Bæjarins besta


Bæjarins besta - 27.05.2010, Qupperneq 7

Bæjarins besta - 27.05.2010, Qupperneq 7
FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2010 7 á ritstjórn bb.is. Mjög verður að draga í efa að Sigurður Pétursson sé viðriðinn skrifin í Skutli á föstudagsmorg- un eða hafi vitað af þeim, svo fjarri sem þau eru hinu rétta. Hitt væri slæmt ef hann hefur gegn betri vitund lagt blessun sína yfir þessi vinnubrögð. Góður oddviti hefur stjórn á sinni hjörð! En segja má að steininn hafi tekið úr á Skutulsvefnum með innleggi frá Atla Þór Fanndal kosningastjóra Í-listans á laugar- dagskvöld. Þar virðist vera að verki bitur maður í hefndarhug. Atli þessi var stuttan tíma til reynslu sem blaðamaður á Bæj- arins besta en réð því miður ekki við starfið og var þess vegna látinn hætta. Atli blandar fyrirtækinu Pixel í málið á sinn smekklega hátt, ef svo má segja. Þess má geta, að við eigum mikið og gott samstarf við Pixel eins og menn þar á bæ geta staðfest. Atli segir að Bæjarins besta sé prentað fyrir sunnan í Odda. Að vísu er það missögn að blaðið sé prentað í Odda en það er auka- atriði. Bæjarins besta er vissulega prentað í Reykjavík og ástæðan er einföld. Svo viðamikil litprent- un í svo stóru upplagi er einfald- lega ódýrari í fjögurra lita prent- vél en í prentsmiðjunni á Ísafirði. Þegar byrjað var að láta prenta Bæjarins besta syðra fyrir bráð- um hálfu öðru ári urðu þau tíma- mót í sögu blaðsins, að frá þeim tíma hefur það allt verið litprent- að en ekki fáeinar síður eins og áður var. Allt öðru máli gegnir um smærri prentverkefni af nánast öllu tagi, sem prentsmiðjan á Ísa- firði annast eftir sem áður. En segja má að þetta hafi verið smámunirnir hjá Atla Þór Fann- dal kosningastjóra Í-listans í inn- leggi hans. Orðbragðið, svívirð- ingarnar, dylgjurnar og lygarnar hjá honum eru að öðru leyti með þeim hætti, að ástæða væri til að höfða meiðyrðamál á hendur honum. Fyrir þá sem ekki hafa séð þessi skrif kosningastjóra Í-lista leyfi ég mér að birta þau hér til fróðleiks: Bæjarins Besta og H-prent ( bb hefur nýlega verið fært úr H- prent yfir í Gúttó ehf. ) er prentað fyrir sunnan í Odda. Það fer í prentun á mánudögum eða þriðju- dögum ( man ekki hvort það var ) um hádegi. Þeir H-prent menn halda því alltaf á lofti að þeir séu með prentsmiðju hér sem er argasti fyrirsláttur þar sem öll tæki þarna eru svo úr sér gengin að nánast ekkert er prentað þarna. Prentsalurinn er svo lé- legur orðinn að fjölritunarstofa gæti slegið þessu út. Svo hjóla þessir menn í fólk sem prentar hjá PIXEL fyrir að prenta ekki í heimabyggð, þrátt fyrir það að Pixel sé hérna með starfsstöð. BB er meinsemd á samfélaginu hérna, gangandi um hótandi eigendum fyrirtækja sem ekki auglýsa nóg hjá þeim nú eða voga sér að auglýsa t.d. í Al- manakinu sem kom út einu sinni í viku um stutta stund. Það var sorglegt að sjá Ritstjóra BB ganga á milli fólks húðskamm- andi það fyrir að auglýsa hjá þeim aðila en ekki hjá einokunar- miðlinum BB. Svo langt hefur þetta gengið að embættismenn bæjarins fá skammir fyrir að auglýsa í lands- fjölmiðlum. Þó er það lögbundin skylda bæjarins að gera svo. Segja má að hér sé vel að verki staðið hjá Atla Þór Fanndal kosningastjóra að koma svo miklu af svívirðingum, rang- færslum og hreinum lygum í svo stuttan texta! Það er svo einn kapítulinn enn, að blaðamaður Bæjarins besta og bb.is reyndi á sínum tíma allt sem hann mögulega gat til að fá frambjóðendur Í-listans til að svara spurningum og verða með mynd á forsíðu Bæjarins besta, í samræmi við það sem gert var varðandi D-listann. Á hverju strandaði? Jú, Í-listinn gat með engu móti komið sér saman um hvernig það yrði gert og hverjir myndu eiga þar hlut að máli. Sannarlega strandaði það ekki á viðleitni Bæjarins besta að svo mætti verða. Ekki hef ég spurnir af því að Bæjarins beztu við Tryggvagötu í Reykjavík hafi fyrir misskilning lent í orrahríð kosningabarátt- unnar syðra, a.m.k. ekki enn sem komið er. En hver veit hvað verð- ur á lokasprettinum? Gleðilegar kosningar! Sigurjón J. Sigurðsson, ritstjóri Bæjarins besta og bb.is. Torfhildur Torfadóttir á Ísa- firði, elsti núlifandi Íslending- urinn, varð 106 ára á mánudag. Hún er fædd í Asparvík í Strandasýslu, yngst ellefu syst- kina, átta alsystkina og þriggja hálfsystkina, og ólst upp í Sel- árdal í Steingrímsfirði. Nokkur systkinanna náðu háum aldri, Ásgeir varð 100 ára, Eymundur 96 ára og Guðbjörg 91 árs. Eftir fermingu var Torfhildur í vinnu- mennsku í Reykhólasveit í Aust- ur-Barðastrandarsýslu en flutti síðan til Ísafjarðar og giftist Ein- ari Jóelssyni sjómanni. Einar lést árið 1981. Þau eign- uðust fimm börn og eru þrjú þeirra á lífi, Torfi, Sigurbjörn 0g Kristín. Fimmtán konur hafa náð þessum aldri, þar af tvær fæddar á Vestfjörðum, Kristín P. Sveins- dóttir og María Andrésdóttir. – bb@bb.is Torfhildur 106 ára Magnús Hauksson og Ragn- heiður Halldórsdóttir, vertar í Tjöruhúsinu í Neðstakaupstað, reikna með að opna veitinga- staðinn fljótlega eftir hvíta- sunnu. „Þetta hefur gengið þannig fyrir sig núna að það er pantað hjá okkur einn og einn dagur og við sinnum því, ég reikna ekki með því að opna formlega fyrr en eftir hvíta- sunnu,“ segir Magnús. Fyrir- komulag á opnun Tjöruhússins verður með svipuðu sniði og undanfarin ár en matargerð Magnúsar hefur víða verið hrósað og hefur staðurinn oft verið nefndur einn af betri fisk- veitingastöðum landsins. „Þetta verður allt með hefð- bundnu sniði en það verður sjálf- sagt einhverjar nýjungar á mat- seðlinum eins og alltaf,“ segir Magnús. Magnús segir að sumarið leggist þokkalega í þau hjón. „Maður veit náttúrulega ekkert hvernig fer með túrismann í sum- ar. Síðan minnumst við þess þeg- ar Evrópumeistaramótið í fót- bolta var haldið síðast að þá var afskaplega rólegt, enda þýðir ekkert að plata karlmenn í sum- arfrí á svoleiðis tímum,“ segir Magnús. „Eftir mótið var eins og flóðgátt hafi opnast, en ég er þá aðallega að tala um íslenskt fjölskyldufólk sem er kannski að ferðast hringinn eða svoleiðis. Það fer ekkert af stað í fríið fyrr en þessu er lokið,“ segir Magn- ús en hann segir erfitt að meta hvort að það séu fleiri Íslend- ingar eða útlendingar sem heimsækja staðinn. Magnús segir að um hásum- arið sé stöðugur straumur af fólki og þannig hafi það verið síðustu ár. „Það var líka vegna þess að hér voru svo fáir mat- sölustaðir í bænum, en núna hefur ræst aðeins úr því og við erum mjög ánægð með það skuli vera komnir fleiri mat- sölustaðir því það má segja að það hafi vantað yfir háanna- tímann til þess að geta boðið fólki upp á sæmilega þjón- ustu,“ segir Magnús Hauksson, vert í Tjöruhúsinu. Reikna með að opna eftir hvítasunnu Tjöruhúsið í Neðstakaupstað. Engir jarðskjálftamælar eru á Snæfellsnesi og á Vestfjörð- um. Á meðfylgjandi mynd, sem sýnir næmni jarðskjálfta- mæla netsins á landinu, er næmnin hæst á rauðu svæðun- um í miðju virka gosbeltinu. Haraldur Sigurðsson, eldfjalla- fræðingur í Stykkishólmi, segir nauðsynlegt að bæta úr þessu. Netið skynji aðeins skjálfta á Vestfjörðum sem eru stærri en 1,5 á Richterskvarða (græna svæðið) og aðeins skjálfta sem eru stærri en 1,0 á Snæfellsnesi (gula svæðið). Næsta mæli við Snæfellsnes er að finna í Húsafelli í Borgar- firði. Haraldur segir að fylla þurfi í þetta gat á mælakerfinu sem og setja þurfi upp mæla, bæði í Ey- steinsdal við Snæfellsjökul og í Ljósufjöll. „Báðar þessar eld- stöðvar geta verið virkar, en við höfum enga hugmynd um skjálftavirkni undir þeim,” segir Haraldur og bætir við að hann hafi lagt til að þarna yrðu settir jarðskjálftamælar en fengið þau svör að fjármagn skorti til verksins. Frá þessu er greint á skessu- horn.is. – kristjan@bb.is Vestfirðir án jarðskjálftamæla

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.