Bæjarins besta - 28.01.2010, Blaðsíða 15
FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 2010 15
Sælkeri vikunnar er Randý Guðmundsdóttir á Ísafirði.Sælkerinn
Mexíkóskar kjötbollur með osti
Sælkeri vikunnar býður upp á
tvo rétti. Sá fyrri eru ljúffengar
mexíkóskar kjötbollur með osti
sem Randí mælir með að bornar
séu fram með salati, nachosflög-
um, guaqamole og sýrðum rjóma.
Seinni rétturinn er Tópaskaka
sem ætti að falla vel í kramið hjá
öllum sælkerum.
Mexíkóskar kjöt-
bollur með osti
Uppskrift ætlað fyrir fjóra
500 g hakk
100 g rifinn mexíkóostur
1 dl brauðrasp
100 g kotasæla
200 g gratínostur
1 bréf taco krydd
1 stk egg
50 g rifinn laukur
5 dl salsasósa
Hrærið vel saman hakkinu,
tacokryddinu, mexíkóostinun,
eggjunum, brauðraspinu, laukn-
um og kotasælunni. Lagið litlar
bollur og setjið í eldfast mót.
Hellið salsasósunni yfir og stráið
yfir gratínostinum bakið í 25-35
mínútur á 180°C.
Tópaskaka
Botn:
4 eggjahvítur
3 dl sykur
100 g rice crispies
Stífþeytið sykur og egg (passa
að eggin séu við stofuhita) bæta
rice crispies við. Næst eru
mótaðir tveir botnar á bökunar-
plötu. Bakið við 100°C í ca 60
mínútur.
2 matskeiðar flórsykur
Tópasinn, rjómi (1 dl) og
flórsykurinn er bræddur við lágan
hita þar til tópasinn hefur alveg
bráðnað, og þessu er hellt ofan á
kökuna. Restin af rjómanum er
þeyttur og settur á milli botnanna.
Ég skora á Sigrúnu Örnu Elv-
arsdóttur á Ísafirði að vera næsti
sælkeri vikunnar.
Fylling:
1/2 lítri rjómi
1-2 pakkar fjólublár tópas
Síða Baldurs Páls í keppninni.
Tekur þátt í alþjóðlegri
sjálfsmyndakeppni
Ísfirski áhugaljósmyndar-
inn Baldur Páll Hólmgeirsson
er meðal þátttakenda í
alþjóðlegri sjálfsmynda-
keppni sem nefnist „The
Power of self“. Verkefninu var
hrint úr vör af nokkrum
listamönnum í New York með
það að markmiði að hjálpa
óuppgötvuðum listamönnum
að hasla sér völl í greininni.
Baldur Páll notast við lista-
mannsnafnið Baldur Pan en
hann hefur verið að fást við
ljósmyndun í um tvö ár. Hann
er sjálfmenntaður í greininni.
Keppnin fer fram á netinu.
Hægt er að gefa hverjum
þátttakanda í keppninni allt
upp í fimm stjörnur. Sá sem
endar með hæst metna síðu
fær mikla umfjöllun í kjöl-
farið. Sérvalin dómnefnd, sem
meðal annars er skipuð
gamanmyndaleikaranum
Steve Buchemi, velur síðan
sigurvegara sem fær vegleg
verðlaun.
– thelma@bb.is
The Loony
The Flush
Cpt. Poppins