Bæjarins besta


Bæjarins besta - 28.01.2010, Qupperneq 14

Bæjarins besta - 28.01.2010, Qupperneq 14
14 FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 2010 Endursmíð- aði Titanic Úlfar Önundarson á Flateyri hef- ur undanfarin ár dundað við að smíða skipslíkön. Nú hefur hann smíðað eftirlíkan af hinu sögu- fræga skipi Titanic í hlutföllun- um einn á móti þúsund. „Titanic var 269,1 meter og þetta er 269,1 sentimeter. Ég er búinn að vera um ár að smíða þetta skip.“ – Af hverju varð Titanic fyrir valinu? „Jón Svanberg vinur minn sagði við mig að ég yrði að vera á undan Finnanum sem ætlaði að fara reisa Titanic í fullri stærð lengst inni í landi sem hótel. Hann skoraði þar með á mig. Ég hugs- aði þetta í nokkra daga og ákvað svo að skella mér á það. Ef maður tapar sér ekki í smáatriðunum þá getur svona smíð tekið um ár til eitt og hálft ár.“ – Úlfar stefnir að því að Titanic verði sjósett í lóninu við Einars- bakka í byrjun júní. „Það verður ábyggilega sjósett með viðhöfn því það er ekki oft sem Titanic er sjósett.“ – Fleyið mun síðan sigla ásamt öðrum smáskipum sem Úlfar hefur smíðað í gegnum tíðina en þar má nefna Gylli ÍS 261 og hafnsögubátinn Mugga. „Ætli skipin verði ekki um 12- 13 næsta sumar. Lónið ber um 20 skip en það fer svo ofboðs- legur tími í að smíða þau að það er spurning hvort maður þurfi ekki að slá aðeins af. Annars er ég búinn að mana einn félaga minn til þess að smíða Fagranesið og það er langt komið. Einnig er um þessar mundir verið að smíða U-kafbát. Hann er smíðaður eftir teikningum U-571 sem er með frægari kafbátum í sögunni og olli miklum usla í seinni heims- styrjöldinni. Þetta er sama gerð og sökkti Goðafossi en það var reyndar U-300 bátur. Það var gerð kvikmynd um U-571 bátinn fyrir nokkru eins og margir kann- ast eflaust við. Það er Grétar á gröfunni (Grétar Arnbergsson innskot blaðamanns) sem er að smíða hann.“ – Þannig að það eru fleiri en þú í skipasmíðinni? „Já ég er smitandi,” segir Úlfar og hlær. „Enda er gaman að smíða báta.“ – Bátarnir sigla svo um Sól- bakkalónið á sumrin heima- mönnum og ferðafólki sem á leið um svæðið til yndisauka. Úlfar segir þetta vekja gríðarlega at- hygli og aðspurður hvort fram- takið geti dreifst til nágranna- byggðanna segir hann það liggja vel við. „Það eru fullt af flottum stöð- um hér fyrir vestan þar sem hægt væri að setja skip á flot. Til dæmis væri mjög flott að vera með eitt stórt skip á Grænagarðsdjúpinu á Ísafirði. Svo væri tjörnin á Suðureyri alveg kjörin fyrir þetta. En ég held að menn þurfi að vera svolítið bilaðir til að vera í þessu,“ segir Úlfar glottandi. „Það fer svo ógurlegur tími í þetta. En á móti kemur að þetta er eina skipasmíðastöðin í heim- inum sem getur framleitt skip á lager.“ – thelma@bb.is Nokkur skipalíkönin sem Úlfar hefur smíðað á undanförnum árum.

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.