Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.05.2009, Blaðsíða 13

Bæjarins besta - 21.05.2009, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2009 13 Sjö hundruð tonnum af þorski var slátrað úr eldiskvíum Hraðfrystihússins Gunnvarar hf., í Hnífs- dal frá síðasta hausti og fram að páskum í ár. Er það mun meiri afli en á síðustu vertíðum, en 500-600 tonnum hefur verið slátrað að meðaltali á hverri vertíð. Eldið telst enn vera á tilraunastigi, hvort heldur er rætt um áframeldi á veiddum smáþorski eða aleldi úr klaki. Kristján Jóakimsson, framkvæmdastjóri vinnslu og markaðsmála hjá HG, segir blikur á lofti, verð hafi lækkað um allt að helming í ákveðnum flokkum og það komi illa við unga grein sem verið sé að byggja upp. Kristján óttast að ákveði stjórnvöld að innkalla kvótann, muni það fyrst og fremst bitna á þróunarverkefnum eins og þorskeldi. Það verði það fyrsta sem fyrirtækin skeri af. – birgir@bb.is Fyrningarleiðin ógnar fiskeldi Flestir nefndu Vestfirði sem mest spennandi svæðið til að ferðast til í könnun Ferðamála- stofu um ferðaáform Íslendinga innanlands. Tæplega helmingur svarenda nefndi Vestfirði en Suð- urland og Norðurland eystra komu þar nokkuð á eftir. Sam- kvæmt könnuninni ætla níu af hverjum tíu Íslendingum að ferð- ast innanlands í sumar sem er nokkuð hærra hlutfall en fyrri kannanir Ferðamálastofu hafa sýnt. Rúmlega 60% ætla ein- göngu að ferðast innanlands, tæplega helmingur ætlar að eyða fleiri gistinóttum á ferðalögum innanlands í sumar en á síðasta ári og tveir þriðju ætla að fara að minnsta kosti þrjár ferðir. Niðurstöður könnunarinnar benda til að flest ferðalög munu eiga sér stað seinni hlutann í júlí en þá ætla þrír af hverjum fimm landsmanna að ferðast. Helm- ingur ætlar hins vegar að ferðast fyrri partinn í júlí eða ágúst, en fjölmargir þó á öðrum tímabilum. Þrír af hverjum fimm ætla að gista í tjaldi, fellihýsi eða húsbíl, tveir af hverjum fimm hjá vinum og ættingjum og þriðjungur í sumarhúsi í einkaeigu eða orlofs- húsi félagasamtaka. Suðurland og Norðurland verða fjölsóttustu landshlutarnir, samkvæmt könn- uninni og sú afþreying sem lands- menn eru líklegastir að greiða fyrir er sund, jarðböð, veiði, söfn og sýningar. Fjölmargir þættir hafa áhrif á ákvarðanatöku þegar ferðalög lands- manna eru annars vegar, svo sem fjölskylda og vinir, efnahag- ur, veðrið, við- burðir og áhugi eða tengsl við stað. Nátt- úran, veður- farið og per- s ó n u l e g tengsl eru hins vegar þeir þættir sem einkum hafa áhrif við val á ákvörðunarstað. Það sem stendur einkum í vegi fyrir að landsmenn ferðist meira innanlands er að þeim finnst það of dýrt (41%) eða þeir geta það ekki vegna vinnunnar (35%). Um 20% nefna veðrið og svipað hlutafall að þeir hafi ekki tíma. Könnunin var unnin sem net- og símakönnun 20.-29. apríl og var aðferðafræðinni skipt eftir aldurshópum. Spurningar fyrir aldurshópinn 18-67 ára voru lagðar fyrir í spurningavagni MMR og var svarað á Inter- netinu. Könnunin náði til 1400 manna úrtaks úr þjóðskrá og var svarhlutfall 60,9%. – thelma@bb.is Vestfirðir mest spennandi Vigur er ein af náttúruperlum Vestfjarða sem dregur til sín ferðamenn.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.