Bæjarins besta - 21.05.2009, Side 18
18 FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2009
stíllLífs
Apar og menn
Utan úr heimi
Makake-api horfir úr klefa sínum í apafangelsi í borginni
Qimen í Anhui-héraði í Kína. Í þessu fangelsi eru um 700
apar, sem raunar hafa ekki brotið
neitt af sér, fremur en fangarnir í
Guantanamo margir hverjir. Þeir
eru einfaldlega tilraunadýr fyrir
læknisfræðilegar rannsóknir og væru eflaust tilbúnir að játa á
sig hvað sem væri ef þeir gætu talað. Makake-apar eru af ætt
markatta og búsettir nær eingöngu í Asíu. Einhverjir hafa þó
verið fluttir í sambærileg fangelsi annars staðar í heiminum
líkt og tíðkast hefur með Guantanamo-fangana.
Tómstundagaman
Tómstundagaman fólks og áhugamál geta verið með ýmsum
hætti. Sumt getur „venjulegu“ fólki fundist vera hrein og klár
klikkun. Jim Kotera sem búsettur er í Wisconsin í Bandaríkj-
unum hefur það tómstundagaman og brennandi áhugamál að
vinda band í hnykla. Hann hefur komið sér upp allstórum
hnyklum, að ekki sé meira sagt, og hér heldur hann á einum en
stendur fyrir framan þann allra stærsta. Og nú er bara að taka
fram prjónana.
Púttað í Andesfjöllum
Konur af Aymara-þjóðflokknum leika golf á velli sem er í
kringum 3.300 metra hæð yfir sjávarmáli sunnan við La Paz,
höfuðborg Bólivíu í Andesfjöllum í Suður-Ameríku. Til saman-
burðar er Hvannadalshnjúkur, hæsti tindur Íslands, aðeins lið-
lega 2.100 metrar á hæð. Ekki er vitað um golfvöll sem liggur
hærra en þessi. Í þunna loftinu sem er í svona mikilli hæð má
búast við mikilli högglengd hjá kylfingunum – nema þá að
indíánapilsin sem konurnar klæðast þvælist kannski fyrir.
Klæðnaður sem þessi hefur ekki sést hjá golfleikurum í Tungu-
dal við Ísafjörð, svo vitað sé. A.m.k. ekki enn sem komið er.
Líður á köflum
eins og rokkstjörnu
Ísfirska fegurðardísin Hafdís
Hrönn Hafsteinsdóttir er meðal
þátttakenda í keppninni Ungfrú
Ísland sem fer fram annað kvöld.
Hún sigraði í símakosningu í feg-
urðarsamkeppninni Ungfrú Reyk-
javík í mars en dómnefndin kaus
hins vegar pólska fiðluleikarann
Magdalenu Dubik til að hampa
titlinum. Hafdís Hrönn er 18 ára
og stundar nám við Fjölbrauta-
skólann í Ármúla. Hún flutti frá
Ísafirði fimm ára að aldri með
móður sinni, Lindu Sigurbjörgu
Hilmisdóttur, en faðir hennar er
Hafsteinn Sverrisson sem býr enn
fyrir vestan.
Blaðamaður hafði samband
við Hafdísi Hrönn þegar vika
var í keppnina og spurði hvernig
gengi með undirbúninginn.
„Það gengur mjög vel. Þarna
eru saman komnar mjög skemmti-
legar stelpur frá öðrum lands-
hlutum og við hlökkum allar
mjög til. Maður er á fullu að
púsla öllu saman og það er gaman
að gera þetta allt aftur. Ég er
komin með kjól og skartið er frá
Dýrfinnu Torfadóttur.“
– Ertu alveg á fullu að æfa
fyrir stóra daginn?
„Við erum búnar að vera á
æfingum núna á nánast hverjum
degi að æfa rútínuna svo að allar
séu með á nótunum fyrir stóra
kvöldið. Svo höfum við verið í
myndatökum og að sinna góðgerða-
starfsemi og þetta er allt rosalega
gaman.“
– Er þetta mikið meiri pressa
núna en var í Ungfrú Reykjavík?
„Nei, ekki svo. Þetta er mjög
svipað og seinast, en það er meira
stress núna jú, en það er bara
spennan og svo náttúrlega er þetta
miklu stærri keppni! En það er
bara áskorun út af fyrir sig.“
– Hvernig takið þið stúlkurnar
öllu þessu umtali um nýju regl-
urnar í keppninni?
„Við erum bara jákvæðar og
opnar fyrir þessu öllu saman og
lítum á þetta sem skemmtilega
reynslu. Við erum allar þarna
með sama markmiðið og bara til
að vera með og fá reynsluna.“
– Hvernig leggst stóra kvöldið
í þig?
„Ég bíð eftir því með hnút í
maganum af spennu! Ég hlakka
svo til og þetta verður ennþá
skemmtilegra núna af því maður
veit svona nokkurn veginn hvern-
ig þetta er og hefur gert þetta
áður. Þá nær maður að njóta þess
mikið betur að vera á sviðinu,
ekki í svona stresskasti eins og
seinast. En það er mikil tilhlökk-
un. Það er kominn mikill fiðring-
ur í magann og alveg niður í tær.
Ég hef aldrei upplifað neitt sem
jafnast á við þessa reynslu og
þekkingin sem maður fær er al-
veg frábær. Manni líður á köflum
eins og rokkstjörnu í þessum
myndatökum og þáttum og
svona. Þetta er bara æðislegt, það
er varla hægt að lýsa því með
orðum.“
Bæjarins besta óskar Hafdísi
Hrönn góðs gengis. Þess má geta
að keppnin verður sýnd á Skjá
einum í beinni útsendingu sem
hefst kl. 22. Ætla má að margir
Ísfirðingar muni horfa á keppnina
og styðja sína stúlku heima í stofu.
Hafdís Hrönn baksviðs á keppninni Ungfrú Ísland.