Bæjarins besta - 27.05.2010, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2010
Sigurður Pétursson bæjarfull-
trúi á Ísafirði hefur þegið rúmar
tólf milljónir króna í ritlaun frá
Alþýðusambandi Vestfjarða fyrir
að skrifa sögu verkalýðshreyf-
ingarinnar á Vestfjörðum, sem
enn er hvergi nærri lokið. Í des-
ember 2002 samdi Alþýðusam-
band Vestfjarða við Sigurð um
að taka að sér þessa söguritun.
Upphaflega var samningurinn til
þriggja ára en hefur verið fram-
lengdur um ár í senn allt til þessa
dags. „Reiknað var með því að
sagan kæmi út í tveimur bind-
um“, segir Sigurður.
„Fyrra bindið (hugsanlega
fyrsta af þremur) liggur nú fyrir í
handriti. Ritnefndin hefur fylgst
með framvindu verksins og fund-
að með höfundi tvisvar á ári. Þá
hafa ítarlegar skýrslur verið lagð-
ar fram árlega, síðast í október
2009. Því er ekki að leyna, að
verkefnið hefur tekið lengri tíma
en áætlað var í upphafi. Á því
eru tvær skýringar helstar. Í fyrsta
lagi var vinna við skráningu
skjalasafns félaganna miklum
mun meiri en reiknað var með í
fyrstu. Og í öðru lagi hafa önnur
störf, svo sem kennsla, þátttaka í
stjórnmálum og bókaskrif gert
það að verkum að vinna hefur á
tíðum orðið slitrótt og jafnvel
lent í uppstyttum um tíma. Er
það miður og engum um að kenna
nema mér sjálfum, að hafa fleiri
járn í eldinum í einu.“
„Staðan er þannig nú, að fyrir
fjarða á þessu tímabili, sagt frá
atvinnuháttum, félagshreyfing-
um og stjórnmálum og greint frá
örlögum verkalýðsfélaga á Ísa-
firði, Bíldudal, Þingeyri, Hnífs-
dal, Patreksfirði, Súðavík og Bol-
ungarvík á greindu tímabili. Fyrir
liggur auk þess mikil vinna við
söfnun og skráningu myndefnis
frá öllum Vestfjörðum. Það er
því komið að því að velja mynd-
efni og búa þetta bindi undir
prentun, en um prentun og útgáfu
hefur ekki verið samið. Best er
að spá ekki um útgáfu fyrr en
hún er komin á koppinn.“
„Þar sem ég hef haft af því
spurnir að góðhjartað fólk hafi
látið í ljós áhyggjur af fjárstreymi
frá verkalýðshreyfingunni hér
vestra til skjalasafns og sögurit-
unar tel ég rétt að upplýsa um
þær greiðslur allt frá upphafi
verksamnings eða á sjö ára tíma-
bili frá 2003 til 2010. Á síðasta
ári námu mánaðargreiðslur til
mín að meðaltali 263 þúsund
krónum og á fyrstu fjórum mán-
uðum þessa árs 324 þúsund krón-
um (93 tímar á 3.500 kr).“
Sigurður segir að launagreiðsl-
ur til hans frá Alþýðusambandi
Vestfjarða vegna verksins frá
upphafi og til loka síðustu mán-
aðamóta séu samtals kr. 12.386.
449. Þar sé eingöngu um verk-
takagreiðslur að ræða og einungis
greiddar fyrir unna vinnu sam-
kvæmt vinnustundafjölda.
– hlynur@bb.is
liggur í handriti fyrri (eða fyrsti)
hluti verksins, sem nær yfir tíma-
bilið 1880 til 1930. Í þessum hluta
er farið yfir þéttbýlissögu Vest-
Sigurður Pétursson.
Rúmar 12 milljónir í ritlaun á sjö árum
Leikskóla-
starfsmönnum
fer fjölgandi
Starfsfólki á leikskólum á
Vestfjörðum fjölgaði milli
áranna 2008 og 2009. 121
einstaklingur starfaði á leik-
skólum í fjórðungnum árið
2009 en 105 árið áður. Af
þessum 121 einstaklingum
voru 34 leikskólakennarar,
átta með aðra menntum og
58 voru ófaglærðir. Flestir
starfsmanna á leikskólum á
Vestfjörðum á síðasta ári voru
á aldrinum 40-49 ára eða 39
talsins.
Ef litið er á síðustu tíu ára
voru flestir leikskólastarfs-
menn á Vestfjörðum árið
2001, eða 131 talsins. Fæstir
voru þeir árið 2008 eða 105
talsins en þá voru einnig fæst
leikskólabörn í skólum í
fjórðungnum. Þetta kemur
fram í tölum Hagstofunnar.
Ánægja með
stjórnarsetu
hafnarstjórans
Hafnarstjórn Ísafjarðar-
bæjar hefur lýst yfir ánægju
sinni með að Guðmundur M.
Kristjánsson hafnarstjóri Ísa-
fjarðarbæjar hafi verið kjör-
inn í stjórn Cruise Europe
samtakanna á aðalfundi þeirra
í Amsterdam fyrir stuttu. Guð-
mundur er fulltrúi norður-
svæðis í stjórninni, þ.e. Ís-
lands, Noregs og Færeyja,
en hana skipa níu manns.
Cruise Europe eru samtök
105 hafna í Vestur-, Norður-
og Mið-Evrópu sem vinna
saman að markaðssetningu
fyrir skemmtiferðaskip.
Af þeim 105 höfnum sem
mynda samtökin eru fjórar á
Íslandi.
Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður hlaut Virðisaukann, frum-
kvöðlaverðlaun atvinnumálanefndar Ísafjarðarbæjar, í ár. Verð-
launin, sem afhent voru í Turnhúsinu í Neðstakaupstað á föstudag,
eru ætluð sem hvatning til handa þeim sem sýna frumkvæði í mál-
um er varða bæjarfélagið og samborgarana. Við veitingu þeirra er
einkum tekið mið af framlagi við að auka fjölbreytni í atvinnu,
menntun eða afþreyingu, að auka sýnileika bæjarfélagsins á
landsvísu, sérstaks árangurs, framtaks á sviði þróunar vöru,
þjónustu eða markaðssetningar. „Það er alltaf gaman fyrir okkur
sem stöndum að þessu að fá klapp á bakið,“ segir Örn Elías Guð-
mundsson, betur þekktur sem Mugison, einn af aðstandendum
hátíðarinnar.
„Það er niðurstaða atvinnumálanefndar að með hliðsjón af
þessu sé rokkhátíðin Aldrei fór ég Suður vel að verðlaununum
komin. Hátíðin hefur verið haldin í páskavikunni frá árinu 2004,
en feðgarnir Örn Elías Guðmundsson (Mugison) og Guðmundur
M.Kristjánsson (Muggi - PapaMug) voru upphafsmenn að hátíð-
inni. Vinsældir og hróður hátíðarinnar vex með ári hverju, hún
laðar að fjölda listamanna, blaðamanna og gesta, innlendra sem
erlendra, enda hefur Aldrei fór ég suður vakið athygli langt út
fyrir landsteinana og sækir fjöldi manns Ísafjörð heim til að kom-
ast á hátíðina og tónlistarmenn sem vilja koma fram á hátíðinni,
án þess að þiggja greiðslu fyrir. Hátíðin er orðin fastur punktur í
páskavikunni/Skíðavikunni, hátíð í hátíðinni og spannar dagskrá-
in nú yfir 2 daga, þar sem hápunkturinn hefur jafnan verið með
stóru atriði skipað heimamönnum, en skipulagið er í höndum
heimamanna og ýmissa velunnara. Það fjölgar því verulega í Ísa-
fjarðarbæ vegna stöðugrar aukningar í aðsókn á rokk- og alþýðu-
hátíðina Aldrei fór ég suður, sem eykur þar með umsvif í sveitarfé-
laginu“, segir í rökstuðningi atvinnumálanefndar.
Virðisaukinn var fyrst afhentur árið 2002 en Þeir sem fengið
hafa verðlaunin eru Hraðfrystihúsið – Gunnvör, 3X Technology,
Sveinbjörn Jónsson, Glitnir, Klofningur og Háskólasetur Vest-
fjarða. – thelma@bb.is
Aldrei fór ég suður
hlaut Virðisaukann
Gísli Halldór Halldórsson forseti bæjarstjórnar og fulltrúar Aldrei fór ég suður þeir Örn Elías
Guðmundsson, Hálfdán Bjarki Hálfdánarson og Rúnar Óli Karlsson við afhendingu verðlaunanna.