Bæjarins besta - 27.05.2010, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2010
Drög að tillögu að matsáætlun
Vegagerðin auglýsir hér með drög að tillögu
að matsáætlun vegna fyrirhugaðra fram-
kvæmda á Vestfjarðavegi (60) milli Eiðis í
Vattarfirði og Þverár í Kjálkafirði í sveitarfélög-
unum Reykhólahreppi og Vesturbyggð. Nú-
verandi vegur er 24,2 km langur en nýr vegur
verður 19,1 eða 16,1 km langur, háð leiðarvali
í Mjóafirði. Skoðaðar hafa verið tvær leiðir,
veglína A og veglína B í Mjóafirði. Nýlagning
vegna veglínu A er 8,8 km en nýlagning
vegna veglínu B er 8 km.
Markmið framkvæmdarinnar er að bæta
samgöngur á Vestfjörðum.
Drög að tillögu að matsáætlun eru kynnt á
veraldarvefnum, samkvæmt reglugerð 1123/
2005 um mat á umhverfisáhrifum. Tillöguna
er hægt að skoða á eftirfarandi heimasíðu:
www.vegagerdin.is. Almenningur getur gert
athugasemdir við áætlunina og er athuga-
semdafrestur í 2 vikur eða til 7. júní 2010. At-
hugasemdir er hægt að senda með tölvupósti
til helga.adalgeirsdottir@vegagerdin.is eða
senda til Vegagerðarinnar, Miðhúsavegi 1,
600 Akureyri.
Vestfjarðavegur (60)
milli Eiðis í Vattarfirði
og Þverár í Kjálkafirði
Rekstrartekjur Bolungarvíkur-
kaupstaðar á síðasta ári námu
679 milljónum króna samkvæmt
samanteknum rekstrarreikningi
fyrir A og B hluta en fjárhags-
áætlun gerði ráð fyrir rekstrar-
tekjum upp á 642 milljónir króna.
Rekstrartekjur A hluta námu 567
milljónum en áætlun gerði ráð
fyrir 547 milljónum. Rekstrar-
niðurstaða bæjarfélagsins sam-
kvæmt samanteknum rekstrar-
reikningi A og B hluta var jákvæð
um 179,4 milljónir króna en sam-
kvæmt fjárhagsáætlun var gert
ráð fyrir 47,3 milljón króna já-
kvæðri rekstrarniðurstöðu.
Rekstrarniðurstaða A hluta var
jákvæð um 71,3 milljón króna
en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir
jákvæðri rekstrarniðurstöðu upp
á 24,4 milljónir. Eigið fé bæjarfé-
lagsins var jákvætt í árslok um
0,4 milljónir en þar af var eigið
fé A hluta jákvætt um 196,3 millj-
ónir.
Á árinu 2008 gerði bæjarstjórn
Bolungarvíkur og eftirlitsnefnd
með fjármálum sveitarfélaga
með sér samning um fjárhags-
legar aðgerðir og eftirlit. Mark-
mið samningsins er að stöðva
hallarekstur og skuldasöfnun,
bæta eiginfjárstöðu og styrkja
rekstrargrundvöll sveitarfélags-
ins til framtíðar. Laun og launa-
tengd gjöld á árinu námu alls
305,5 milljónum króna. en starfs-
mannafjöldi hjá bæjarfélaginu
var að meðaltali 62. Laun bæjar-
stjórnar, bæjarráðs og bæjarstjóra
námu kr. 13,4 millj. á árinu 2009.
Jákvæður rekstur í Bolungarvík
Heildarkostnaður við nýbygg-
ingu og endurbyggingu Grunn-
skólans á Ísafirði á árunum 2005-
2009 var rúmlega 740 milljónir
króna eða 244 milljónum minna
en kostnaðaráætlun gerði ráð fyr-
ir. „Heildarkostnaður sem fallinn
er á verkið frá árinu 2005 er kr.
742,2 milljónir, mismunurinn er
því 244 milljónir. Hér hefur ekki
verið tekið tillit til verðbóta,“
segir í bókun byggingarnefndar
framtíðarhúsnæðis Grunnskól-
ans á Ísafirði. Kostnaðurinn
skiptist í grófum dráttum þannig:
Byggingarkostnaður viðbygg-
ingar var 493,8 milljónir. Hönn-
unar- og eftirlitskostnaður 72,1
milljónir. Húsbúnaður og tölvu-
kaup 59,3 milljónir. Lóðafram-
kvæmdir 43 milljónir. Mötuneyti
29,3 milljónir og Austurvegur 2,
23 milljónir.
Kostnaður skiptist þannig milli
ára að hann hljóðaði upp á 81,8
milljónir árið 2005. Þar af fór
fóru 15 milljónir í framkvæmdir
við anddyri við Austurveg 2,8
milljónir í utanhússviðgerðir, 23
milljónir í hönnun, 29,3 milljónir
í mötuneyti Grunnskólans á Ísa-
firði og 6,5 milljónir fóru í annað.
Kostnaður árið 2006 var 113,8
milljónir. Þar af fór 73,4 milljónir
til aðalverktaka, 11 milljónir í
lóð við Austurveg, 4,1 milljón í
eftirlit, 24 milljónir í hönnun við-
byggingar og 1,3 milljónir í bún-
að í mötuneyti.
Árið 2007 fóru 172,5 milljónir
í greiðslur til aðalverktaka og
eftirlits. Árið 2008 var kostnaður-
inn 369,5 milljónir. Þar af var
kostnaður aðalverktaka 255 millj-
ónir, húsbúnaður 34,5 milljónir,
tölvur 22,1 milljónir, skólalóð
32 milljónir, skólastofur í gagn-
fræðaskólanum 10,4 milljónir,
eftirlit 5,5 milljónir og annað 10
milljónir. Kostnaður árið 2009
var 2,8 milljónir króna.
Kostnaður við nýbyggingu
GÍ var 740 milljónir króna
Áunnin réttindi lækka um 8%
„Árið kom þokkalega út miðað
við árið áður,“ segir Guðrún K.
Guðmannsdóttir framkvæmda-
stjóri Lífeyrissjóðs Vestfirðinga,
en ársfundur sjóðsins var haldinn
fyrir stuttu. Nafnávöxtun sjóðs-
ins á árinu 2009 var 9,1% sem
jafngildir 0,5% raunávöxtun sem
er mikill bati frá fyrra ári. Eignir
sjóðsins hækkuðu um 9% milli
ára. Á ársfundi sjóðsins var sam-
þykkt að réttindi áunnin réttindi
sjóðsfélaga yrðu lækkuð um 8%.
Að sögn Guðrúnar verður það
gert í tveimur áföngum, í júlí og
október. „Við lækkuðum einnig
réttindi í fyrra en við erum þó
ekki búin að snúa til baka allri
þeirri hækkun sem varð á góðær-
istímanum. Við eigum enn eftir
2% af því. Auðvitað vonum við
að allt fari að snúast til betri
vegar en við erum enn að bíða
eftir uppgjörum úr þrotabúum
gömlu bankanna en þar áttum
við töluvert af skuldabréfum.
Vonandi fer að styttast í niður-
stöður þar.“
Í tilkynningu frá sjóðnum fyrir
ársfundinn kom fram að staða
sjóðsins er innan þeirra marka
sem bráðabirgðaákvæði laga um
lífeyrissjóði setur og er því ekki
skylt að breyta réttindum sjóðfé-
laga. Markmiðið er hins vegar
að starfrækja sjóðinn þannig að
staða hans sé sem næst því að
vera í jafnvægi og ákvað stjórnin
því að leggja fyrir ársfundinn
tillögu um að réttindi sjóðfélaga
yrðu lækkuð um 8%.
Árið 2009 einkenndist mest af
útgreiðslum úr séreignardeild
vegna breytinga á lögum um
lífeyrissjóði þar sem sjóðfélögum
yngri en 60 ára var heimilað að
taka allt að einni milljón króna
út af séreign á níu mánuðum.
Greiddar voru úr séreign 37 millj-
ónir og þar af voru 23 vegna
lagabreytinganna. Hrein eign sér-
eignardeildar var í árslok 419
milljónir og hafði hækkað um 15
milljónir frá fyrra ári.
Á ársfundinum urðu einnig
þær breytingar á stjórn sjóðsins
að Finnbogi Sveinbjörnsson var
kjörinn í stað Bjarna Gestssonar
sem sinnt hefur stjórnarstörfum
frá árinu 1981.
Lífeyrissjóður Vestfirðinga er til húsa í Neista á Ísafirði.