Bæjarins besta - 28.01.2010, Qupperneq 11
FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 2010 11
„Alltaf gaman á blóti“
Þorrablótið í Bolungarvík
var haldið í 65. sinn á laug-
ardag en það hefur verið
haldið nær óslitið frá árinu
1944. „Blótið heppnaðist
rosalega vel, mæting var góð
og það var mikið stuð og
fjör, enda er alltaf gaman á
blótunum,“ segir Ingibjörg
Sigurðardóttir í skemmti-
nefnd. Efnt er til blóts í Bol-
ungarvík á fyrsta laugar-
degi í þorra ár hvert og
bjóða þá bolvískar konur
bónda sínum til slíkrar
skemmtunar. Þorrablótið er
ætlað hjónum, sambýlisfólki,
ekkjum og ekklum í Bolungar-
vík. Öllu var tjaldað til að gera
kvöldið sem veglegast og stigu
skemmtinefndarkonur á stokk
í hinum og þessum hlutverk-
um. „Litið var yfir farinn veg
hjá bæjarbúum í skemmtiatr-
iðunum,“ segir Ingibjörg.
Blótsgestir mæta í sínu fín-
asta pússi, konur í upphlut
eða peysufötum og karlmenn í
hátíðarbúningi eða dökkum
jakkafötum með hálstau, en
líklegt er að vandfundinn sé
sá staður á Íslandi þar sem er
jafn hátt hlutfall íbúa sem
eiga þjóðbúning en í Bolung-
arvík. Blótsgestir snæddu
hefðbundinn þorramatur, sem
borinn var fram í trogum líkt
og forðum. Að loknu borðhaldi
var dansað fram á rauða nótt
undir tónlist dúettsins Halli
og Þórunn. Þorrablótið fór
fram í íþróttahúsinu Árbæ
líkt og í fyrra, vegna endur-
bóta á Félagsheimili Bolung-
arvíkur, en blótið hefur verið
haldið þar frá árinu 1953.
Meðfylgjandi myndir voru
teknar á þorrablótinu.