samþykkt var á fjórðungsþingi. Ferðamálastofa undirbýr nú endurskoðun málefna upplýs- ingamiðstöðva og undirbúning vegna samninga fyrir árið 2010. Því mun verða skipaður starfs- hópur til að endurskoða málefni og rekstrarforsendur upplýsinga- miðstöðva. Vegna endurskoðun- arinnar verður öllum núgildandi samningum milli Ferðamálastofu og viðkomandi rekstraraðila upp- lýsingamiðstöðva sagt upp í haust. „Mikilvægt er að halda þessu máli í umræðunni og tryggja fjármagn til landshlutamiðstöðva inn á fjárlögum“, segir í bréfi bæj- arstjóra. – thelma@bb.is Hagræðing í sameiningu Mark- aðsstofu og upplýsingastöðvar Markaðsstofa Vestfjarða og upplýsingamiðstöðin í Ísafjarðarbæ eru til húsa á Ísafirði.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.