Bæjarins besta - 21.05.2009, Page 19
FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2009 19
Sumarsalat og hafra-
grautur meðhjálparans
„Ég tók áskorun Valdimars
ekki endilega vegna þess að ég
sé svo mikill matgæðingur heldur
fremur vegna þess að ég elda góð-
an mömmumat (er mér sagt) og
luma á vinsælum og þrautreynd-
um uppskriftum. Svo finnst mér
góður matur góður“, segir Guð-
rún Edda Gunnarsdóttir.
Sumarsalatið mitt
Eftirfarandi grænmeti er skorið
meðalstóra bita og blandað sam-
an í stóra skál ásamt einni dós af
niðursoðnum maís. Þessi upp-
skrift dugar fyrir ca 6 manns.
1 stór rauð paprika
½ gúrka
4 tómatar
Slatti af kínakáli
Smávegis af graslauk
1 dós maís - síið vökvann frá
ca 1 kg rækjur þýddar og
bornar fram í sér skál
Sósan:
2 msk majónes
1 msk karrý
1 msk hvítlauksduft
5 msk tómatpuré
1 msk sykur
Þessu er hrært saman og saman
við er hrært 1 dós af sýrðum
rjóma og 1-2 pokum af síaðri
súrmjólk eða 1-2 dl sýrðum
rjóma ( 5% dugar).(Síuð súr-
mjólk:kaffipoki settur í kaffi-
trekt, súrmjólk hellt í og látið sí-
ast í ca 4-5 klst eða yfir nótt í
ísskáp).
Sælkerinn
Gott er að láta sósuna jafna sig
í ísskáp í nokkrar klst. eða yfir
nótt. Borðað með smábrauðum.
Hjónasæla eða bara sæla –
ómissandi á hverju heimili og
góð allan hringinn! Alltaf gott
að eiga sælu í bauk!
11-12 dl haframjöl
2 dl hveitiklíð
6 dl hveiti
3 dl sykur
1 msk natrón
Allt sett í stóra skál og blandað
saman.
4 dl brætt smjörlíki
1 - 2 dl heitt vatn
2-3 tsk vanilludropar
Látið út í og öllu jafnað saman
e.t.v. þarf smá vatn til viðbótar.
3/4 af deiginu látnir í smurða
ofnskúffu. Rabarbarasultu smurt
yfir. Afgangurinn af deiginu
mulinn yfir. Sesamfræi dreift yfir
deigið í ofnskúffunni. Bakað við
175 - 200o C í u.þ.b. 40 - 45
mínútur.
Vöfflurnar hennar
ömmu minnar
7 dl hveiti
2 dl sykur
3 tsk lyftiduft — þurrefnum
blandað saman
250 g smjörlíki – brætt (etv
má nota ÍSÍÓ olíu = hollari)
svo eru settir
3-4 dl mjólk/léttmjólk saman
við volgt smjörlíkið
2-3 tsk vanilludropar settir í
þessa blöndu
3 egg þeytt saman í sér skál
Þá er þurrefnum og blautefnum
blandað saman og mjólk bætt
við eftir þörfum.
Ég hef bætt ca 2 dl af hafra-
mjöli við þessa uppskrift. Þá er
deigið látið standa í ca 2 klst til
að láta haframjölið bólgna og þá
voru 200 g af smjörlíki notuð og
etv þynnt með mjólk. Þessar
vöfflur þykja góðar bæði handa
svöngum strákum og á sauð-
burði!
Að endingu vil ég koma með
uppskrift af hafragraut sem með-
hjálparinn minn hann Davíð H.
Kristjánsson á Þingeyri kenndi
mér. Ekki spillir að geta þess að
hann ræktar úrvalsgulrófur og
einnig gulrætur og kartöflur og
þarna fara áhugamál okkar saman
eins og á fleiri sviðum. Ég lofa
því að þessi grautur kemur á óvart
en smakkast mér afar vel enda er
ég rófusoðsvinur og drekk soðið
oftast þegar ég sýð rófur og alltaf
þegar slátur eða svið eru snædd.
Hafragrautur meðhjálparans
Haframjöl + rófusoð
Magnið af haframjöli og rófu-
soði ræðst af því fyrir hve marga
er eldað. Soðið eins og venju-
legur hafragrautur. Gott er að
hafa smávegis af rófubitum út í.
Ég vil svo að endingu skora á
Katrínu Gunnarsdóttur eigin-
konu Davíðs og úrvalskokk að
koma með sínar uppskriftir í
þennan dálk.
Sælkerar vikunnar eru Guðrún Edda
Gunnarsdóttir og Einar Sigurbjörnsson á Þingeyri.
Kátína og gleði ríkti á vorhátíð Foreldrafélags Grunnskólans
á Ísafirði á laugardag. Börn og fullorðnir áttu þar góðan dag
saman en meðal þess sem boðið var upp á var andlitsmálun,
risafótbolti og kastspjald. Þá mátti sjá krakka spreyta sig á því
að ganga á stultum og fara í heljarstökk á trampólíni. Einnig
var farið í snú-snú og litríkar myndir teiknaðar með krít á
skólastéttina. 10. bekkingar stóðu fyrir veitingasölu til styrkar
skólaferðalags þeirra en boðið var upp á pylsur steiktar á
Muurikka pönnu. Var það mál manna að hátíðin hefði verið vel
heppnuð.
Vel heppnuð
vorhátíð hjá GÍ
Ungir sem aldnir skemmtu sér vel á vorhátíð Foreldrafélags GÍ.
Krakkarnir gátu látið mála andlit sín.