Bæjarins besta


Bæjarins besta - 28.01.2010, Síða 10

Bæjarins besta - 28.01.2010, Síða 10
10 FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 2010 Rafvirki Óskum eftir að ráða rafvirkja. Sveinspróf æskilegt. Upplýsingar gefur Sævar í síma 456 3092 og 893 8865. Starfsferilskrá sendist á pollinn@pollinn.is. Borea Adventures og Melrakkasetr- ið ganga í umhverfisverndarsamtök Ferðaþjónustufyrirtækið Borea Adventures á Ísafirði og Mel- rakkasetur Íslands í Súðavík hafa fyrst íslenskra fyrirtækja gerst meðlimir í umhverfisverndar- samtökunum 1% fot the Planet. Borea Advetures, sem býður uppá ævintýrasiglingar um norð- urhöf á seglskútu og Melrakka- setur Íslands, sem er fræðasetur helgað refnum, hafa ákveðið aukið samstarf. „Samstarf þess- ara tveggja aðila á vonandi eftir að aukast í framtíðinni en dagana 19.-24. júlí verður í fyrsta skipti boðið upp á sérstaka refaskoð- unar-og rannsóknarferð um Jök- ulfirði og Hornstrandir þar sem leiðsögumaður verður Ester Rut Unnsteinsdóttir, refasérfræðing- ur á Melrakkasetrinu. Íslenski refurinn er vannýtt auðlind í ís- lenskri ferðaþjónustu og hefur mikið aðdráttarafl, sérstaklega hjá erlendum náttúruunnendum þar sem mjög erfitt er að nálgast heimsskautarefinn í löndunum í kringum okkur.“ segir í tilkynn- ingu frá Borea Adentures. Samtökin 1% for the Planet voru stofnuð af tveimur Bandaríkja- mönnum árið 2001 og eru sam- starfsvettvangur fyrirtækja sem lofa að láta minnst eitt prósent af ársveltu sinni renna til raunveru- legra umhverfisverkefna. Frá því að samtökin voru stofnuð hafa 42 milljónir bandaríkjadala runn- ið til umhverfismála, en yfir 3 þúsund fyrirtæki og samtök eru í þessum félagsskap. Fyrirtækið Borea Adventures hóf rekstur árið 2006 og býður upp á fjölbreytt úrval ævintýra- ferða um norðanverða Vestfirði, austurströnd Grænlands og Jan Mayen á 60 feta seglskútu í eigu fyrirtækisins. Eins eru í boði styttri sem lengri kajak-og gönguferðir um Hornstrandir og Jökulfirði. Fyrirtækið starfar allan ársins hring. Melrakkasetrið er fræðasetur, stofnað árið 2007 og er helgað íslenska refnum sem er eina upp- runalega landspendýrið á Íslandi. Boðið verður uppá sérstaka refaskoðunar- og rannsóknarferð í sumar. Ljósm: Rúnar Óli. Markmið setursins eru að stuðla að og taka þátt í rannsóknum á líffræði tegundarinnar, þróun sjálfbærrar náttúrulífsferða- mennsku og safna saman á einn stað allri þekkingu, efni og hlutum sem tengjast melrakkan- um í fortíð og nútíð. – kristjan@bb.is Úttekt gerð á aðgengi hreyfihamlaðra Svæðisskrifstofa málefna fatl- aðra á Vestfjörðum og Auður Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur á Ísafirði hafa undirritað sam- komulag um úttekt á aðgengis- málum fyrir hreyfihamlaða og aðra sem búa við skerta hreyfi- getu í Ísafjarðarbæ, Bolungarvík, Súðavík, Hólmavík, Drangsnesi og á Reykhólum. Markmið verk- efnisins er að koma á framfæri ábendingum til byggingarnefnda um úrbætur á sviði ferilmála. Fram kemur í samningnum að mikilvægt sé að benda verslunar og þjónustuveitendum á ábyrgð þeirra, sem er að gefa öllum tæki- færi á að nýta sér þjónustu þeirra. Einnig á að meta hvort að það sé ákjósanlegt fyrir fatlaða ferða- menn að heimsækja Vestfirði. „Við ætlum að kanna aðgengi hreyfihamlaðra að verslunum og stofnunum hér í bænum. Einnig verður að athuga hvort að hreyfi- hamlaðir og aðrir sem búa við skerta hreyfigetu geti sótt Vest- firði heim og hvort að aðgengi að gistihúsum, samkomuhúsum og tónleikum verði til fyrirmynd- ar,“ segir Sóley Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Svæðisskrif- stofu málefna fatlaðra á Vest- fjörðum. Samkvæmt samningi hefur Auður heimild til að ákveða hvaða leið hún velur til að koma upplýsingum á framfæri, með myndbandi, ljósmyndum, smá- sögu og eða með formlegri skýr- slu. Að verki loknu verða niður- stöður kynntar opinberlega. Verklok eru samkvæmt samningi 1. júní 2010. Einnig var gert sam- komulag við Ástþór Skúlason bónda á Melanesi að gera úttekt á aðgengismálum fyrir hreyfi- hamlaða og aðra sem lifa við skerta hreyfigetu í Vesturbyggð og á Tálknafirði.– kristjan@bb.is Melrakkasetur Íslands og Nátt- úrustofa Vestfjarða hafa gert með sér samning um verkefnið „Vest- firskir grasagarðar“. Verkefnið gengur út á að fjölga sýningar- stöðum grasagarðs sem þegar hefur verið stofnaður í Bolungar- vík, meðal annars að setja upp einn slíkan við Melrakkasetrið en áhugi er fyrir því að íslenskar plöntur séu til sýningar á lóðinni umhverfis setrið. Megin áherslur samstarfsins eru að setrið og stofan vinni saman að plöntu- söfnun og upplýsingaöflun auk þess að fjölga sýningarsvæðum plantna. „Sérstakt verkefni Grasagarð- anna verður að setja upp sýning- arsvæði við Melrakkasetur Ís- lands í Súðavík. Áætlað er að garðurinn í kringum húsið verði skrýddur íslenskum plöntum með skipulögðum hætti. Beðin verði hlaðin úr grjóti af svæðinu, sem þegar hefur verið safnað á staðinn. Grasagarðurinn mun væntanlega vekja áhuga ferða- manna sem koma á svæðið og verða vitundarvakning um ís- lenska flóru,“ segir á vef Mel- rakkasetursins. Verkefnisstjóri er Kristjana Einarsdóttir. Vestfirskir grasagarðar byggðir upp Auður Ólafsdóttir og Sóley Guðmundsdóttir við undirritunina.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.