Bæjarins besta - 27.05.2010, Síða 13
FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2010 13
Sveitarfélög á Vestfjörðum veittu 86
heimilum fjárhagsaðstoð árið 2009
Einstæðar mæður með börn
voru í meirihluta viðtakenda fjár-
hagsaðstoðar sveitarfélaga á
Vestfjörðum á síðasta ári eða 30
en alls var 86 heimilum veitt fjár-
hagsaðstoð á árinu. Barnlausir,
einstæðir karlmenn voru næst
fjölmennasti viðtakendahópur-
inn eða 28 talsins. Hjón eða sam-
býlisfólk með börn sem þáðu
fjárhagsaðstoð voru fjórtán og
tíu einstæðar konur með engin
börn fengu aðstoð. Aðeins þrír
einstæðir feður fengu fjárhagsað-
stoð. Fjölmennasti hópurinn sem
þáði fjárhagsaðstoð sveitarfélaga
á landinu öllu í fyrra eru sem fyrr
einstæðir barnlausir karlar eða
sem nemur 42,2% heimila og
einstæðar konur með börn eða
29,3%.
Samkvæmt tölum Hagstof-
unnar hefur fjöldi viðtakenda
fjárhagsaðstoðar á Vestfjörðum
verið mjög svipaður undanfarin
ár. Ef litið er á landið í heild
fengu 5.994 heimili fjárhagsað-
stoð sveitarfélaga árið og hafði
heimilum sem þáðu slíkar greið-
slur fjölgað um 16,1% frá árinu
áður. Árið 2008 hafði heimilum
sem þáðu slíkar greiðslur fjölgað
um 17,5% frá árinu áður. Árið
2003 þáðu 6.312 heimili fjár-
hagsaðstoð sveitarfélaga en til
ársins 2007 fækkaði þeim jafnt
og þétt eða sem nam 32% á öllu
tímabilinu.
Frá árinu 2007 til 2009 aukast
útgjöld sveitarfélaganna vegna
fjárhagsaðstoðar um rúmar 940
milljónir eða um tæplega 70%,
en á föstu verðalagi vaxa þau um
tæp 35%. Meðal mánaðargreiðsl-
ur fjárhagsaðstoðar aukast á sama
tíma um 14 þúsund krónur eða
18,1%, en á föstu verðlagi lækka
þær um rúm 6%. Mánaðarfjöldi
sem fjárhagsaðstoð er greidd er
nálægt fjórir mánuðir að meðal-
tali öll árin. – thelma@bb.is
Frá Ísafirði. 86 heimili féngu fjárhagsaðstoð á Vestfjörðum á síðasta ári.